Ástæða til að gleðjast

DomstolarÍ gær var stór dagur. Það náðist samkomulag á þinginu um að afnema fyrningarfrest í kynferðisafbrotum gegn börnum.

Ég hef leyft mér fullyrða að þetta eru ein þýðingarmestu lög sem þetta þing samþykkir því þau taka til grundvallarhagsmuna fólks.

Mitt fyrsta þingmál laut að því að afnema þessa fyrningarfresti. Á hverju ári þessa kjörtímabils hef ég svo lagt frumvarpið fram og það var þess vegna sérstaklega ánægjulegt að kjörtímabilið skyldi enda á því að þessi mikilvæga réttarbót næðist fram.

Mjög margir hafa tekið þátt í baráttunni fyrir afnámi fyrningarfrest í kynferðisafbrotum gegn börnum. Samtökin Blátt áfram söfnuðu 23.000 undirskriftum til stuðnings frumvarpi mínu um afnám fyrningar í kynferðisafbrotum gegn börnum. Fjöldinn allur af hagsmunaðilum lýsti yfir stuðningi við þetta baráttumál og nánast öll kvennahreyfingin og barnarverndargeirinn. Og síðan má ekki gleyma þeim einstaklingum sem hafa komið fram í umræðunni og sagt sína sögu. Þeirra framlag er ómetanlegt. Ég er sannfærður um að það hvað almenningur sýndi vilja sinn sterkt í þessu máli hefur haft allt um það að segja að þessi breyting varð að veruleika.

Með þessu skrefi sem nú hefur verið tekið á Alþingi mun réttarvernd barna í samfélaginu aukast til muna. Það er mikilvægt að tekið sé tillit til sérstöðu þessara brota og að komið sé í veg fyrir að kynferðisbrotamenn njóti þess aðstöðumunar sem þeir hafa gagnvart börnunum. Það er einnig afar mikilvægt að þolendur kynferðisbrota fái ekki þau skilaboð frá kerfinu að ekki sé hægt að leita réttar síns vegna tímafresta.

Ég var mjög ánægður með þá þverpólitísku samstöðu sem myndaðist á þinginu um þetta mikla þjóðþrifamál í gær. Við getum öll fagnað þessari niðurstöðu. Þetta mál hlaut enda að vera hafið yfir flokkadrætti.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jón Agnar Ólason

Ég er ekki alltaf samferðarmaður Samfylkingarinnar í pólitík, en fyrir þetta áttu heiður skilinn. Þörf og löngu tímabær lög.

Vel gert Ágúst, og til hamingju Ísland.

Jón Agnar Ólason, 18.3.2007 kl. 12:36

2 Smámynd: Ómar Örn Hauksson

Til lukku félagi og til lukku með daginn.

Ómar Örn Hauksson, 18.3.2007 kl. 12:47

3 Smámynd: Kristján Kristjánsson

Til hamingju Ágúst Ólafur og allir stjórnmálamenn fyrir að koma þessu máli í gegn. Þetta er mikið réttlætismál sem fáir skilja af hverju er ekki fyrir löngu komið í gegnum þingið. Afleiðingar kynferðisafbrota fyrnast aldrei. Þetta er góður dagur fyrir alþingi og þjóðina :-)

Kristján Kristjánsson, 18.3.2007 kl. 12:55

4 identicon

Svo mælir Björn B. á bloggsíðu sinni: Í dag var sérstaklega tekið fram í fréttum, að frumvarp mitt um breytingar á kynferðisbrotakafla almennra hegningarlaga hefði orðið að lögum með þeirri breytingu, að alvarlegustu brot gegn börnum fyrnast ekki.

Hann á sem sagt heiðurinn af þessu, ekki þú.

Þ.Jónsson (IP-tala skráð) 18.3.2007 kl. 13:11

5 Smámynd: Tómas Þóroddsson

Til hamingju, við erum byrjuð að leiðrétta.

Tómas Þóroddsson, 18.3.2007 kl. 13:14

6 Smámynd: Baldvin Jónsson

Til lukku með þetta Ágúst og takk fyrir seigluna. Þessi færsla Björns B. segir meira um hann en þúsund orð. Það er svo auðvelt að stíga inn í síðasta kafla og ætla að eigna sér bókina.

Baldvin Jónsson, 18.3.2007 kl. 13:37

7 Smámynd: Kristján Jónsson

Glæsilegt frumkvæði hjá þér og til hamingju með niðurstöðuna,

Kristján Jónsson, 18.3.2007 kl. 15:27

8 Smámynd: Sveinn Arnarsson

Þú átt heiður skilinn fyrir ötula baráttu fyrir þessari breytingu. Að aðrir ríkisstjórnarmeðlimir reyni að eigna sér þessa löngu tímabæru breytingu er auðvitað fásinna.

Ég vil óska þér, Samfylkingunni og þjóðinni allri til hamingju með þetta þjóðþrifamál.

Sveinn Arnarsson, 18.3.2007 kl. 16:33

9 Smámynd: Guðmundur Örn Jónsson

Þetta er gott mál, og tími til kominn að þetta færi í gegnum þingið.

Til lukku með þetta Ágúst, þú átt heiður skilinn, enda verið ötulasti talsmaður þess að þetta næði í gegn.

Guðmundur Örn Jónsson, 18.3.2007 kl. 18:16

10 Smámynd: Róbert Björnsson

Vel af sér vikið!  Gott að vita til þess að til eru ungir og dugmiklir leiðtogar á Alþingi sem berjast fyrir hugsjónum sínum og réttlætinu.

Róbert Björnsson, 18.3.2007 kl. 19:12

11 Smámynd: Júlíus  Garðar Júlíusson

Takk fyrir seigluna Ágúst, þetta er það sem skiptir máli...að gefast ekki upp...Til hamingju við öll

Júlíus Garðar Júlíusson, 18.3.2007 kl. 20:28

12 Smámynd: Guðfinnur Sveinsson

Innilega til hamingju með að þetta náði í gegn, kominn tími til!

Þú getur verið stoltur af sjálfum þér!

- Guffi

Guðfinnur Sveinsson, 18.3.2007 kl. 20:36

13 Smámynd: Páll Jóhannesson

Stórt hrós handa þér Ágúst, til hamingju með þetta.

Páll Jóhannesson, 18.3.2007 kl. 22:47

14 Smámynd: Tómas Þóroddsson

Björn Bjarna fyndinn að reyna eigna sér þetta?

Tómas Þóroddsson, 18.3.2007 kl. 23:14

15 Smámynd: Þóra Guðmundsdóttir

"Í gær var stór dagur. Það náðist samkomulag á þinginu um að afnema fyrningarfrest í kynferðisafbrotum gegn börnum."

Þarna sleppir þú " alvarlegustu" Er það vísvitandi? Hvernig er þetta skilgreint ?

Þetta var vissulega þarft og löngu tímabært. En hvers vegna mótmæltir þú ekki lögleiðingu vændis ? 

Þóra Guðmundsdóttir, 19.3.2007 kl. 12:22

16 identicon

Til hamingju með áfangann (ég eigna þér hann fyrir okkar hönd) Ágúst Ólafur.

Kveðja,

Gísli Hjálmar

Gísli Hjálmar Svendsen (IP-tala skráð) 19.3.2007 kl. 19:27

17 Smámynd: Svala Jónsdóttir

Til hamingju með þetta. Vel af sér vikið og sýnir að við megum aldrei gefast upp!

Svala Jónsdóttir, 19.3.2007 kl. 19:41

18 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

Gott mál Ágúst, en ég velti því fyrir mér... hafa barnaníðingar sloppið úr klóm réttvísinnar vegna fyrningar? Er markmiðið e.t.v. frekar að skilaboð löggjafans og samfélagsins séu þau að brot af þessu tagi flokkist með t.d. morði? Gleymist aldrey og fyrirgefist aldrei?

Það hefur komið fram að mjög erfitt geti reynst að færa sönnur á meint brot, jafnvel áratugum eftir að það hafa átt að eiga sér stað. Og rangar sakargiftir í þessum málaflokki eru í raun jafn hryllilegur glæpur.

Dettur upp í kollin ljóðlínur Einars Ben Úr einræðum Starkaðar:

Hve oft leyndist strengur í brjósti sem brast,

við biturt andsvar gefið án saka.

Hve oft iðrast lífið eitt augnakast,

sem aldrei verður tekið til baka. 

Gunnar Th. Gunnarsson, 22.3.2007 kl. 04:03

19 Smámynd: Davíð Gunnarsson

Þetta er bara ekkert annað en frábært - fyrir löngu kominn tími til. Nú þarf bara að þyngja refsingar eða búa til önnur úrræði, þar sem það á við.

Davíð Gunnarsson, 22.3.2007 kl. 10:56

20 identicon

Ég er svo ánægð með þig hvað þú ert sannur og fylginn þér í þínum hugsjónum - traustur og einlægur!! Við erum heppin Íslendingar að hafa þig á þingi Ágúst Ólafur!! kv. Ása.

Ása Gréta (IP-tala skráð) 22.3.2007 kl. 21:12

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Ágúst Ólafur Ágústsson
Ágúst Ólafur Ágústsson

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 4
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 4
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        
Leita í fréttum mbl.is

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband