11.4.2007 | 11:16
Hvað eigum við að kjósa um?
Nýjasta könnun Capacent sýnir að Samfylkingin í Reykjavík suður hefur bætt við sig tveimur prósentustigum frá síðustu könnun. Hið sama var uppi á teningnum í vikunni áður en þá bætti flokkurinn einnig við sig um 2%. Af þessum tveimur könnunum virðist sem að viðsnúningur sé að verða á fylginu. Fylgið Samfylkingarinnar hefur því aukist um 4,3% á tveim vikum.
Það er í samræmi við þá tilfinningu sem við höfum fengið undanfarna daga og vikur þegar við höfum verið að hitta fólk og kynna áherslur okkar. Nú fer aukin harka að færast í kosningabaráttuna með umræðuþáttum og aukinni umfjöllun fjölmiðla.
Nú kynna flokkarnir hver af öðrum stefnumál sín. Og ég get ekki annað en nefnt það aftur hvað það er broslegt að fylgjast með stjórnarflokkunum nánast taka hamskiptum, því báðir flokkarnir virðast nú orðnir að mjúkum félagshyggjuflokkum. En auðvitað á ekki síður að dæma stjórnmálaflokka af fyrri verkum en ekki aðeins loforðum til framtíðar.
Og þegar ríkisstjórnin er dæmd af verkum sínum er auðvitað ekki með nokkru móti hægt að halda því fram að velferðarmálin séu ofarlega á forgangslista.
Það staðfesta 400 manna biðlistar aldraðra og hin fjölmörgu eldri hjón sem eru aðskilin á ævikvöldi sínu vegna skorts á búsetuúrræðum. Og það staðfestir barnafátæktin sem er helmingi meiri hér á landi en á hinum Norðurlöndunum og telur rúmlega fjögur þúsund íslensk börn og það staðfestir sú staðreynd að ríkisstjórnin skerti barnabætur um 10 milljarða krónur.
En það ekki bara að kjósa um velferðarmálin heldur einnig um stefnu í alþjóðamálum um það hvort stuðningur ríkisstjórnarinnar við árásina í Írak var réttlætanleg.
Það á kjósa um það hvernig farið er með veitingarvald hvort að fólk sé sátt við skipanir þessarar ríkisstjórnar í Hæstarétt. Og hvernig valdinu var beitt í Falun Gong.
Það á að kjósa um virðingu fyrir lögum landsins, hvort það sé eðlilegt að dómsmálaráðherra lýsi því yfir að jafnréttislög séu barn síns tíma eftir að hann hefur verið álitinn brotlegur við þau.
Það á að kjósa um það hvort við viljum ríkisstjórn sem beitir sér fyrir sértækum lögum sem beindust að einu fyrirtæki á borð við fjölmiðlalögin. Eða ríkisstjórn sem hindrar eðlilega sameiningu hjóna vegna þess að annar aðilinn er undir 24 ára aldri og af erlendu bergi brotinn.
Það á að kjósa um hvort við viljum áfram ríkisstjórn sem heldur uppi einu hæsta matvælaverði í heimi, einu hæsta vaxtastigi í heimi, einu hæsta lyfjaverði í heimi og einu hæsta húsnæðisverði sem nokkur íslensk kynslóð hefur búið við.
10.4.2007 | 21:36
Hversu langan tíma þarf Framsókn?
Mikið er skrýtið að flokkur eins og Framsóknarflokkurinn sem er búinn að vera stöðugt í ríkisstjórn síðan árið 1971, að 4 árum undanskildum, skuli alltaf tefla sig fram sem hálfgerðum stjórnarandstöðuflokki í kosningum sem ætlar að gera hitt og þetta, laga og bæta.
Er þetta lið ekki búið að fá næg tækifæri til þess? Maður hefði haldið að síðustu 35 ár hefðu verið nægur tími.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 21:55 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (20)
8.4.2007 | 13:18
Ljúft páskafrí
Við fjölskyldan höfum átt notalegt páskafrí sem hefur einkennst af rólegheitum og mikilli samveru með stórfjölskyldunni. Við ákváðum að vera heima í bænum í fríinu og höfum þess í stað farið í barnaafmæli, í grillveislu á Seltjarnarnesinu í mígandi rigningu og nú í dag er stefnan tekin á kalkún hjá tengdaforeldrunum. Það er mikið tilhlökkunarefni enda eru tengdaforeldrarnir mikilir matgæðingar og listakokkar.
Dagurinn hófst hins vegar á því að dæturnar, sem er 4 og 2 ára, vöknuðu rétt fyrir klukkan sjö til að leita að páskaeggjum sem foreldrarnir höfðu falið í íbúðinni. Síðan höfum við maulað súkkulaði sem er nú kannski ekki alveg til fyrirmyndar en tilheyrir páskunum.
Jól og páskar hafa fengið meiri þýðingu eftir að börnin komu til sögunnar, maður upplifir þessar hátíðir sterkar með tvær litlar stelpur á heimilinu sem ráða varla við sig af spenningi. Það sama á reyndar við um afmælin, þeim er fagnað ógurlega og eldri dóttirin liggur iðulega andvaka af æsingi þegar að afmæli eru í nánd og virðist þá litlu skipta hver það er.
Fríið þessa síðustu daga er hins vegar lognið á undan storminum. Kosningabaráttan er komin á fullt skrið. Stemmningin í okkar herbúðum er ljómandi fín og ég verð að segja að það skiptir ótrúlega miklu máli. Kannanir hafa ekki verið alveg eins og við viljum hafa þær. En hitt skiptir þó miklu máli að sjá að tækifærin eru svo sannarlega fyrir hendi. Ríkisstjórnin mælist aftur og aftur fallin. Fólk vill sjá breytingar. Það liggur sömuleiðis fyrir að mjög margir eiga eftir að taka afstöðu og að það gera menn á síðustu metrunum. Þetta upplifðum við í síðustu baráttu. Við gengum sterk og samhent inn í baráttuna.
Síðustu daga hafa kannanir bent til þess að okkar mikla vinna undanfarnar vikur sé að skila sér. Fylgi Samfylkingarinnar í Norðausturkjördæminu sýnir að við höfum bætt við okkur einum þingmanni og Lára Stefánsdóttir er að mælast inni sem er sérstakt fagnaðarefni.
En það virðist enn vera talsvert rót á fylginu og því þýðir ekkert annað en að halda áfram að hitta fólk og kynna hina frábæru stefnu Samfylkingarinnar og má þar nefna Unga Ísland, Fagra Ísland, Nýja atvinnulífið, Lífsgæði eldri borgara og neytendastefnu okkar sem gefur okkur mikla sérstöðu.
Stjórnmál og samfélag | Breytt 10.4.2007 kl. 21:56 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
7.4.2007 | 19:33
7-0
Jæja, aðalatriðið er að vera með og að styrkja góð málefni í leiðinni. En fjölmiðlungarnir tóku okkur víst naumlega með 7 marka forskot. Reyndar voru þeir að keyra einhverjum helköttuðum íþróttafréttamönnum og útvarpsmönnum sem fáir kunnu deili á. Við stóðum okkur þó ágætlega en öldungurinn í hópnum okkar, Ellert B. Schram fyrrverandi landsliðsfyrirliðinn (67), blés varla úr nös á meðan við hinir vorum að deyja á vellinum.
En fjölmiðlarnir höfðu þetta og því er ástæða til að óska þeim til hamingju. En rosalega er líkaminn minn feginn að þetta gerist ekki aftur fyrr en eftir 4 ár.
7.4.2007 | 10:57
Einungis hægt að sjá í dag
Í dag gerist stórviðburður sem enginn má láta framhjá sér fara. Þetta er örugglega eina tækifærið sem verður næstu 4 árin til að líta svona atburð augum. Því er um að gera að mæta. Ég er auðvitað að tala um pressuleik frambjóðenda og fjölmiðlafólks. Leikurinn verður haldinn í dag, laugardag, í Egilshöll kl. 15. Allir velkomnir og andvirði miðasölu rennur í góð málefni (Umhyggja, Blátt áfram og CPsamtökin).
Ég mun víst taka þátt í þessum herlegheitum ásamt félögum mínum. Ég hef reyndar ekki spilað bolta í nokkur ár. Reyndar var ég nokkuð liðtækur hér árum áður með stórfélaginu Gróttu United. Þar spilaði ég frá 5. flokki og þar til ég hætti þessu sprikli í 2. flokki. Tvisvar á mínum ferli hlotnaðist mér bikarinn ,,Mestu framfarir. Skiljanlega var ég mjög stoltur af þessari viðurkenningu en svo fékk ég þá skýringu að þessi bikar færi iðulega til þess aðila sem hefði verið í hvað versta formi af öllum í upphafi sumars. En bikar er þó bikar.
Hvet ykkur allavega til að mæta í dag.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 19:21 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
4.4.2007 | 13:34
Verkefni næstu ríkisstjórnar
Seðlabankinn hefur nýlega sent frá sér þjóðhagsspá þar sem dregin er upp frekar dökk mynd. Meðal annars er gert ráð fyrir halla á opinberum rekstri á næsta ári, samdrætti og auknu atvinnuleysi . En það sem meira er að fjármálaráðuneytið gerir sjálft ráð fyrir halla hjá hinu opinbera á næsta ári. Það skiptir miklu máli að hafa þetta í huga þegar ný ríkisstjórn tekur við eftir 38 daga. Sú stjórn þarf því að taka til eftir óstjórn þessarar ríkisstjórnar.
Ég hef ítrekað skrifað um hagstjórnarmistök ríkisstjórnarinnar og vil ég benda á nokkrar greinar sem hafa verið birtar í Morgunblaðinu. Má þar nefna greinina ,,Hvað varð um stöðugleikann?" sem birtist þann 17. febrúar sl., greinina ,,Falleinkunn í stjórn efnahagsmála" sem birtist 5. september sl., greinina ,,Almenningur geldur fyrir mistök ríkisstjórnarinnar" frá 28. ágúst sl. og loks greinina ,,Fjórar þjóðsögur" sem birtist 30. mars 2006.
Edda Rós Karlsdóttir, forstöðumaður greiningardeildar Landsbankans, skrifar í dag annars mjög fína grein um stöðuna í efnahagsmálum í Markaðinn í dag í Fréttablaðinu. Þar segir hún m.a.:
,,Staðan er því sú að Seðlabankinn spáir samdrætti og atvinnuleysi, í umhverfi þar sem ríkið örvar hagvöxt big time" en Seðlabankinn dregur úr hagvexti með háum stýrivöxtum. Í mínum augum lítur dæmið þannig út að stýrivöxtum sé beitt til að ryðja veg fyrir athafnasama stjórnmálamenn. Er það virkilega ætlunin?"
Og síðan vísar hún í rit Seðlabankans sem segir orðrétt: Samdrátttur er í raun óhjákvæmilegur og bein afleiðing af ofþenslu fyrri ára."
Það sem dæmin og hver einasta greiningardeild, bæði innlend og erlend, segja ásamt Seðlabankanum sjálfum, staðfestir það að þegar á hólminn er komið þá ræður Sjálfstæðisflokkurinn ekki við stjórn efnahagsmála. Fáir geta neitað því geti fólk einblínt á staðreyndirnar í stað flokkshagsmuna.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 13:35 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
3.4.2007 | 11:45
Hverju ætla Frjálslyndir að stjórna?
Nú er talsverð umræða um áherslur Frjálslynda flokksins í innflytjendamálum en Frjálslyndir hafa sagt að þeir ætli sér að stjórna hverjir komi til landsins frá EES-ríkjunum út af einhverjum undanþágum sem þeir telja sig lesa úr EES-samningnum. Af því tilefni birti ég hér brot úr mjög fróðlegum pistli sem Árni Páll Árnason, lögmaður og frambjóðandi Samfylkingarinnar, birti á heimasíðu sinni.
"Staðreyndin er sú að engin slík undanþága er fyrir hendi. Hin almenna regla 28. gr. EES-samningsins er að frelsi launþega til flutninga skuli vera tryggt í aðildarríkjunum og að í því felist afnám allrar mismununar milli launþega sem byggð er á ríkisfangi og lýtur að atvinnu, launakjörum og öðrum starfs- og ráðningarskilyrðum.
Í 112. gr. samningsins eru almenn ákvæði um öryggisráðstafanir, sem ætlað er að gera samningsaðilum kleift að bregðast við því ef upp koma alvarlegir efnahagslegir, þjóðfélagslegir eða umhverfislegir erfiðleikar í sérstökum atvinnugreinum eða á sérstökum svæðum. Slíkar öryggisráðstafanir skulu vera takmarkaðar, að því er varðar umfang og gildistíma, við það sem telst bráðnauðsynlegt til þess að ráða bót á ástandinu segir ennfremur í greininni.
Í 113. gr. er mælt fyrir um að unnt sé að grípa til þessara ráðstafana að höfðu samráði við aðra samningsaðila og í henni felst samningsskylda um að leita samkomulags við aðra samningsaðila um viðeigandi viðbrögð.
Í 114. gr. segir að ef öryggisráðstöfun, sem samningsaðili hefur gripið til, veldur misvægi milli réttinda og skyldna samkvæmt samningi þessum getur hver hinna samningsaðilanna gripið til jafn umfangsmikilla jöfnunarráðstafana gagnvart fyrrnefndum samningsaðila og bráðnauðsynlegar eru til að jafna umrætt misvægi.
Yfirlýsing Íslands
Í tengslum við samningsgerðina lýstu íslensk stjórnvöld þeirri túlkun sinni að Ísland gæti nýtt þessar heimildir ef af framkvæmd samningsins myndi leiða alvarlega röskun jafnvægis á vinnumarkaði vegna meiri háttar flutninga starfsfólks sem beinast að sérstökum svæðum, störfum eða atvinnugreinum.
Þessi yfirlýsing er hins vegar einhliða yfirlýsing Íslands, sem bindur ekki hendur viðsemjenda okkar. Og jafnvel þótt hún gerði það eru skilyrði hennar ekki uppfyllt. Það hefur ekki orðið alvarleg röskun jafnvægis á vinnumarkaði. Þvert á móti: Vinnumarkaðurinn er í jafnvægi því atvinnuleysi er ekkert.
Engin undanþága
Það er öllum læsum mönnum ljóst að í þessum ákvæðum felst engin undanþága .. sem samið var um í EES-samningnum, varðandi innflutning verkafólks eins og segir í auglýsingu Frjálslynda flokksins. Við getum gripið til aðgerða til að verjast alvarlegum efnahagslegum eða þjóðfélagslegum erfiðleikum, en við þurfum að bera þær aðgerðir undir viðsemjendur okkar og eiga við þá samstarf um þær. Ef þær hafa mikil áhrif, mega þeir beita samsvarandi aðgerðum gagnvart okkur. Með öðrum orðum: Ef við beitum þessu ákvæði til að takmarka innflutning verkafólks verðum við að takmarka innflutning frá öllum aðildarríkjunum og þau geta þá takmarkað heimildir okkar til að nýta okkur frjálsa för til launavinnu eða náms í aðildarríkjunum.
Ef við förum þá leið að takmarka innflutning erlends vinnuafls eiga viðsemjendur okkar samningsbundinn rétt til að beita sams konar aðgerðum gagnvart Íslendingum sem nú eru að störfum eða við nám í Evrópusambandsríkjunum. Viljum við það?"
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 11:46 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
2.4.2007 | 11:50
Þetta ætti að vera stærsta kosningamálið
Ef stjórnmál ættu að snúast um eitthvað eitt framar öðru þá ætti það að vera börnin. Mér finnst að málefni barna eigi að vera eitt stærsta kosningamálið. Þar eru stærstu hagsmunirnir á ferð.
Á meðan um 5.000 börn eru undir fátæktarmörkum, á meðan barnafátækt er tvöfalt meiri hér en á hinum Norðurlöndunum, á meðan 8.500 börn hafa ekki farið til tannlæknis á þremur árum, á meðan um 4.000 tilkynningar berast árlega til Barnaverndarstofu og á meðan ríkisstjórnin er búin að skerða barnabætur samanlagt um 11 milljarða kr þá er eitthvað að.
Þess vegna hefur Samfylkingin lagt fram ítarlega aðgerðaáætlun um hið unga Ísland.
Þar kemur m.a. fram að Samfylkingin vill:
1. Stytta vinnuvikuna í samráði við aðila vinnumarkaðarins
2. Fría tannvernd og afsláttarkort vegna tannviðgerða barna
3. Koma á sólarhringsaðstoð og ráðgjöf við unga fíkniefnaneytendur og börn með bráð geðræn vandamál
4. Ókeypis námsbækur í framhaldsskólum
5. Lengja fæðingarorlofið í 12 mánuði í áföngum og breyta reglum þannig viðmiðunartími við útreikninga orlofs verði styttur og að orlofið nýtist einstæðum foreldrum að fullu
6. Hækka barnabætur og vaxtabætur
7. Tryggja gjaldfrjálsa menntaleið í gegnum leik- og grunnskóla
8. Tryggja að öll börn geti tekið þátt í íþrótta-, tómstunda- og félagsstarfi
9. Að börn innflytjenda fái sömu tækifæri og þjónustu og íslensk börn, m.a. með stóraukinni áherslu á íslenskukennslu og stuðning í skólum
Annars má lesa um allar tillögurnar hér.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 14:49 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (16)
31.3.2007 | 21:48
Að óttast ekki eigin þjóð
Kosningin í Hafnarfirði er mikill sigur fyrir lýðræðið. Þátttakan staðfestir að það er hárrétt aðferðarfræði hjá Samfylkingunni að gera íbúum kleift að kjósa með beinum hætti um mikilvæg málefni. Samfylkingin hefur beitt sér fyrir auknu beinu lýðræði og ég er sannfærður um að kosningar af þessu tagi eru framtíðarmúsík í íslenskum stjórnmálum.
Ég held að fólk kunni að meta þessa nálgun og að það er bjargföst trú mín að stórar samfélagslegar spurningar eigi að leggja í dóm kjósenda. Kosningin í Hafnarfirði fellur tvímælalaust þar undir. Þar tókust á tvö andstæð sjónarmið og mér hefur virst sem að kosningabaráttan hafi verið heiðarleg og málefnaleg. Gríðarlega mikil kosningaþátttaka sýnir ennfremur að þetta er málefni sem bæjarbúar hafa miklar skoðanir á og vilja hafa áhrif á það hver niðurstaðan verður. Lýðræðið fékk hér einfaldlega að hafa sinn gang.
Ingibjörg Sólrún fór þessa leið sem borgarstjóri þegar hún beitti sér fyrir því að borgarbúar gætu kosið um framtíð flugvallarins. Þingmenn Samfylkingarinnar með Jóhönnu Sigurðardóttur í fararbroddi hafa ár eftir ár lagt fram þingmál um rétt almennings til að krefjast þjóðaratkvæðagreiðslna. Okkar fulltrúar í stjórnarskrárnefnd, Össur Skarphéðinsson og Kristrún Heimisdóttur, hafa jafnframt lagt mikla áherslu á að fá slíkt ákvæði í stjórnarskrá en við litlar undirtektir stjórnarflokkanna.
Okkar fólk í Árborg hefur verið frumkvöðlar í íbúaþingum hér á landi sem fjölmörg önnur sveitarfélög hafa síðan tekið upp. Og nú síðast var það hreinn meirihluti Samfylkingarfólks í Hafnarfirði sem ákvað að fara þá leið að leyfa íbúum bæjarins að ákveða hvort leyfa skyldi stækkun álversins í Staumsvík.
Samfylkingin óttast ekki að færa völdin til kjósenda. Við treystum lýðræðinu.
Fleiri andvígir álveri en fylgjandi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
30.3.2007 | 10:27
Hvað er búið að gerast undanfarin ár?
Ég verð að viðurkenna að hugmyndir Björns Bjarnasonar um 240 manna launað heimavarnarlið slá mig ekki vel. Ég hef oft vakið máls á því að við þurfum að velta því fyrir okkur á hvaða leið erum við eiginlega. Í vetur stofnaði Björn Bjarnason greiningardeild Ríkislögreglustjóra. Þessi greiningardeild á m.a. að rannsaka glæpi áður en þeir eru framdir með svokölluðu áhættumati og forvarnarvinnu en í meðförum þingsins fengust ekki upplýsingar hvernig þessi vinna ætti að vera unnin. Í frumvarpinu voru síðan boðar auknar heimildir til lögreglu til að sinna þessari vinnu.
Á aðeins þremur árum hefur dómsmálaráðherra þrefaldað fjölda sérsveitarmanna og aukið fjárframlög til Ríkislögreglustjóra um meira en 30%.
Það er ekki heldur svo langt síðan þessi sami ráðherra lagði fram frumvarp á Alþingi sem hefði heimilað símhleranir án dómsúrskurðar sem hefði án efa brotið gróflega á mörgum meginreglum persónuréttinda og mannréttinda. En þessum sömu stjórnvöldum tókst hins vegar að heimila að afhending á svokölluðum IP-tölu úr tölvum gæti verið án dómsúrskurðar en IP-tala er notuð til að tilgreina staðsetningu tölvu. Áður fyrr þurfti dómsúrskurð til að fá þessar upplýsingar.
Og er fólk búið að gleyma Falun Gong og aðgerðum stjórnvalda í því máli? Eða símhlerunum stjórnvalda á pólitískum andstæðingum á tímum kalda stríðsins?
Það er því rík ástæða til að vera á varðbergi. Við skulum ekki gleyma því að skerðing á persónuréttindum er iðulega réttlætt með fögrum orðum. Frelsið fer sjaldnast í einu vetfangi heldur skerðist það hægt og rólega. Þessar aðgerðir eru ætíð stuttar með tilvísun í almannahagsmuni og hugsanlega hættu. Við megum því alls ekki verða blind á réttlætingarnar, því þær eru alltaf settar í fallegan búning.
29.3.2007 | 15:54
Hversu mörg börn hafa ekki farið til tannlæknis? Svarið er hér.
Hversu mörg börn hafa ekki farið til tannlæknis? Þetta er mjög áhugaverð spurning að mínu mati og á vel við núna þegar heilmikil umræða er í gangi um tannheilsu íslenskra barna. Í fyrra var ég með fyrirspurn á Alþingi um hversu mörg börn höfðu ekki farið til tannlæknis á ákveðnu árabili. Svörin voru mjög áhugaverð.
Þar kom í ljós að 8.500 börn á aldrinum 3-17 ára höfðu ekki farið til tannlæknis í 3 ár.
Einnig kom í ljós að um 2.000 börn á aldrinum 6-17 höfðu ekki farið til tannlæknis í 5 ár.
Þá höfðu um 800 börn á aldrinum 9-17 ekki farið til tannlæknis í 7 ár. Þetta er langur tími án þess að hafa farið til tannlæknis.
Sjálfsagt eru margar ástæður fyrir þessum tölum en ein af þeim hlýtur að vera efnahagur fjölskyldunnar. Ljóst er að hið opinbera greiðir aðeins hluta af þeim kostnaði sem fjölskyldur verða fyrir þegar barn fer til tannlæknis. Við verðum því að gera það ódýrara fyrir fjölskyldur að fara með börn sín til tannlæknis.
Stjórnmál og samfélag | Breytt 30.3.2007 kl. 10:28 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (10)
28.3.2007 | 11:52
Hvar er allt gamla fólkið á Íslandi?
Mikið eru þetta nú jákvæðar fréttir. Einn hæsti meðalaldur í heimi og sá hæsti þegar kemur að körlum. En hvar er allt gamla fólkið? Ég hef það á tilfinningunni að maður sjái mun meira af öldruðu fólki erlendis en hér á landi. Þegar meðalaldurinn hér er um og yfir 80 ár ætti sýnileiki þessa þjóðfélagshóps að vera talsvert meiri en hann er nú.
Ég geri mér grein fyrir því að veðrið spilar án efa einhverja rullu hér en erlendis sér maður oft eldra fólkið sitjandi í hugglegum almenningsgörðum, teflandi, spjallandi, spilandi eða einfaldlega horfandi á mannlífið. Ég geri mér einnig grein fyrir því að hlutfall eldri borgara er lægra hér á landi en víðast hvar annars staðar í Evrópu. En samt. Mér finnst þetta vera eitthvað óeðlilegt.
Ætli sú staðreynd að stofnanavist meðal eldri borgara er mun meiri hér á landi en t.d. á hinum Norðurlöndum eigi sinn þátt í þessu? Eflaust.
Það er án efa mikil þörf að hugsa þessi mál alveg upp á nýtt og hætta að nálgast öldrun sem sjúkdóm. Sömuleiðis er lykilatriði að gera fólki kleift að vera hvað lengst heima hjá sér. Það er bæði betra fyrir viðkomandi og ódýrara fyrir samfélagið. Slíkt er hægt t.d. með öflugri heimahjúkrun en þegar ég sat í heilbrigðisnefnd Alþingis fengum við þær upplýsingar að heimahjúkrun er talsvert meiri á hinum Norðurlöndunum en á Íslandi.
Þessu (ásamt veðrinu) þarf því að breyta.
Stjórnmál og samfélag | Breytt 30.3.2007 kl. 10:29 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (11)
27.3.2007 | 16:50
Hægri höndin veit ekki hvað sú vinstri gerir
Af hverju er íslenskur almenningur sífellt tilbúinn að greiða eitt hæsta matvælaverð í heimi? Af hverju er ríkisstjórnin að samþykkja aukna tolla á matvæli á sama tíma og hún þykist vera að reyna að ná matvælaverði niður? Þetta sýnir auðvitað vel að lækkun matvælaverðs hefur aldrei verið mjög ofarlega á dagskrá ríkisstjórnarinnar.
Í nýlegri skýrslu OECD kemur í ljós að búvöruverð hér á landi er um þrefalt heimsmarkaðsverð og að framleiðslustyrkir til landbúnaðar eru um tvöfald hærri á Íslandi en eru að jafnaði í aðildarríkjum OECD.
Sérstaða Samfylkingarinnar í neytendamálum
Það vita allir að tollarnir eru stóra málið þegar kemur að því að lækka matvælaverðið hér á landi. Samfylkingin er hins vegar eini stjórnmálaflokkurinn í landinu sem vill afnema innflutningshöft. Við höfum viljað fella niður helming allra tolla innan árs og síðan fella niður afganginn í samráði við hagsmunasamtök bænda og neytenda.
Samfylkingin er líka eini stjórnmálaflokkurinn sem hefur viljað fella niður öll vörugjöld af öllum matvælum. Og Samfylkingin er sömuleiðis eini stjórnmálaflokkurinn sem hefur viljað að samkeppnislög gildi um landbúnaðinn.
Við viljum einfaldlega nýtt kerfi í landbúnaðarmálum, kerfi sem er bæði í hag bænda og neytenda.
Nýtt kerfi
Bændasamtökin hafa sjálf sagt að bóndinn sé jafnvel bara að fá um 40% af útsöluverði vöru sinnar í núverandi kerfi. Þetta er einn besti vitnisburðurinn um að kerfið sé slæmt. Sitjandi ríkisstjórn er nefnilega ekki einungis fjandsamleg neytendum heldur einnig bændum. Samfylkingin vill einmitt auka hlutdeild bóndans í útsöluverðinu. Samfylkingin vill tímabundna aðlögunarsamning við bændur og breyta stuðningnum við landbúnaðinn m.a. til að gera bændum kleift að aðlagast aukinni samkeppni vegna innflutnings.
Það er fróðlegt að rifja upp að þegar ríkisstjórnin felldi niður tollavernd á gúrkum, tómötum og paprikum, gerðist í rauninni þrennt sem kom mörgum úrtölumönnum á óvart.
Í fyrsta lagi lækkaði auðvitað verðið á þessum grænmetistegundum til neytenda.
Í öðru lagi lækkaði verðið á öðrum grænmetistegundum og ávöxtum sem ekki urðu fyrir sömu breytingu á tollunum m.a. vegna samkeppninnar.
Og í þriðja lagi seldist meira af íslenska grænmetinu sem þó naut ekki lengur tollverndar.
Hagur bænda og neytenda batnaði og það er kjarni málsins.
Stjórnmál og samfélag | Breytt 30.3.2007 kl. 10:31 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
27.3.2007 | 09:40
,,...barnið getur kært það sem eftir er..."
Í Sunnudagskastljósinu var viðtal við Baugalín (Linda Drake) sem beitt var kynferðislegu ofbeldi þegar hún var barn. Viðtalið var mjög sláandi og hefur þá án efa snert taug hjá öllum þeim sem á horfðu. Þolendur kynferðislegs ofbeldis sýna ótrúlegt hugrekki með því að koma fram með sögu sína fyrir alþjóð og það er þeim að þakka að umræðan um þessi mál er talsvert opnari en áður. Það er einnig þeim að þakka að við höfum í sameiningu náð mikilvægum áföngum í baráttunni gegn kynferðislegu ofbeldi í okkar samfélagi.
Í ljósi hins gríðarlega mikilvægs áfanga sem náðist í þinginu á lokadegi þingsins um að afnema fyrningarfresti í kynferðisafbrotum gegn börnum langar mig að draga eitt fram sem Baugalín sagði í lok viðtalsins.
Hún sagði: " um leið er gífurlegur fælingarmáttur í því gagnvart gerendum sem eru að hugsa svona, þeir kannski síður gera það sem þeir hugsa ef þeir vita að barnið getur kært það sem eftir er." " það er svo mikil vernd í þeim lögum fyrir börn."
Þetta er auðvitað hluti af kjarna málsins og því var þessi lagabreyting um afnám fyrningarfrests svo ótrúlega mikilvæg. Það er hins vegar ekki hægt að láta afnám fyrningarfresta í kynferðisafbrotum gegn börnum gilda fyrir brot sem eru nú þegar fyrnt. Þó er mikilvægt að hafa í huga að nýju fyrningarreglurnar gilda í þeim brotum þar sem fyrningarfresturinn er ekki nú þegar hafinn. Þ.e.a.s. ef þolandinn er nú undir 14 ára aldri eða brotin eru enn að viðgangast.
26.3.2007 | 10:57
Síðasta þingmálið mitt á kjörtímabilinu
Á þessu kjörtímabili hef ég lagt fram á Alþingi fjöldann allan af þingmálum. Allt frá aukinni vernd heimildarmanna fjölmiðla, líffæragjöfum, samfélagsþjónustu, óháðum rannsóknarnefndum, heimilisofbeldi og til auglýsinga heilbrigðisstétta svo eitthvað sé nefnt. En síðasta þingmálið sem ég lagði fram á þessu fyrsta kjörtímabili mínu var um lögfestingu á Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna.
Noregur hefur nú þegar lögfest Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna en annars eru aðildarríki samningsins, s.s. Ísland, einungis skuldbundin Barnasáttmálanum samkvæmt þjóðarrétti en ekki að landsrétti. Því þarf að lögfesta alþjóðalega samninga ef þeir eiga að hafa bein réttaráhrif hér á landi.
Að mínu mati á slíkur grundvallarsáttmáli að vera lögfestur hér á landi með sama hætti og Mannréttindasáttmáli Evrópu hefur verið lögfestur hér á landi. Við það fengið Barnasáttmálinn aukið vægi þar sem stjórnvöld og dómstólar landsins yrðu að taka mið af honum sem sett lög.
Laga ýmislegt í íslenskum lögum
Einnig er lagt til í þingmálinu að íslensk löggjöf verði aðlöguð betur að Barnasáttmálanum. Tryggja þarf betur friðhelgi einkalífs barna og sjálfsákvörðunarrétt þeirra í lögum s.s. í barnalögum, barnaverndarlögum og lögum um réttindi sjúklinga. Ákvæði barnasáttmálans geta sömuleiðis kallað á endurskoðun á hegningarlögum. Samkvæmt Barnasáttmálanum ber að aðskilja unga fanga frá fullorðnum föngum en hér á landi er það ekki gert.
Tryggja þarf í lög að rætt sé við yngri börn en nú er gert í umgengis- og barnaverndarmálum og að börn hafi samkvæmt grunnskólalögum ríkari rétt til að láta í ljós skoðanir sínar. Sömuleiðis þarf réttur barns til að þekkja foreldra sína að vera fyrir hendi og skoða hvort það eigi við ættleidd börn og í sæðisgjöfum. Huga þarf sérstaklega að stöðu barna sem glíma við langvarandi veikindi, fötlun, geðsjúkdóm, fátækt og barna nýbúa í íslenskum lögum.
Mér finnst þetta annars vera jákvætt mál og það er vonandi að það fari eins fyrir þessu síðasta þingmáli mínu og fór fyrsta þingmáli mínu sem var um afnám fyrningarfresta í kynferðisafbrotum gegn börnum.
23.3.2007 | 11:11
Frelsið er yndislegt - ég geri það sem ég vil
Í gær skrifaði ég pistil um frelsið. Hann var í lengra lagi og biðst ég afsökunar á því. En þegar ég settist niður þá komu einfaldlega svo mörg dæmi upp í hugann þar sem Sjálfstæðisflokkurinn hefur annaðhvort reynt að hefta frelsið með beinum hætti eða látið hjá líða að auka það þrátt fyrir að hafa verið í ríkisstjórn 16 ár (og í raun verið í ríkisstjórn framan af síðustu öld).
Nokkrar athugasemdir hafa borist í athugasemdakerfið og sumir eru ósáttir en enginn þeirra hrekur þessa 19 punkta sem ég rakti með efnislegum hætti. Enda sjá lesendur að þessi 19 dæmi eru staðreyndir sem ég dreg fram en ekki einhverjar pólitískar og gildishlaðnar ályktanir stjórnarandstöðuþingmanns.
Sannleikanum verður hver sárreiðastur.
22.3.2007 | 10:25
Hverjir gæta frelsisins?
Mér finnst það alltaf jafnfyndið þegar Sjálstæðismönnum verður tíðrætt um frelsið, sérstaklega rétt fyrir kosningar. Mér finnst það fyndið því mér finnst það vera gríðarleg öfugmæli að álíta Sjálfstæðisflokkinn vera málsvara frelsisins.
Tökum nokkur dæmi til útskýringar.
1. Dómsmálaráðherra Sjálfstæðisflokksins, Björn Bjarnason, lagði fram frumvarp sem hefði heimilað símhleranir án dómsúrskurðar sem hefði gróflega brotið á friðhelgi einkalífsins og önnur mannréttindaákvæði.
2. Sjálfstæðismenn lögðu fram og samþykktu mjög afturhaldsöm útlendingalög sem skertu frelsi til muna. Má þar nefna 24 ára regluna, 66 ára regluna og hina öfugu sönnunarbyrði sem þar er við lýði.
3. Ríkisstjórn Sjálfstæðisflokksins beitti öllum tiltækum leiðum til að hindra komu Falun Gong til landsins. Settar voru upp fangabúðir í Njarðvík, fólk flokkað niður í Leifstöð á grundvelli kynþáttar og stuðst var við svarta lista frá kínversku leyniþjónustunni.
4. Sjálfstæðisflokkurinn hefur nú heimilað að hægt sé að krefjast IP-tölu úr tölvum án dómsúrskurðar.
5. Dómsmálaráðherra Sjálfstæðisflokksins Björn Bjarnason, skerti rétt borgara til að fá gjafsókn einmitt í þeim málum sem snúa að ríkinu s.s. í mannréttindamálum, læknamistökum, umhverfismálum o.s.frv.
6. Sjálfstæðismenn börðust hatramlega fyrir einum mest íþyngjandi fjölmiðlalögum sem hefðu þekkst í Vestrænum heimi. Lögleiða átti m.a. skerðingu á prentfrelsi.
7. Sjálfstæðismenn á þingi styðja opinbera neyslustýringu. Þeir kusu beinlínis gegn tillögum Samfylkingarinnar um afnema vörugjöld af öllum matvælum, líka af hinum meintu óhollum vörum, með þeim rökum að það þyrfti að stýra neyslu fólksins í gegnum skattlagningu.
8. Ríkisútgjöldin hafa aukist um tæpa 160 milljarða króna frá árinu 1995. Ríkissjóður er því 73% dýrari í rekstri nú en árið 1995. Ekki hefur þjónustan batnað um 73% á sama tíma.
9. Þingmenn Sjálfstæðisflokksins hafa réttlætt á þingi skilyrðislausa lífsýnatöku atvinnurekaenda úr starfsfólki (sbr. http://www.althingi.is/altext/130/04/l01133301.sgml)
10. Sjálfstæðismenn sjá afnám launaleyndar allt til foráttu en hvað er launaleynd? Launaleynd er þegar atvinnurekandi getur bannað viðkomandi að segja öðrum frá laununum sínum. Þannig að afnám launaleyndar er því frelsi, frelsi til að tjá sig sem Sjálfstæðismenn vilja hefta.
11. Eftir tæplega tveggja áratuga setu Sjálfstæðisflokksins í ríkisstjórn búum við enn við einkasölu ríkisins á áfengi.
12. Enn er ríkisfjölmiðillinn á auglýsingamarkaði sem þrengir mikið að einkaframtakinu á þessum markaði og hindrar innkomu nýrra aðila á markaðinn. Röksemdir fyrir tilvist ríkisfjölmiðils eiga ekki við tilvist ríkisfjölmiðils á auglýsingamarkaði. Sjálfstæðismenn hafa ítrekað sagt að þeir vilji hafa ríkisfjölmiðilinn á auglýsingamarkaðinum.
13. Hið aukna frjálsræði í viðskiptalífinu einskorðast nánast eingöngu við þau svið sem EES-samningurinn tekur til. Þ.e.a.s. íslensk stjórnvöld hafa ,,neyðst til að opna landið og auka frjálsræði í málaflokkum EES. Slíkt hefur ekki gerst á þeim sviðum sem EES-samningurinn tekur ekki til.
14. Frelsi hefur lítið sem ekkert aukist í landbúnaðarkerfinu í valdatíð Sjálfstæðisflokksins. Fyrir viku samþykktu Sjálfstæðisþingmenn 20 milljarða kr. sauðfjársamning og fyrir 3 árum samþykktu þeir 30 milljarða kr. mjólkursamning. Samfylkingin var eini flokkurinn á þingi sem lagði til að samkeppnislög myndu gilda um landbúnaðarkerfið og Samfylkingin er eini flokkurinn á þingi sem hefur sagst vilja fella niður innflutningshöft og tolla.
15. Frelsi hefur lítið sem ekkert aukist í sjávarútvegskerfinu í valdatíð Sjálfstæðisflokksins og enn eru höft á erlendum fjárfestingum o.s.frv.
16. Skattbyrði, þ.e.a.s. sá hluti af tekjunum þínum sem þú greiðir í skatta, hefur aukist hjá öllum tekjuhópum nema hjá þeim sem eru í topp 10% tekjuskalans.
17. Árið áður en þessi ríkisstjórn tók við völdum 1995 voru skatttekjur hins opinbera 32% af landsframleiðslu en voru í fyrra orðnar um 41%. Þessi aukning er sú mesta af öllum OECD ríkjunum. Íslensk stjórnvöld undir forystu Sjálfstæðisflokksins eru því þau stjórnvöld sem hafa aukið skattbyrðina mest.
18. Árið 1990 sem er árið áður en Sjálfstæðisflokkurinn tók við fjármálaráðuneytinu, var skatthlutfall hins opinbera á Íslandi um 3% undir meðaltalinu í OECD. En þegar Sjálfstæðisflokkurinn var tekinn við ríkisbúskapnum og farinn að sýna sitt rétta andlit kom önnur staða upp. Í stað þess að vera undir meðaltalinu í OECD um rúm 3% þegar kemur að skattpíningu var Ísland komið yfir meðaltalið um tæp 3%. Viðsnúningurinn varð alger. Og ríkisstjórn aukinnar skattbyrði varð að veruleika. Það er umhugsunarvert að hér sé við völd ríkisstjórn sem sættir sig einfaldlega við það að taka æ stærri hlut af kökunni, sem í þokkabót er mun stærri en kakan var.
19. Að lokum langar mig að nefna af gefnu tilefni að það voru einnig þingmenn úr þingflokki Sjálfstæðisflokksins sem voru á móti lögleiðingu bjórsins. Sjálfstæðismenn eru því ekkert lausir við þá sögu frekar en aðrir flokkar.
En hvað gera jafnaðarmenn?
Að endingu langar mig að nefna nokkur dæmi um verk jafnaðarmanna þegar kemur að frelsinu því þegar Ísland hefur stokkið í frjálsræðisátt hafa jafnaðarmenn átt frumkvæðið að því.
Nefnum fyrsta dæmið. Viðreisnin en þar léku jafnaðarmenn, með Gylfa Þ. Gíslason viðskiptaráðherra í fararbroddi, lykilhlutverk. Viðreisnin jók viðskiptafrelsi til muna og kom Íslandi í 20. öldina.
Annað dæmið er þegar gjaldeyrisviðskipti voru gerð frjáls en það var gert á tíma síðustu vinstri stjórnar.
Þriðja dæmið var þegar EES-samningurinn var gerður en þar voru jafnaðarmenn potturinn og pannan í bæði aðdragandanum og í viðræðunum sjálfum. Sjálfstæðismenn voru til að byrja með á móti EES-samningnum.
Þetta eru þrjú góð dæmi sem sýna vilja jafnaðarmanna til að auka frelsi fólks og fyrirtækja. Þetta eru einnig þrjú góð dæmi sem stórjuku frelsi og frjálsræði í íslensku samfélagi. Mörg önnur minni dæmi má nefna s.s. frjáls opnunartími veitingastaða sem var ákveðinn í borgarstjóratíð Ingibjargar Sólrúnar.
Jöfn og frjáls
En við jafnaðarmenn tölum ekki einungis um frelsi fjármagnsins heldur einnig frelsi fólksins og frelsi frá fátækt. Fátækur maður er ekki frjáls. En eftir valdatíma þessarar ríkisstjórnar má finna 4.300 börn og 10.000 eldri borgara sem lifa undir fátæktarmörkum. Það er því mikið verk að vinna fyrir frjálslynda jafnaðarmenn og ykkur sem eru jöfn og frjáls.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 10:28 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (19)
21.3.2007 | 11:38
Lögreglustjóra svarað
Það hefur verið tekist á um það undanfarin ár hvaða leiðir skuli fara í löggjöf um vændi. Ég hef viljað fara sænsku leiðina þar sem sala á vændi er refsilaus en kaupin eru gerð refsiverð. Í Blaðinu í dag er lögreglustjóri höfuðborgarsvæðisins, Stefán Eiríksson, inntur eftir viðbrögðum við þessum skoðunum mínum sem birtust í sama blaði í gær.
Það getur vel verið að lögreglustjórinn sé ósammála mér og öllum kvennahreyfingum landsins um sænsku leiðina og sé hlynntur því að kaup á vændi séu refsilaus. Það er hins vegar afar sérkennileg yfirlýsing af hálfu lögreglustjórans að leiðin sem farin var í vændismálunum hafi ekki verið slæm þar sem breytingar hafi verið gerðar á misneytingarákvæðinu og refsiþyngingarákvæðum!
Bíddu nú við. Þarna er um algerlega ótengd mál að ræða. Hvað kemur gagnrýni á þá leið sem var farin í vændismálunum þeim breytingum við sem gerðar voru á misneytingarákvæðinu og refsiþyngingarákvæðunum? Nákvæmlega ekki neitt.
Það sem ég gagnrýndi
Ég var í áðurnefndu Blaðsviðtali ekki að gagnrýna önnur atriði þessa frumvarps en þau sem snúa að vændismálunum. Gagnrýni mín beindist alls ekki að breytingunum á misneytingarákvæðinu eða refsiþyngingarákvæðunum. Þvert á móti hef ég ítrekað fagnað þeim réttarbótum sem fólust í frumvarpinu en hins vegar sagt að sú leið sem var farin í vændismálunum, um að hafa bæði kaupin og söluna refsilausa, hafi verið slæm. Lögreglustjórinn ákveður hins vegar að svara því ekki efnislega heldur dregur fram óskyldar breytingar sem allir eru sammála um að hafi verið jákvæðar.
Lögreglumennirnir sögðu þetta víst
Varðandi hitt atriðið sem lögreglustjórinn kemur inn á í Blaðinu í dag og lýtur að frásögn minni um að þeir lögreglumenn sem hafi komið fram fyrir vændisnefndina hafi sagt að ef sala á vændi og kaupin væru bæði refsilaus þá myndi það gera lögreglunni erfiðara fyrir að hafa upp á milligönguaðilum..
Það er ósköp einfalt að fara yfir þetta fyrir lögreglustjórann. Ég sat í þessari þverpólitísku nefnd á vegum dómsmálaráðherra um vændismálin sem skilaði skýrslu fyrir ári síðan og lögreglumenninir sem komu fyrir nefndina héldu þessu fram. Áhyggjur þeirra eru mjög lógískar að mínu mati. Ef bæði seljandinn og kaupandinn eru refsilausir þá vantar allan hvata til að starfa með lögreglunni við að finna og saksækja milligönguaðilann. Slíkur hvati væri hins vegar til staðar ef kaupin væru gerð refsiverð í samræmi við sænsku leiðina.
Bara ekki í útlöndum
Að lokum langar mig að nefna misjöfn viðbrögð sumra þingmanna Sjálfstæðisflokksins í þessari umræðu. Það er ekki svo langt síðan að ákveðinn þingmaður Sjálfstæðisflokksins tók vel í erindi um að opinberum starfsmönnum verði bannað kaupa sér kynlíf þegar þeir eru á ferð erlendis. Þingmaðurinn virðist hinsvegar vera tilbúinn að sætta sig við að sömu einstaklingar geti keypt sér kynlíf hér á landi.
Það er margt skrýtið í kýrhausnum.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 20:41 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
20.3.2007 | 16:54
Merkisdagur á Framnesveginum
Í dag er merkisdagur á Framnesveginum. Af því tilefni var hann tekinn snemma. Undirbúningur dagsins hafði átt sér talsverðan aðdraganda og lauk honum í raun ekki fyrr en seint í nótt. Foreldrarnir höfðu kviðið þessum degi í langan tíma enda vissu þeir að kröfurnar voru miklar og síðustu daga höfðu þær ekki gert annað en aukist.
Það var því mikil spenna í lofti á Framnesveginum þegar fjölskyldumeðlimir fóru á stjá um kl. 6:50 í morgun. Þessi dagur er nefnilega afmælisdagur. Og ekki hvaða afmælisdagur sem er heldur er um að ræða stórafmæli. Yngri dóttirin varð tveggja ára í dag. Og spennan var því mikill hjá þeirri stuttu enda spáði hún ekki mikið í síðasta afmæli sitt. En ekki var spennan minni hjá eldri dótturinni sem veit upp á hár hvernig á að halda upp afmæli. Það eiga að vera kökur, blöðrur, gjafir og eitt stykki kóróna.
Foreldrarnir voru annars langt fram á nótt við bakstur enda þarf að baka ofan í heila leikskóladeild enda er venjan að koma með eitthvað í skólann á svona stórum dögum. Afraksturinn var síðan tvær myndarlegar kökur sem hvor um sig hafði um það bil kíló af smartísi og gúmmíböngsum. Það vakti síðan mikla lukku og aðdáun samfélagsins á Dvergasteini þegar faðirinn gekk inn í leikskólann í morgun með risastórar og skærbleikar súkkulaðikökur ásamt tveim rígmontnum systrum.
18.3.2007 | 12:32
Ástæða til að gleðjast
Í gær var stór dagur. Það náðist samkomulag á þinginu um að afnema fyrningarfrest í kynferðisafbrotum gegn börnum.
Ég hef leyft mér fullyrða að þetta eru ein þýðingarmestu lög sem þetta þing samþykkir því þau taka til grundvallarhagsmuna fólks.
Mitt fyrsta þingmál laut að því að afnema þessa fyrningarfresti. Á hverju ári þessa kjörtímabils hef ég svo lagt frumvarpið fram og það var þess vegna sérstaklega ánægjulegt að kjörtímabilið skyldi enda á því að þessi mikilvæga réttarbót næðist fram.
Mjög margir hafa tekið þátt í baráttunni fyrir afnámi fyrningarfrest í kynferðisafbrotum gegn börnum. Samtökin Blátt áfram söfnuðu 23.000 undirskriftum til stuðnings frumvarpi mínu um afnám fyrningar í kynferðisafbrotum gegn börnum. Fjöldinn allur af hagsmunaðilum lýsti yfir stuðningi við þetta baráttumál og nánast öll kvennahreyfingin og barnarverndargeirinn. Og síðan má ekki gleyma þeim einstaklingum sem hafa komið fram í umræðunni og sagt sína sögu. Þeirra framlag er ómetanlegt. Ég er sannfærður um að það hvað almenningur sýndi vilja sinn sterkt í þessu máli hefur haft allt um það að segja að þessi breyting varð að veruleika.
Með þessu skrefi sem nú hefur verið tekið á Alþingi mun réttarvernd barna í samfélaginu aukast til muna. Það er mikilvægt að tekið sé tillit til sérstöðu þessara brota og að komið sé í veg fyrir að kynferðisbrotamenn njóti þess aðstöðumunar sem þeir hafa gagnvart börnunum. Það er einnig afar mikilvægt að þolendur kynferðisbrota fái ekki þau skilaboð frá kerfinu að ekki sé hægt að leita réttar síns vegna tímafresta.
Ég var mjög ánægður með þá þverpólitísku samstöðu sem myndaðist á þinginu um þetta mikla þjóðþrifamál í gær. Við getum öll fagnað þessari niðurstöðu. Þetta mál hlaut enda að vera hafið yfir flokkadrætti.
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (2.2.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 2
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Tenglar
Málin mín á Alþingi
- Afnám fyrningar í kynferðisafbrotum gegn börnum
- Óháðar rannsóknarnefndir
- Lögfesting Barnasáttmála
- Löggjöf um heimilisofbeldi
- Auglýsingar heilbrigðisstétta
- Sérdeild fyrir unga fanga
- Vernd heimildarmanna fjölmiðla
- Líffæragjafir í ökuskírteinum einstaklinga
- Rannsaka þunglyndi eldri borgara
- Sendiráð ESB á Íslandi
- Mistök í heilbrigðiskerfinu
- Fleiri þingmál
Eldri færslur
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Janúar 2009
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
- Desember 2006
- Nóvember 2006
- Október 2006
- September 2006
- Ágúst 2006
- Júlí 2006
- Júní 2006
- Maí 2006
- Apríl 2006
- Mars 2006
- Febrúar 2006
- Janúar 2006
- Desember 2005
- Nóvember 2005
- Október 2005
- September 2005
- Ágúst 2005
- Maí 2005
- Apríl 2005
- Febrúar 2005
- Janúar 2005
- Desember 2004
- Nóvember 2004
- Október 2004
- September 2004
- Ágúst 2004
- Júlí 2004
- Júní 2004
- Maí 2004
- Apríl 2004
- Mars 2004
- Febrúar 2004
- Janúar 2004
- Desember 2003
- Nóvember 2003
- Október 2003
- September 2003
- Ágúst 2003
- Júlí 2003
- Júní 2003
- Maí 2003
- Apríl 2003
- Mars 2003
- Febrúar 2003
- Janúar 2003
- Nóvember 2002
- Október 2002
Póstlisti
Skráðu netfang þitt hér að neðan.
Fólk
- - -
-
Litla fjölskyldan
Breiðfylking jafnaðarmanna
Mikilvægar stofnanir
Hagfræðin
-
Joseph Stiglitz
-
John Kay
-
Paul Krugman
-
Þorvaldur Gylfason
-
Ásgeir Jónsson
-
Tímaritið Economist
-
Seðlabanki Íslands
-
Rannsóknarmiðstöð um efnahagsmál
-
Ríkiskassinn
-
Hagstofan
Lögfræðin
Atvinnulífið
-
Alþýðusambandið
-
Viðskiptaráð Íslands
-
Samtök atvinnulífsins
-
Samtök iðnaðarins
-
Félag kvenna í atvinnurekstri
-
Samtök sprotafyrirtækja
-
Félag íslenskra stórkaupmanna
-
Samtök verslunar og þjónustu
-
Nýsköpunarsjóður atvinnulífsins
-
Impra nýsköpunarmiðstöð
Evrópusamstarf
Hjartans mál
Bloggvinir
- almapalma
- andri
- husmodirivesturbaenum
- arnalara
- ahi
- gusti-kr-ingur
- alfheidur
- arniarna
- asarich
- astan
- heilbrigd-skynsemi
- baldurkr
- bardurih
- kaffi
- bjarnihardar
- masterbenedict
- bleikaeldingin
- salkaforlag
- bryndisfridgeirs
- calvin
- charliekart
- rustikus
- dagga
- deiglan
- dofri
- egill75
- egillg
- eirikurbergmann
- eirikurbriem
- ernafr
- skotta1980
- kamilla
- evropa
- vinursolons
- ea
- fanney
- arnaeinars
- gesturgudjonsson
- gislihjalmar
- grumpa
- gudni-is
- gudbjorgim
- gudfinnur
- mosi
- gummiogragga
- orri
- gudridur
- gudrunmagnea
- zeriaph
- gunnaraxel
- gbo
- coke
- gunnlaugurstefan
- gylfigisla
- holi
- hallurg
- handtoskuserian
- smali
- hannesjonsson
- hhbe
- haukurn
- heidistrand
- heidathord
- latur
- hlf
- tofraljos
- hildajana
- hildurhelgas
- hinrik
- kjarninn
- hlekkur
- hrafnhildurolof
- hrannarb
- hreinsi
- hvitiriddarinn
- hordurj
- hoskuldur
- hoskisaem
- ibbasig
- ingabesta
- ingibjorgstefans
- jara
- iagustsson
- ingo
- id
- jensgud
- jenni-1001
- joik7
- johannst
- skallinn
- joneinar
- joningic
- joninaros
- drhook
- jonthorolafsson
- juliaemm
- julli
- juliusvalsson
- komment
- killerjoe
- hjolaferd
- kjoneden
- kiddirokk
- kristjanmoller
- kvenfelagidgarpur
- lauola
- lara
- presleifur
- korntop
- matti-matt
- mortenl
- olimikka
- omarminn
- pallieinars
- pallkvaran
- pallijoh
- palmig
- robertb
- salvor
- xsnv
- fjola
- sigfus
- siggikaiser
- sigurjonsigurdsson
- stebbifr
- fletcher
- steindorgretar
- ses
- pandora
- kosningar
- svanurmd
- svenni
- saethorhelgi
- sollikalli
- thelmaasdisar
- tidarandinn
- tommi
- unnar96
- sverdkottur
- valdisa
- overmaster
- valgerdurhalldorsdottir
- valsarinn
- vefritid
- vestfirdir
- ver-mordingjar
- tharfagreinir
- steinibriem
- skrifa
- thordistinna
- thorirallajoa