,,...barnið getur kært það sem eftir er..."

Í Sunnudagskastljósinu var viðtal við Baugalín (Linda Drake) sem beitt var kynferðislegu ofbeldi þegar hún var barn. Viðtalið var mjög sláandi og hefur þá án efa snert taug hjá öllum þeim sem á horfðu. Þolendur kynferðislegs ofbeldis sýna ótrúlegt hugrekki með því að koma fram með sögu sína fyrir alþjóð og það er þeim að þakka að umræðan um þessi mál er talsvert opnari en áður. Það er einnig þeim að þakka að við höfum í sameiningu náð mikilvægum áföngum í baráttunni gegn kynferðislegu ofbeldi í okkar samfélagi.

Í ljósi hins gríðarlega mikilvægs áfanga sem náðist í þinginu á lokadegi þingsins um að afnema fyrningarfresti í kynferðisafbrotum gegn börnum langar mig að draga eitt fram sem Baugalín sagði í lok viðtalsins.

Hún sagði: "…um leið er gífurlegur fælingarmáttur í því gagnvart gerendum sem eru að hugsa svona,  þeir kannski síður gera það sem þeir hugsa ef þeir vita að barnið getur kært það sem eftir er." "…það er svo mikil vernd í þeim lögum fyrir börn."

Þetta er auðvitað hluti af kjarna málsins og því var þessi lagabreyting um afnám fyrningarfrests svo ótrúlega mikilvæg. Það er hins vegar ekki hægt að láta afnám fyrningarfresta í kynferðisafbrotum gegn börnum gilda fyrir brot sem eru nú þegar fyrnt. Þó er mikilvægt að hafa í huga að nýju fyrningarreglurnar gilda í þeim brotum þar sem fyrningarfresturinn er ekki nú þegar hafinn. Þ.e.a.s. ef þolandinn er nú undir 14 ára aldri eða brotin eru enn að viðgangast.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Heiða  Þórðar

Tek heilshugar undir pistilinn

Heiða Þórðar, 27.3.2007 kl. 09:45

2 Smámynd: Thelma Ásdísardóttir

Ég fagna þessum nýju lögum um fyrningarfrestinn.  Ég hefði hiklaust kært mína ofbeldismenn hefðu brotin gegn mér ekki verið fyrnd.  Þó að litlar líkur hefðu verið á ákæru, svo ég tali nú ekki um dóm, þá hefði ég samt kært þó ekki hefði verið til annars en að staðfesta fyrir sjálfri mér, ofbeldismönnunum og fleirum að glæpir hafi verið framdir gegn mér.  Ég held líka að ef þolendum kynferðisglæpa sé gert mögulegt að kæra, gæti það leitt til aukningar á kærum sem aftur geta skilað sér sem þrýstingur á dómskerfið að endurskoða vinnslu þessara mála innan dómskerfisins.

Thelma Ásdísardóttir, 27.3.2007 kl. 10:08

3 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Ég fagna þessum nýju lögum meira en orð fá lýst af sömu ástæðum og Linda og Thelma. 

Sigurður Þór Guðjónsson, 27.3.2007 kl. 11:13

4 Smámynd: Páll Jóhannesson

Góður pistill hjá þér Ágúst. Já vissulega hreyfði þessi Kastljósþáttur við manni svo um munar, og gerir reyndar alltaf, þegar svona sorgarsögur koma upp á yfirborðið. Vonandi verður öll þessi umræða til þess að hjálpa komandi kynslóðum að fyrirbyggja að svona harmleikir eigi sér stað.

Páll Jóhannesson, 27.3.2007 kl. 12:53

5 Smámynd: Jóhann Gunnar Gunnarsson

Góður pistill hjá þér.

Jóhann Gunnar Gunnarsson, 27.3.2007 kl. 14:24

6 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Ég vil bara taka undir hrós til handa þolendum sem hafa lagt líf sitt að veði, með því að koma fram á sjónarsviðið og segja frá þeim hryllingi sem þeir hafa lent í.  Orð Lindu um- mikla vernd í lögunum- er slíkur sannleikur að engum nema þolenda er það fullkomlega ljóst hversu mikilvægt það er.

Ásdís Sigurðardóttir, 27.3.2007 kl. 14:29

7 Smámynd: Guðrún Þóra Hjaltadóttir

Ef þú átt ekki skkilið Fálkaorðuna fyrir að koma þessu í gegn um þingið Ágúst Ólafur þá veit ég ekki hver á þá orðu skilið.

Guðrún Þóra Hjaltadóttir, 27.3.2007 kl. 15:17

8 Smámynd: Inga Lára Helgadóttir

Ég er ánægð með þig Ágúst Ólafur

Inga Lára Helgadóttir, 27.3.2007 kl. 21:29

9 identicon

Mikið er ég hamingjusöm með að þessi lög komust loksins í gegn.  Löngu tímabært   Er mjög sammála þér í þessum pistli þínum og tel að þessi lög auki vernd barna mjög ásamt því að hún eykur sjálfstraust og vald þeirra sem fyrir þessu hafa orðið.  Því nú er ekki valdið af þeim tekið að fá að kæra þegar þau komast á fullorðinsár.

Hjördis Gudlaugsdottir (IP-tala skráð) 31.3.2007 kl. 13:21

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Ágúst Ólafur Ágústsson
Ágúst Ólafur Ágústsson

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (23.4.): 1
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 7
  • Frá upphafi: 144256

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 7
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        
Leita í fréttum mbl.is

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband