5.5.2007 | 21:10
Hvað er búið að gerast undanfarna 10 daga?
Eitthvað er þetta skrýtið, rétt fyrir kosningar, að ganga frá aukinni tannvernd barna. En það er ekki eins og að Framsóknarflokkurinn hafi ekki haft tíma til að ráðast í þetta, búinn að vera í ríkisstjórn stöðugt í 35 ár að 4 árum undanskildum.
Annars er með ólíkindum hvað ríkisstjórnarflokkarnir hafa gengið langt í að lofa útgjöldum inn í framtíðina. Nú er talan yfir kosningavíxla Sjálfstæðis- og Framsóknarflokks komin yfir 400 milljarðar króna á næstu 2 kjörtímabilum.
Þessa dagana fáum við þingmenn mýmarga tölvupósta frá ráðuneytunum um allt það nýjasta sem ráðherrarnir hafa lofað.
Mig langar að deila með ykkur nokkrum tölvupóstum sem ég hef einungis fengið síðastliðna 10 daga frá ráðherrunum en þetta er ekki tæmandi upptalning.
1. Heilbrigðisráðherra semur við Tannlæknafélag Íslands um tannlæknaþjónustu þriggja og tólf ára barna.
2. Menntamálaráðherra og samgönguráðherra undirrita samninga um samstarf menntamálaráðuneytis og samgönguráðuneytis við samtök sveitarfélaga á Norðurlandi eystra, Norðurlandi vestra, Vestfjörðum, Suðurlandi og Suðurnesjum um menningarmál og menningartengda ferðaþjónustu.
3. Heilbrigðisráðherra semur um geðheilbrigðisþjónustu á Sauðárkróki og Ísafirði.
4. Heilbrigðisráðherra tryggir aðgang að bóluefni gegn heimsfaraldri inflúensu.
5. Fjármálaráðherra undirritar kaupsamning um 15,2% hlut ríkisins í Hitaveitu Suðurnesja hf.
6. Heilbrigðisráðherra framlengir þjónustusamning við SÁÁ.
7. Heilbrigðisráðherra eykur styrki til kaupa á næringarefnum og sérfæði.
8. Félagsmálaráðherra undirritar þjónustusamning um málefni fatlaðra og samkomulag um ný búsetuúrræði og eflingu dagþjónustu og dagvist fyrir geðfatlað fólk í Þingeyjarsýslum.
9. Félagsmálaráðherra undirritar samkomulag um verkefni til að fjölga búsetuúrræðum og efla dagþjónustu og dagvist fyrir geðfatlað fólk á Austurlandi.
10. Félagsmálaráðherra undirritar þjónustusamning við Sveitarfélagið Hornafjarð um þjónustu við fatlaða.
11. Menntamálaráðherra úthlutar úr Þróunarsjóði grunnskóla 20 milljónir króna til 35 verkefna.
12. Menntamálaráðherra kynnir stefnu stjórnvalda í byggingarlist.
13. Menntamálaráðherra undirritar samning um samstarf menntamálaráðuneytis og samgönguráðuneytis við 16 sveitarfélög á Norðurlandi eystra um menningarmál og menningartengda ferðaþjónustu.
14. Menntamálaráðherra undirritar samstarfssamning um Orkuháskóla í tengslum við uppbyggingu Háskólans á Akureyri.
15. Heilbrigðisráðherra undirritar reglugerð sem felur í sér að Tryggingastofnun ríkisins er heimilt að taka aukinn þátt í kostnaði við tannlækningar fatlaðra og langveikra barna sem njóta umönnunargreiðslna og vegna tannlæknismeðferða þroskaheftra sem eru 18 ára og eldri.
16. Félagsmálaráðherra setur á fót skrifstofu barna- og fjölskyldumála í félagsmálaráðuneytinu.
17. Heilbrigðisráðherra gefur út stefnumörkun heilbrigðisyfirvalda í gæðamálum til ársins 2010.
18. Utanríkisráðherra og félagsmálaráðherra tilkynna að ríkisstjórnin hafi markað þá stefnu að tekið verði á móti hópi flóttamanna hér á landi á hverju ári.
19. Ríkisstjórnin samþykkir að veita Þjóðminjasafni Íslands 1,5 milljón króna styrk af ráðstöfunarfé sínu til að standa straum af kostnaði safnsins við móttöku á íslenskum munum sem Nordiska museet í Stokkhólmi hyggst afhenda Þjóðminjasafni til varðveislu.
20. Heilbrigðisráðherra veitir SAMAN hópnum Íslensku lýðheilsuverðlaunin 2007 fyrir að leiða saman ólíka aðila til stuðnings íslenskum foreldrum í vandasömu uppeldishlutverki þeirra.
21. Heilbrigðisráðherra skrifar undir samning um stækkun heilsugæslunnar á Siglufirði.
22. Heilbrigðisráðherra ákveður gagngerar endurbætur á Fjórðungssjúkrahúsinu í Neskaupsstað.
Og munið að þetta er bara það sem ég hef fengið tilkynningu um undanfarna 10 daga frá ráðherrunum.
Samið um tannlæknaþjónustu og forvarnarskoðanir 3 og 12 ára barna | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 21:41 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (18)
4.5.2007 | 10:34
Velferðin í forgrunni
Á velheppnuðum landsfundi Samfylkingarinnar var Mona Sahlin nýr formaður sænskra Sósíaldemókrata spurð um ástæðu þess að hún væri sósíaldemókrati. Svar hennar var einfalt og gott. Hún sagðist vera sósíaldemókrati m.a. vegna þess að sú hugmyndafræði byggir á því að öflugt og traust velferðarkerfi sem gefur öllum jöfn tækifæri í lífinu sé forsenda þess að atvinnu og efnahagslífið blómstri.
Með því að veita öllum börnum jöfn tækifæri og gott veganesti í lífinu hvað varðar menntun, heilbrigðisþjónustu og félagslegan stuðning þá sé lagður grunnurinn að því að atvinnulífið blómstri.
Brauðmylsnuhagfræðin
Þetta skilja hægrimenn því miður illa. Og þetta skilningsleysi birtist með áþreifanlegum hætti í auglýsingum Sjálfstæðisflokksins nú þar sem sagt er að þegar öllu sé á botninn hvolft sé traust efnahagslíf helsta velferðarmálið. Þetta er brauðmylsnuhagfræðin sem byggir á því að bjóða þegnunum upp á velferð þegar að vel árar og væntanlega minni velferð þegar að illa árar.
Menntun, heilbrigði og félagsleg velferð eru aldrei annað en kostnaður í hugum hægri manna. Kostnaður sem menn reyna að ná niður með öllum tiltækum ráðum, jafnvel með þeim afleiðingum að eldri borgarar og börn búa við fátækt.
Blár, bleikur, grænn
Velferðarkerfið er hins vegar fjárfesting í fólkinu í landinu rétt eins og menntakerfið okkar samkvæmt hugmyndafræði okkar í Samfylkingunni.
Þess vegna er velferðin grundvöllur þess að atvinnulífið hér geti blómstrað. Á þessu byggir norræna módelið sem Sjálfstæðisflokkurinn þykist kannast við í kosningum þegar að félagshyggjan verður allsráðandi. Og flokkurinn skiptir um ham og er ýmist bleikur eða grænn eftir því við hvern er talað. Gleymum því hins vegar ekki að þetta er marklaust kosningahjal og það sýna verkin undanfarin 12 ár.
Biðlistar og fátækt
Verkin sýna að velferðarmálin eru sannarlega ekki hátt skrifuð, það sýna biðlistar eftir brýnni aðstoð heilbrigðiskerfisins, það birtist í kjörum eldri borgara og það birtist auðvitað í þeirri nöturlegu staðreynd að hér á Íslandi búa mun fleiri fátæk börn hlutfallslega en annars staðar á Norðurlöndum. Þessi börn upplifa ekki jöfn tækifæri og það mun ekki aðeins bitna á þeim heldur íslensku samfélagi í heild sinni þegar fram líða stundar. Það borgar sig nefnilega að fjárfesta í fólkinu í landinu og það hefur afleiðingar að gera það ekki.
Að þessu leyti er grundvallarmunur á stefnu Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar í velferðarmálum.
3.5.2007 | 17:31
Ragnar Reykás og rósastríðið
Undanfarna daga höfum við frambjóðendur Samfylkingarinnar hér í Reykjavík gengið í hús til þess að spjalla við kjósendur og gefa þeim rósir. Þetta framtak hefur tekist mjög vel upp og þessar göngur hafa reynst mjög skemmtilegar. Þetta er góð leið til þess að spjalla við kjósendur og fólk virðist taka þessu framtaki vel. Ég hef gengið í nokkur hverfi, m.a. í Breiðholtinu, Árbæ, miðbænum og í Laugardalnum.
Ég tók eftir því að Gummi Steingríms flokksfélagi minn nefndi það um daginn á blogginu að hann væri svo upptekinn að hann hefði lítinn tíma fyrir bloggið. Ég er honum sammála um það. Og það er auðvitað nokkuð fyndið til þess að hugsa að nú þegar að frambjóðendur allra flokka vilja hvað þeir geta koma sínum sjónarmiðum á framfæri að þá eru þeir svo uppteknir í baráttunni að þeir hafa varla tíma til þess að skrifa. En auðvitað gefur það manni mest að hitta kjósendur augliti til auglitis og sá þáttur baráttunnar fer auðvitað í algjöran forgang.
Ég heyri það líka að fólki finnst kosningabaráttan róleg og jafnvel bragðdauf. Það er þó ekki tilfinning okkar sem förum á milli vinnustaða, því fólk er greinilega mikið að velta kosningum fyrir sér, hugsanlegu stjórnarmynstri að loknum kosningum og við fáum margar spurningar sem mér finnst til marks um það að fólk er svo sannarlega með hugann við kosningarnar.
Ég náði að horfa á kosningaþátt Íslands í dag í gærkvöldi og hafði gaman af. Ég var mjög ánægður með frammistöðu Össurar, enda er með mælskari og skemmtilegri þingmönnum. Ég var hjartanlega sammála nálgun hans á ummælum Ástu Möller. Þar held ég því miður að hafi ekki verið á ferðinni skoðun eins þingmanns, þarna birtist enn á ný tortryggni Sjálfstæðismanna í garð forsetans. Satt að segja furða ég mig á því að Ásta skuli fyrir það fyrsta hafa tekið undir með Reykjavíkurbréfi Moggans (og þar er ég aftur sammála Gumma Steingríms maður á aldrei að taka undir Reykjavíkurbréf!) en ég er ekki síður hissa á því að hún skuli hafa látið hafa sig út í það að mæta í viðtal og draga algjörlega í land með það sem hún hafði sagt fyrr sama dag. Þetta minnti óneitanlega á þann ágæta mann, Ragnar Reykás.
3.5.2007 | 10:27
Syndalisti ríkisstjórnarinnar
Kosningarnar snúast ekki einungis um framtíðina. Þær snúast líka um fortíðina og hvað flokkar hafa gert. Förum yfir 40 atriði sem ríkisstjórnarflokkarnir stóðu að eða komu nálægt.
1. Íraksmálið
2. Fjölmiðlamálið
3. Árni Johnsen og tæknilegu mistökin
4. Falun Gong
5. Byrgismálið
6. Skipun félaga sinna í Hæstarétt
7. Brot á jafnréttislögum við þessar skipanir og fleiri
8. Baugsmálið
9. "Innmúraður og innvígður"
10. "Ónefndi maðurinn"
11. Eftirlaunafrumvarpið
12. "Sætasta stelpan á ballinu og eitthvað sem gerir svipað gagn"
13. "Þær hefðu hvort sem er orðið óléttar"
14. "Jafnréttislögin eru barns síns tíma"
15. Eitt hæsta matvælaverð í heimi
16. Eitt hæsta lyfjaverð í heimi
17. Einu hæstu vextir í heimi
18. Kosið gegn lækkun á skatti á lyfjum
19. Kosið gegn afnámi vörugjalda á matvælum
20. Kosið gegn 75.000 kr. frítekjumarki fyrir eldri borgara og öryrkja
21. Staðið gegn því að láta samkeppnislög gilda um landbúnaðinn
22. Verðbólguskattur
23. Aukin skattbyrði á 90% þjóðarinnar
24. Óbreytt landbúnaðarkerfi
25. Falleinkunn í hagstjórn frá nær öllum innlendum og erlendum sérfræðingum
26. 5000 fátæk börn
27. 400 eldri borgarar á biðlista
28. 170 börn á biðlista eftir þjónustu Barna- og unglingageðdeildar.
29. Aukinn ójöfnuður
30. 8.500 börn sem hafa ekki farið til tannlæknis í 3 ár
31. Frumvarp um að heimila símhleranir án dómsúrskurðar
32. 24 ára reglan í útlendingalögunum
33. Kaup á sendiherrabústað sem kostaði jafnmikið og það kostar að reka meðal framhaldsskóla
34. Skertur réttur almennings til gjafsóknar
35. Launaleynd viðhaldið
36. Trúfélög fengu ekki heimild til að gifta samkynhneigða
37. Ísland í 16. sæti af 30 OECD þjóðum þegar kemur að framlögum til framhaldsskóla
38. Ísland í 21. sæti af 30 OECD þjóðum þegar kemur að framlögum til háskólana
39. Kaup á vændi ekki gerð refsiverð
40. Sami kynbundni launamunurinn í 12 ár
Og svona mætti lengi telja.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 11:00 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (10)
1.5.2007 | 22:50
Copy Paste í Kastljósi
Í Kastljósþætti kvöldsins var m.a. rætt um skattamál. Á svona skömmum tíma var erfitt að komast yfir mörg efnisatriði. Og umræðan verður enn erfiðari þegar menn neita að horfast í augu við staðreyndir. Árni Mathiesen fjármálaráðherra ber enn höfðinu við steininn og neitar að viðurkenna vaxandi ójöfnuð í samfélaginu.
Sömuleiðis virðist hann búinn að gleyma eigin svörum á Alþingi sem innihéldu m.a. þær upplýsingar að skattbyrði 90% þjóðarinnar hafi þyngst á sama tíma og 10% tekjuhæstu einstaklingarnir hafa notið léttari skattbyrði.
Grundvallarhugmyndafræði Samfylkingarinnar í skattamálum byggir á einföldu og sanngjörnu kerfi þar sem heildarskattbyrði eykst ekki frekar. Kerfið er nú hvorki einfalt né sanngjarnt.
Við viljum byrja á að mæta hagsmunum aldraðra og öryrkja með því að lækka skatta á lífeyrissjóðsgreiðslum úr 36% í 10% og stuðla að því lífeyrisþegar geti unnið án þess að lenda í harkalegum skerðingum eins og nú er reyndin. Við megum ekki gleyma að þriðji hver eldri borgari lifir undir fátæktarmörkum. Það er skammarlegt fyrir okkur Íslendinga að svo illa sé búið að eldri borgurum.
Þá viljum við lækka virðisaukaskatt á lyfjum en Framsóknarflokkurinn og Sjálfstæðisflokkurinn kusu gegn tillögum þess efnis fyrir aðeins 5 mánuðum síðan. Kosningaloforð þeirra sem koma inn á þessi mál teljast því varla trúverðug.
Þá þurfa fjölskyldur að vera í forgrunni hjá næstu ríkisstjórn. Samfylkingin hefur í fjögur ár í röð lagt fram frumvarp um afnám stimpilgjalda. Enn hefur það ekki fengist samþykkt. Við erum sömuleiðis ein um það á Alþingi að hafa lagt fram tillögur um að afnema vörugjöld af matvælum. Slíkt myndi lækka framfærslukostnað fjölskyldna verulega. Skattleysismörkin viljum við hækka í áföngum.
Annars fannst mér fróðlegt hversu samstíga Árni Mathiesen og Jón Sigurðsson, formaður Framsóknar voru í þættinum. Þetta var bara Copy Paste.
Stjórnmál og samfélag | Breytt 2.5.2007 kl. 16:32 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (28)
30.4.2007 | 11:01
Á hvaða lista eru um 1% þjóðarinnar?
Biðlistarnir í velferðarkerfinu er ein besta ástæðan fyrir því að skipta þarf hér um ríkisstjórn. Auðvitað sýnir það kolranga forgangsröðun að láta 170 börn vera á biðlista eftir þjónustu Barna- og unglingageðdeildar eða 400 eldri borgara vera í brýnni þörf eftir hjúkrunarrými. Eða tæplega 300 börn sem eru látin bíða eftir greiningu hjá Greiningarstöð ríkisins í allt að þrjú ár.
Þá eru 650 námsmenn á biðlista eftir húsnæði. Og ekki má gleyma þeim 3.145 Íslendingum sem eru á biðlista eftir þjónustu á Landspítalanum en það er meira en 1% af þjóðinni! Svona mætti lengi telja.
Þessir biðlistar snerta nánast allar fjölskyldur í landinu. Og þeir snerta samvisku þjóðarinnar sem á ekki að sætta sig við biðlistapólitík ríkisstjórnarflokkanna.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 13:31 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (11)
28.4.2007 | 09:06
Spurning á laugardagsmorgni
Ég tók eftir því að formaður Framsóknarflokksins sagði þegar hann skipti út stjórnarformanni Landsvirkjunnar að það væri nú "ástæða til að skipta um eftir rúman áratug og það væri þannig með stjórnir, nefndir og ráð að það væri heppilegt að skipta með hæfilegum og skynsamlegum fresti."
Á þetta ekki líka við um stjórnmálaflokk sem er búinn að vera stöðugt í ríkisstjórn í 35 ár, að fjórum árum undanskildum? Eða annan ónefndan stjórnmálaflokk sem er búinn að vera í ríkisstjórn í 16 ár? Maður bara spyr svona á laugardagsmorgni.
27.4.2007 | 10:40
Bleyjupakki ríkisstjórnarinnar
Auðvitað verður fólk vart við hinn sívaxandi ójöfnuð. Þennan ójöfnuð má að stórum hluta rekja til ákvarðana þessarar ríkisstjórnar. Í valdatíð ríkisstjórnarinnar hefur einungis einn tekjuhópur upplifað minni skattbyrði en áður. Það er sá hópur sem er með allra mestu tekjurnar, fólk með meira en 1,2 milljón kr. á mánuði. Skattbyrði allra hinna, 90% þjóðarinnar, hefur þyngst.
En svar Sjálfstæðismanna vegna sívaxandi skattbyrði hefur ætíð verið á þá lund að tekjur fólks hafi aukist og því aukist skattbyrðin.
Af hverju gerist það sama ekki erlendis?
En hvernig má vera að fólkið í topp 10% tekjuskalanum upplifir minni skattbyrði þrátt fyrir að tekjur þeirra hafi einnig aukist?
Og hvernig má vera að í löndunum í kringum okkur þar sem tekjurnar hafa einnig aukist er fólk ekki að upplifa þyngri skattbyrði?
Við skulum muna hvernig skattlækkanir ríkisstjórnarinnar hafa skipst á milli borgaranna. Þær skattalækkanir sem voru samþykktar 2005 skiptust þannig að 25% tekjuhæstu fengu 2,5 milljarð kr. í sinn snúð en 25% tekjulægstu 300 milljónir kr. eða næstum 10 sinnum lægri upphæð.
Bleyjupakki vs. utanlandsferð
Skattalækkanir þessa sama árs færðu grunnskólakennara með meðallaun um 1.900 kr. í skattalækkun sem nægir rúmlega fyrir einum bleyjupakka á mánuði.
En á meðan fékk maður með milljón á mánuði um 23.000 kr. í skattalækkun mánaðarlega eða ígildi einnar utanlandsferðar í hverjum mánuði.
Þessu til viðbótar hefur ríkisstjórn markvisst haldið skattleysismörkunum niðri.
Ríkisstjórnin hefur flutt æ stærri hlut af byrðinni yfir á venjulega fólkið í landinu og því hefur ójöfnuður aukist.
Fólk telur ójöfnuð meiri nú | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
26.4.2007 | 14:38
Hugur til atvinnulífsins
Þetta eru ánægjuleg tíðindi. Ég skrifaði ekki fyrir löngu grein sem ég kallaði ,,Allir vilja vinna í banka" þar sem ég dró fram skoðun mína að bankarnir væru mjög spennandi og eftirsóknarverður starfsvettvangur fyrir ungt fólk. Þessi könnun sýnir það. Framtíð þessa lands byggist á hugviti og mannauði og á það eigum við stjórnmálamennirnir að veðja.
Tillögur Samfylkingarinnar á Sprotaþinginu um daginn sýndu hug Samfylkingarinnar til þekkingariðnaðarins en á því þingi kusu frumkvöðlar og bissnessmenn á milli tillagna stjórnmálaflokkanna um þekkingariðnaðinn. Skemmst er frá því að segja að tillögur Samfylkingarinnar lentu í þremur efstu sætunum.
Annað sem Samfylkingin leggur áherslu á er jafnvægi í efnahagskerfinu en það hefur ekki verið til staðar í valdatíð Sjálfstæðisflokksins eins og allir vita. Sömuleiðis er Samfylkingin á móti geðþóttaákvörðunum stjórnmálamanna eins og þær birtast þegar fjármálaráðherra Sjálfstæðisflokksins ákveður að banna ákveðnum fjármálafyrirtækjum að gera upp í erlendri mynt út af andstöðu sinni og Davíðs við Evrópusambandið.
Yfir þúsund störf urðu til í fjármálastarfsemi á síðasta ári | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
25.4.2007 | 13:20
Kona forseti Frakklands?
Það stefnir í spennandi kosningar í Frakklandi. Þessar kosningar verða sögulegar fyrir margar sakir. Ein þeirra er sú staða að forseti Frakklands verður hugsanlega í fyrsta skipti kona. Royal höfðar mjög sterkt til mín og eftir að hafa fylgst lítillega með baráttunni verð ég sannfærðari um þar fari sterkasti frambjóðandinn í þessum kosningum. Ég er að sama skapi mjög hrifinn af þessu franska fyrirkomulagi við forsetakosningar. Tvær umferðir eru af hinu góða þegar velja á forseta landsins.
Annars er mjög fróðlegt að fylgjast með framgangi mjög öflugra kvenna í stjórnmálum samtímans. Við erum ekki bara að tala um Royal í Frakklandi heldur einnig Nancy Pelosi og Hillary í Bandaríkjunum, Monu Sahlin í Svíþjóð og Helle Thorning-Schmidt í Danmörku.
Íslendingar geta einnig tekið þátt í þessari þróun með áþreifanlegum hætti þann 12. maí með því að gera Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur að forsætisráðherra.
24.4.2007 | 22:21
2 samviskuspurningar
Mikið var ég ánægður með mitt fólk í sjónvarpinu í kvöld. Jóhanna Sig sýndi sína góðu takta og sannar að það stenst hana enginn snúninginn þegar kemur að velferðarmálunum. Þar er hún einfaldlega á heimavelli og í algjörum sérflokki. Björgvin var einnig mjög góður í umræðum um menntamálin, enda hefur hann lagt ríka áherslu á þau og er mjög öflugur í þeim málaflokki eins og öðrum.
Þessir tveir málaflokkar birta vel nauðsyn þess að skipta hér um ríkisstjórn. Ríkisstjórnin hefur einfaldlega staðið sig illa í velferðarmálunum og hefði auðveldlega getað gert mun betur í menntamálum. Það sýnir samanburður á framlögum til grunnskólans, sem sveitarstjórnir landsins reka, og svo framlag til háskóla- og framhaldskólana sem ríkið rekur.
Kjósendur þurfa að svara a.m.k. tveimur grundvallarspurningum fyrir kosningar.
Sú fyrri er hvort að fólk vilji ríkisstjórn sem er ábyrg fyrir því að Ísland er í 21. sæti af 30 helstu iðnríkjum heims þegar kemur að opinberum útgjöldum í háskólana og hvort að fólk sé sátt við það að Ísland sé í 16. sæti þegar borin eru saman opinber úgjöld til framhaldsskóla.
Sú síðari varðar velferðarmálin og aðbúnað aldraðra. Vill fólk ríkisstjórn sem er ábyrg fyrir því að um 400 eldri borgarar eru í brýnni þörf eftir hjúkrunarrýmum og um 1.000 eldri borgara eru í þvingaðri sambúð með kolókunnugu fólki? Munum að það eru fjölmörg dæmi um eldri hjón sem hafa verið aðskilin á ævikvöldi sínu vegna skorts á búsetuúrræðum en þau eru á ábyrgð ríkisstjórnarinnar.
24.4.2007 | 11:03
Munur á tillögum Samfylkingar og Sjálfstæðisflokks
Hún er merkileg grein Ólafs Ólafssonar, formanns Landssambands eldri borgara og Einars Árnasonar hagfræðings sem birtist í Mogganum í dag. Þar lýsa þeir vel hversu skammt tillögur Sjálfstæðisflokksins í málefnum eldri borgara ná í raun og veru. 25.000 kr. útspil Geirs Haarde verður að 7.500 kr. þegar tekið er tillit til skatta og skerðinga sama manns.
Og hitt stóra útspil Sjálfstæðisflokksins í málaflokknum um breytt skerðingarhlutfall hækkar tekjur eldri borgara um heilan þúsund kall. Þetta er nú allt örlætið sem Geir og félagar sýna eftir áratuga vanrækslu.
50.000 kr. Samfylkingarinnar vs. 8.500 kr. Sjálfstæðisflokksins
Á meðan munu tillögur Samfylkingarinnar í málefnum eldri borgara skipta fólk raunverulegu máli. Að lækka skatta á lífeyrissjóðstekjum úr tæpum 36% og niður í 10% ásamt 100.000 kr. frítekjumarki sem bæði nær til atvinnutekna og lífeyrissjóðstekna mun auka tekjur einstaklings sem hefur 100.000 kr. úr lífeyrissjóði um 50.000 kr. á mánuði. Það er alvöru upphæð.
Enn á ný ætti valið að vera auðvelt þann 12. maí.
23.4.2007 | 15:38
Flestir treysta Samfylkingunni
Könnun sem Capacent vann fyrir Samfylkinguna sýnir að kjósendur treysta Samfylkingunni best allra flokka til að hrinda í framkvæmd umbótum í velferðarmálum, verðlagsmálum og jafnréttismálum.
Kjósendur treysta Samfylkingunni best flokka til að afnema kynbundinn launamun, eyða biðlista eftir hjúkrunarrýmum og afnema stimpilgjöld svo nokkur dæmi séu nefnd.
Jafnmargir treysta Samfylkingunni og Sjálfstæðisflokknum til að lækka matvælaverð. Þetta voru þau málefni sem höfðu mestan hljómgrunn meðal kjósenda samkvæmt þessari könnun. Könnun Capacent var gerð í gegnum síma, úrtakið var 1900 manns og var svarhlutfallið 73%.
22.4.2007 | 21:01
Ísland í 23. sæti af 30
Mér finnst að menntamál eigi að verða kosningamál út af þremur ástæðum. Sú fyrsta er að menntun er grundvöllur framfara þjóðarinnar. Önnur ástæðan er að menntakerfið er jöfnunartæki framtíðarinnar. Sú þriðja er að við erum ekki að standa okkur nógu vel í menntamálum.
Förum yfir nokkrar staðreyndir því til stuðnings:
1. Hlutfall Íslendinga á aldursbilinu 25-34 ára sem hafa lokið framhaldsskólanámi er 68% en á hinum Norðurlöndunum er þetta 86-96% samkvæmt nýjustu skýrslu OECD um menntamál. Meðaltalið í OECD er 77% og í ESB 78%. Ísland í 23. sæti af 30 OECD þjóðum og eru því borgarar flestra iðnríkja heims menntaðri en Íslendingar.
2. 40% þeirra sem eru á íslenskum vinnumarkaði eru með grunnskólapróf eða minna. Á hinum Norðurlöndunum er þetta hlutfall 12-19%.
3. Hlutfall Íslendinga á aldursbilinu 25-34 ára sem hafa lokið háskólanámi er 31% en á hinum Norðurlöndunum er þetta 35-42%. Meðaltalið í OECD er 31%. Við erum hér í 17. sæti af 30 þjóðum.
4. Þegar kemur að opinberum útgjöldum í háskólana er Ísland er í 21. sæti af 30 þjóðum.
5. Og þegar kemur að opinberum útgjöldum í framhaldsskólana er Ísland í 16. sæti og eru flestar samanburðarþjóðir okkar fyrir ofan okkur.
Ríkisrekna skólakerfið vs. skólakerfi sveitarfélaga
En dæmið snýst við þegar kemur að þeim skólastigum sem sveitarfélögin reka, þ.e. grunnskólarnir og leikskólarnir.
Ísland er nánast á toppnum þegar kemur að fjárfestingum í þessi skólastig en það hafa einmitt verið jafnaðarmenn í Reykjavík, Hafnarfirði, Akranesi, Árborg o.s.frv. sem hafa rekið flesta þessa skóla undanfarinn áratug. Þannig hefur okkar fólk sýnt viljann sinn í menntamálum í verki. En þau skólastig sem ríkisstjórnin rekur, þ.e. framhaldskólarnir og háskólarnir, eru fjársvelt.
Að lokum minni ég á að einn stjórnmálaflokkur, Sjálfstæðisflokkurinn, hefur haft menntamálaráðuneytið í 21 ár af síðustu 24 árum. Niðurstaðan af þeirri valdatíð er sú að við erum að útskrifa færri en aðrir, verja minna fjármagni en aðrir og höfum meira brottfall en flestar þjóðir Evrópu.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 21:03 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (10)
20.4.2007 | 11:01
Í hvaða hverfi borgarinnar má finna 16 leikskóla?
Ég fór í fermingu í gær í Grafarvoginum. Sóknin í Grafarvoginum er ein sú stærsta í landinu og ég held að séra Vigfús Þór muni þurfa að ferma langt fram á sumar. Það er með ólíkindum hvað margir búa í Grafarvoginum en um daginn heimsótti ég 16 leikskóla, aðeins í því hverfi. Grafarvogurinn er orðinn um 20.000 manna byggð sem er svipaður fjöldi og er á öllu Eyjafjarðarsvæðinu.
Í fermingunni var annars heilmikið rætt við mig um þetta risastökk sem Samfylkingin tók í skoðanakönnun Gallups sem var birt í gær en flokkurinn hækkaði sig um heil 6% á einni viku. Ég er sannfærður um að nú sé flokkurinn kominn á siglingu. Kosningabaráttan gengur mjög vel og málstaður okkar virðist ná vel til kjósenda.
Enda hefur aldrei verið eins mikil þörf á því að hugmyndir Samfylkingarinnar nái að komast til framkvæmda, hugmyndir um stórbætt kjör eldri borgara, öryrkja og barnafólks, hugmyndir um raunverulegt jafnrétti kynjanna og byggðanna, hugmyndir um öflugan þekkingariðnað og hugmyndir um ódýrara Ísland, Fagra Ísland og Unga Ísland þar sem börnin eru sett í forgang.
Að lokum minni ég á fjölskylduhátíð Samfylkingarinnar sem verður haldinn á morgun, laugardag, í Húsdýragarðinum. Allir velkomnir og ókeypis í tækin. Jibbíí.
17.4.2007 | 10:50
Hvað var samþykkt á landsfundi Samfylkingarinnar?
Landsfundur Samfylkingarinnar lauk um helgina. Margvísleg málefnavinna var unnin á landsfundinum og var stefnan mótuð til tveggja ára. Mig langar að draga fram nokkra stefnupunkta og setja þá í samhengi við hina flokkana. Samfylkingin vill m.a.:
1. Fella niður tolla af matvælum í áföngum í samráði við hagsmunaaðila. Samfylkingin er eini flokkurinn á þingi sem hefur lagt þetta til.
2. Afnema stimpilgjöld af lánum vegna húsnæðiskaupa. Samfylkingin hefur í mörg ár lagt slíkt frumvarp fram en Sjálfstæðis- og Framsóknarflokkur hafa aldrei viljað samþykkja það.
3. Afnema vörugjöld af matvælum. Sjálfstæðis- og Framsóknarflokkur skildu eftir meira en helming vörugjaldanna. Vinstri grænir eru á móti niðurfellingu þessara vörugjalda.
4. Skapa hagstætt rekstrarumhverfi fyrir fyrirtæki í fjármálaþjónustu sem standist fyllilega samkeppni við það sem best gerist í öðrum löndum. Vinstri grænir hafa lagt til hækkun á fjármagnstekjuskatti.
5. Lækka virðisaukaskatt af lyfjum úr 24,5% í 7%. Samfylkingin lagði þessa tillögu fram fyrir jól og bæði Framsóknar- og Sjálfstæðisflokkur kusu gegn þessari tillögu.
6. Hefja áratug hátækninnar með samræmdum aðgerðum í þágu þekkingariðnaðarins. Tillögur Samfylkingarinnar um þekkingariðnaðinn lentu í þremur efstu sætunum á Sprotaþingi þegar allir flokkarnir voru beðnir að leggja fram þrjár tillögur.
7. Fjórfalda framlag í Rannsóknarsjóð og Tækniþróunarsjóð á næstu 4 árum.
8. Hverfa frá miðstýringu í landbúnaði, auka frelsi bænda til þróunar,fullvinnslu og markaðsetningu matvæla og skapa ný tækifæri til atvinnuþróunar. Hér hefur Samfylkingin sem fyrr sérstöðu á alla hina flokkana t.d. Vinstri græna sem hafa ítrekað varið þetta gamla landbúnaðarkerfi sem er bæði neytendum og bændum í óhag.
9. Að ríkið minnki kynbundinn launamun um helming á næsta kjörtímabili. Markmiðið verður að útrýma honum að fullu. Á sama tíma og Ingibjörg Sólrún minnkaði kynbundinn launamun um helming í borginni minnkaði ríkisstjórnin kynbundinn launamun ekki um krónu.
10. Afnema launaleynd.
11. Gera kaup á vændi refsivert. Það vill Sjálfstæðisflokkurinn ekki.
12. Tryggja rétt samkynhneigðra til að ganga í hjónaband. Þessu treystu Sjálfstæðis- og Framsóknarflokkur sér ekki að gera á þingi þrátt fyrir vilja Samfylkingarinnar.
13. Byggja 300-400 ný hjúkrunarrými á næstu átján mánuðum. Bygging og rekstur hjúkrunarrýma er á ábyrgð ríkisstjórnarinnar og hér hefur Framsóknar- og Sjálfstæðisflokkur gjörsamlega mistekist.
14. Lækka skatta á lífeyrissjóðsgreiðslum úr 35,72% í 10%. Er mikið réttætismál enda er langstærsti hluti lífeyrissjóðsgreiðslna sparnaður. Þetta yrði stórfellt kjarabót fyrir marga eldri borgara. Þriðji hver eldri borgari lifir undir fátæktarmörkum.
15. Hækka frítekjumark vegna tekna aldraðra í 100.000. kr. á mánuði. Það gildi jafnt um lífeyrissjóðs- og atvinnutekjur. Leið ríkisstjórnarinnar gerir einungis ráð fyrir 25.000 kr. frítekjumarki sem eingöngu miðar við atvinnutekjur. Stóra kjarabótin felst í að láta frítekjumarkið ná einnig til lífeyrissjóðstekna.
16. Bæta tannvernd barna m.a. með ókeypis eftirliti. Um 8.500 börn hafa ekki farið til tannlæknis í 3 ár. Það gerist á vakt þessarar ríkisstjórnar.
17. Lengja fæðingarorlofið í eitt ár og tryggja börnum einstæðra foreldra sama rétt og öðrum börnum til samvista við foreldra.
18. Tryggja að öll börn geti tekið þátt í íþrótta-, tómstunda- og félagsstarfi, sem og listnámi. Þetta var eitt af því fyrsta sem Samfylkingin gerði þegar hún komst til valda í Hafnarfirði. Samkvæmt skýrslu forsætisráðherra er barnafátækt er helmingi meiri á Íslandi en á hinum Norðurlöndunum.
19. Tryggja að skólagjöld verði ekki tekin upp í almennu grunn- og framhaldsnámi við opinbera háskóla.
20. Bjóða upp á ókeypis námsbækur í framhaldsskólum. Samfylkingin er eini flokkurinn sem lofar þessu. Er svona t.d. í Danmörku.
21. Breyta 30% námslána í styrk að loknu námi. Samfylkingin hefur lagt þetta á þingi en Framsóknar- og Sjálfstæðisflokkur hafa ekki viljað samþykkja það.
22. Afnema ábyrgðarmannakerfi námslána. Samfylkingin hefur lagt þetta á þingi en Framsóknar- og Sjálfstæðisflokkur hafa ekki viljað samþykkja það.
23. Greiða námslán út mánaðarlega. Samfylkingin hefur lagt þetta á þingi en Framsóknar- og Sjálfstæðisflokkur hafa ekki viljað samþykkja það.
24. Setja ákvæði um þjóðaratkvæðagreiðslur í stjórnarskrá. Þetta vildu Sjálfstæðismenn ekki í stjórnarskrárnefndinni.
25. Taka Ísland af lista hinna vígfúsu þjóða.
26. Að Ísland sæki um aðild að Evrópusambandinu og hefji aðildarviðræður. Samfylkingin er eini flokkurinn á Íslandi sem hefur þessa stefnu en allir helstu meginstjórnmálaflokkar Evrópu hafa haft það á stefnuskrá sinni að vera aðilar að Evrópusambandinu.
27. Efna til náins samstarfs milli ríkisins, aðila vinnumarkaðarins og sveitarfélaga um aðgerðir á sviði efnahags- og félagsmála sem myndað geti þjóðarsátt um nýtt jafnvægi í efnahagsmálum. Tryggja jafnvægi og ábyrgð í hagkerfinu sem er forsenda þess að vextir og verðbólga lækki til muna og gengisstöðugleiki aukist. Því almenningur þarf að borga reikninginn fyrir síendurtekin hagstjónarmistök ríkisstjórnarinnar með verðbólguskatti. Nánast hver einasta greiningardeild, innlend og erlend, hefur álitið ríkisstjórnina hafa gert þessi hagstjórnarmistök. Það er því ekki bara Samfylkingin sem heldur þessu fram.
28. Koma á ábyrgri fjármálastjórn hjá ríkinu, endurskoða skipulag við gerð fjárlaga og eftirlit með framkvæmd þeirra. Fjárlög ríkisstjórnarinnar árin 2000-2004 gerðu ráð fyrir 82 milljarða króna afgangi af ríkissjóði en þegar reikningurinn var gerður upp kom í ljós 8 milljarða króna halli. Skekkjan þessi ár var því upp á 90 milljarða króna. Ofsalega fín fjármálastjórn hjá Geir Haarde eða hitt þó heldur.
29. Ákvarðanir um stórvirkjanir og tengdar framkvæmdir verði teknar með tilliti til umhverfissjónarmiða og jafnvægis í efnahagsmálum.
30. Tryggja sjálfstæði Seðlabankans og hverfa frá pólitískum ráðningum í embætti Seðlabankastjóra. Bæði Sjálfstæðisflokkur og Framsóknarflokkur hafa stundað þennan ósóma allt fram á síðasta dag.
Óttalega finnst mér valið vera augljóst þann 12. maí ef þessi listi og samanburður er skoðaður.
Að lokum langar að mig að benda á að kosningavíxlar ríkisstjórnarflokkanna eru talsvert dýrari en áherslur Samfylkingarinnar.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 15:27 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
14.4.2007 | 00:47
Geta karlar líka verið forsetar?
Það var hreint út sagt ótrúlegt að vera á landsfundi Samfylkingarinnar í dag. Um 1.300 manns í Egilshöll, baráttuandinn sveif yfir vötnum og góð pólitík rædd.
Ingibjörg Sólrún dró vel fram stefnumál hins eina sanna jafnaðarflokks Íslands þar sem áherslan var m.a. lögð á stórbætt kjör eldri borgara, öryrkja og barnafjölskyldna, raunverulegt jafnrétti milli kynjanna og byggða landsins ásamt áherslum á þekkingariðnaðinn og fagra og unga Ísland. Þetta eru málin sem skipta máli. Og þetta eru áhersluatriðin sem Samfylkingin hefur sérstöðu í.
En það var einnig ótrúlega eftirminnilegt að sjá þær á sviðinu, Ingibjörgu Sólrúnu með Monu Sahlin formanni sænska jafnaðarmannaflokksins og Helle Thorning-Schmidt formanni danska jafnaðarmannaflokksins.
Mér finnst skipta miklu máli að þrír formenn jafnaðarmannaflokka á Norðurlöndum séu konur og það sem meira er að þessar þrjár konur geta allar orðið forsætisráðherrar innan skamms ef kjósendur vilja það. Kyn skiptir nefnilega máli.
Ég gleymi því ekki þegar 4 ára dóttir mín spurði hvort karlar gætu líka verið forsetar á vinnustað pabba. Fyrirmyndir og sýnileiki kvenna í valdastöðum er því ómetanlegur fyrir svo margar.
Það þarf konu til að koma jafnaðarmannastjórn að völdum" | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 03:48 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)
13.4.2007 | 09:42
Hundur í óskilum
Í dag hefst landsfundur Samfylkingarinnar í Egilshöll og verður mikið um að vera. Við fáum þungavigtargesti á landsfundinn. Mona Sahlin, formaður sænska jafnaðarmannaflokksins og Helle Thorning-Schmidt, formaður danska jafnaðarmannaflokksins munu ávarpa fundinn við setningu hans kl. 16 í dag.
Allt áhugafólk um stjórnmál er hvatt til að mæta og hlusta á þessa öflugu stjórnmálaleiðtoga.
Annars hefst málefnastarfið kl. 13 í dag og eru landsfundarfulltrúar hvattir til að taka þátt í því. Sveitastjórnarráð Samfylkingarinnar heldur sinn fund á landsfundinum ásamt 60+ og Kvennahreyfingunni. Ungliðarnir verða sömuleiðis áberandi á fundinum.
Fjölmargir spennandi frummælendur verða á landsfundinum. Má þar nefna Þórólf Árnason forstjóra SKÝRR, Svöfu Grönfeldt rektor Háskólans í Reykjavík, Bjarna Ármannsson forstjóra Glitnis, Einar Kárason rithöfund, Dagný Ósk Aradóttur formann Stúdentaráðs, Viðar Hreinsson, forstöðumann ReykjavíkurAkademíunnar og Amal Tamimi, fræðslufulltrúa Alþjóðahúss.
En það verður ekki bara pólitík á landsfundinum heldur einnig skemmtanir og fjör. Hundur í óskilum, Baggalútur og Sprengjuhöllin munu spila. Þá munu Fóstbræður og Sigrún Hjálmtýsdóttir syngja. Síðan verður haldið lokahóf á laugardagskvöldinu á Grand Hótel þar sem Jafnaðarmannabandið Suðsuðvestur mun m.a. troða upp.
Sem fyrr tek ég fram að fólk þarf ekki að vera skráðir landsfundarfulltrúar eða flokksfélagar til að geta mætt á landsfundinn og fylgst með. Hvet því fólk til að kíkja upp í Egilshöll í dag og á morgun.
12.4.2007 | 16:03
Hið rétta um hagvöxtinn
"Fullyrt er að hvergi í Evrópu sé meiri hagvöxtur en á Íslandi og atvinnuleysi með því minnsta sem þekkist. Í framhaldi af því er dregin sú ályktun að lítill hagvöxtur og mikið atvinnuleysi sé ESB og evrunni að kenna. Gangi Íslendingar í ESB og taki upp evru bíði okkar ekkert annað en lítill hagvöxtur og atvinnuleysi að evrópskri fyrirmynd. Þetta er alrangt.
Það er rétt að hagvöxtur á Íslandi hefur verið þokkalegur síðustu ár. En þegar leiðrétt er fyrir svokölluðu kaupmáttarjafnvægi og hagvöxtur á Íslandi settur í alþjóðlegt samhengi er árangur okkar í besta falli sæmilegur. Þetta kom t.m.a. fram í máli Michaels Porter sem var heimsókn hér landi sl. haust. Ríki eins og Spánn, Írland og flest lönd í Austur-Evrópu standa sig betur en við. Nágrannar okkar annars staðar á Norðurlöndum ná svipuðum árangri og við að meðaltali en hagvöxturinn hér er mun sveiflukenndari en þar. Þetta þýðir að samkeppnishæfni okkar er minni en þeirra."
Þetta segir Bjarni Már Gylfason, hagfræðingur Samtaka iðnaðarins m.a. í mjög góðri grein sem birtist á vef samtakanna. Ennfremur segir Bjarni m.a.:
"Við þurfum m.ö.o. að vinna miklu meira en flestir aðrir til að halda uppi landsframleiðslunni og góðum lífskjörum í landinu. Ríki eins og Frakkland, Þýskaland og Ítalía, þar sem efnahagslífið er í rúst að mati andstæðinga ESB hér á landi, ná betri efnahagsárangri á þennan mælikvarða en við. Skyldi þetta hafa eitthvað með aðild þessara landa að ESB að gera? Reyndar eru smáríki, sem nota evru, ofarlega á þessum lista til dæmis Írland, Belgía og Lúxemborg sem trónir á toppnum."
11.4.2007 | 14:01
Nýmæli í íslenskri pólitík
Í morgun var ég fundarstjóri á afar fjölmennum fundi Samfylkingarinnar um efnahagsmál. Tilefnið var að faglegur starfshópur á vegum Samfylkingarinnar var að skila af sér ítarlegri og fróðlegri greinargerð um stöðu efnahagsmála. Þar er einnig greint frá þeim mistökum sem hafa valdið hér ofþenslu og ójafnvægi síðustu ára og lagðar eru til nokkrar skynsamar aðgerðir í hagstjórninni.
Það var mjög gaman að taka þátt í þessari vinnu en ýmsir sérfræðingar komu að gerð þessa rits sem verður að teljast vera nýmæli í íslenskri pólitík.
Ritstjóri og formaður Hagráðsins, eins og við köllum það, er Jón Sigurðsson, fyrrverandi forstjóri Norræna fjárfestingarbankans, ráðherra og seðlabankastjóri.
Það er mikill akkur fyrir stjórnmálaflokk að hafa aðgang að framúrskarandi sérfræðingum á sviði hagstjórnar.
Við í Samfylkingunni vitum að efnahagsmál eru dauðans alvara og það er grundvallaratriði að hér sé stunduð skynsamlega hagstjórn. Á það hefur mjög vantað enda gætu lífskjör allra verið enn betri en þau eru núna ef ekki hefði komið til hagstjórnarmistaka hins opinbera.
Hér fyrir neðan má finna nokkur stikkorð frá Jóni Sigurðssyni sem notuð voru til að kynna ritið góða en þau eru langt frá því tæmandi:
- Íslenska hagkerfið í miklu ójafnvægi
- Viðskiptahalli aldrei meiri
- Afar háir vextir, óstöðugt gengi
- Verðbólgan 2-3 falt meiri en verðbólgumarkmið
- Stefnir í halla á ríkissjóði á næsta ári
- Hættumerki á alþjóðlegum fjármálamarkaði
- Ennfremur þarf að bæta fyrir vanrækslusyndir á sviði félagsmála og kjarajöfnunar
- Samstillingu vantar í hagstjórnina
- Nýtt og betra vinnulag þarf við hagstjórnina
- Bæta fjárlagagerð og eftirlit með framkvæmd
- Stefna að þjóðarsátt um efnahags- og félagsmál
- Peningamálastjórn með verðbólgumarkmiði, fljótandi gengi og stýrivöxtum ekki gefið góða raun
- Verðbólgumarkmið hafa ekki náðst
- Stýrivextir Seðlabanka 14,25% - aldrei hærri
- Vaxtamunur milli Íslands og helstu markaðslanda -aldrei meiri
- Gengi krónunnar hefur sveiflast afar mikið
- Evru-aðild sem markmið gæti verið kjölfesta fyrir hagstjórnina
- Tekjuafgangur og lækkun ríkisskulda vegna tekna af ofþenslu og eignasölu, fremur en vegna árangurs í útgjaldastjórn
- OECD og IMF gagnrýna skattalækkun og útgjaldaauka ríkisins 2006 og 2007
- Halli á ríkissjóði framundan
- Hagstjórn hafi áhrif á tímasetningu og umfang stórframkvæmda með tilliti til þjóðarhags og umhverfis
- Árin 1995-2006 jókst hlutur ríkisins í vaxandi þjóðartekjum - úr 32% í 41%
- Hlutfall skatta hjá fólki með lágar og miðlungstekjur hefur hækkað
- Ójöfnuður í skiptingu ráðstöfunartekna heimilanna hefur aukist
- Kjör lífeyrisþega og barnafjölskyldna hafa dregist aftur úr
- Heildarendurskoðun þarf á skattkerfi og lífeyriskerfi
- Sanngjarnari niðurjöfnun skatta nauðsyn - án þess að skattar í heild hækki
- Létta skattbyrði fólks með lágar tekjur
- Samræma skatta af fjármagnstekjum og lífeyri
- Þarf að borga sig fyrir lífeyrisþega að afla tekna
- Sérstakt átak til að bæta aðbúnað og umönnun aldraðra og öryrkja
- Bæta kjör barnafjölskyldna og hækka barnabætur
- Markmiðið að útrýma fátækt á Íslandi
- Fákeppni, háir óbeinir skattar á innflutning og hár fjármagnskostnaður halda uppi háu verðlagi
- Stuðlum að samkeppni með opnun markaða í alþjóðlegu samstarfi
- Skerpum framkvæmd samkeppnislaga
- Samkeppnislög nái til allra atvinnugreina
- Landbúnaðarkerfið með miðstýringu á framleiðslu og verðmyndun veldur miklu um hátt matvælaverð
- Framleiðslustyrkir landbúnaðar binda allt of mikið fé á fjárlögum
- OECD mælir með verulegri lækkun framleiðslustyrkja til landbúnaðar
- Hverfum frá framleiðslutengdum styrkjum, ofurtollum og sköttum á innflutta matvöru - í samstarfi við bændur
- Aðlögun að nýjum framleiðsluháttum með öflugum stuðningi við starfsmenntun og stofnun nýrra fyrirtækja
- Framleiðslustyrkir landbúnaðar binda allt of mikið fé á fjárlögum
- OECD mælir með verulegri lækkun framleiðslustyrkja til landbúnaðar
- Hverfum frá framleiðslutengdum styrkjum, ofurtollum og sköttum á innflutta matvöru - í samstarfi við bændur
- Aðlögun að nýjum framleiðsluháttum með öflugum stuðningi við starfsmenntun og stofnun nýrra fyrirtækja
- Viðskiptafrelsi mikilvæg forsenda framfara
- Aðild að ESB vænleg leið til þess að brjótast út úr stöðnuðu landbúnaðarkerfi
- Íslenskir bændur fengju öflugan stuðning úr sjóðum ESB ef til aðildar kæmi
- ESB aðild fylgdi mikil lækkun matvælaverðs og aukin samkeppni neytendum til hagsbóta
Hagstjórnarvandi næstu ríkisstjórnar verður ærinn | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 20:25 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (11)
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (2.2.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 2
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Tenglar
Málin mín á Alþingi
- Afnám fyrningar í kynferðisafbrotum gegn börnum
- Óháðar rannsóknarnefndir
- Lögfesting Barnasáttmála
- Löggjöf um heimilisofbeldi
- Auglýsingar heilbrigðisstétta
- Sérdeild fyrir unga fanga
- Vernd heimildarmanna fjölmiðla
- Líffæragjafir í ökuskírteinum einstaklinga
- Rannsaka þunglyndi eldri borgara
- Sendiráð ESB á Íslandi
- Mistök í heilbrigðiskerfinu
- Fleiri þingmál
Eldri færslur
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Janúar 2009
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
- Desember 2006
- Nóvember 2006
- Október 2006
- September 2006
- Ágúst 2006
- Júlí 2006
- Júní 2006
- Maí 2006
- Apríl 2006
- Mars 2006
- Febrúar 2006
- Janúar 2006
- Desember 2005
- Nóvember 2005
- Október 2005
- September 2005
- Ágúst 2005
- Maí 2005
- Apríl 2005
- Febrúar 2005
- Janúar 2005
- Desember 2004
- Nóvember 2004
- Október 2004
- September 2004
- Ágúst 2004
- Júlí 2004
- Júní 2004
- Maí 2004
- Apríl 2004
- Mars 2004
- Febrúar 2004
- Janúar 2004
- Desember 2003
- Nóvember 2003
- Október 2003
- September 2003
- Ágúst 2003
- Júlí 2003
- Júní 2003
- Maí 2003
- Apríl 2003
- Mars 2003
- Febrúar 2003
- Janúar 2003
- Nóvember 2002
- Október 2002
Póstlisti
Skráðu netfang þitt hér að neðan.
Fólk
- - -
-
Litla fjölskyldan
Breiðfylking jafnaðarmanna
Mikilvægar stofnanir
Hagfræðin
-
Joseph Stiglitz
-
John Kay
-
Paul Krugman
-
Þorvaldur Gylfason
-
Ásgeir Jónsson
-
Tímaritið Economist
-
Seðlabanki Íslands
-
Rannsóknarmiðstöð um efnahagsmál
-
Ríkiskassinn
-
Hagstofan
Lögfræðin
Atvinnulífið
-
Alþýðusambandið
-
Viðskiptaráð Íslands
-
Samtök atvinnulífsins
-
Samtök iðnaðarins
-
Félag kvenna í atvinnurekstri
-
Samtök sprotafyrirtækja
-
Félag íslenskra stórkaupmanna
-
Samtök verslunar og þjónustu
-
Nýsköpunarsjóður atvinnulífsins
-
Impra nýsköpunarmiðstöð
Evrópusamstarf
Hjartans mál
Bloggvinir
- almapalma
- andri
- husmodirivesturbaenum
- arnalara
- ahi
- gusti-kr-ingur
- alfheidur
- arniarna
- asarich
- astan
- heilbrigd-skynsemi
- baldurkr
- bardurih
- kaffi
- bjarnihardar
- masterbenedict
- bleikaeldingin
- salkaforlag
- bryndisfridgeirs
- calvin
- charliekart
- rustikus
- dagga
- deiglan
- dofri
- egill75
- egillg
- eirikurbergmann
- eirikurbriem
- ernafr
- skotta1980
- kamilla
- evropa
- vinursolons
- ea
- fanney
- arnaeinars
- gesturgudjonsson
- gislihjalmar
- grumpa
- gudni-is
- gudbjorgim
- gudfinnur
- mosi
- gummiogragga
- orri
- gudridur
- gudrunmagnea
- zeriaph
- gunnaraxel
- gbo
- coke
- gunnlaugurstefan
- gylfigisla
- holi
- hallurg
- handtoskuserian
- smali
- hannesjonsson
- hhbe
- haukurn
- heidistrand
- heidathord
- latur
- hlf
- tofraljos
- hildajana
- hildurhelgas
- hinrik
- kjarninn
- hlekkur
- hrafnhildurolof
- hrannarb
- hreinsi
- hvitiriddarinn
- hordurj
- hoskuldur
- hoskisaem
- ibbasig
- ingabesta
- ingibjorgstefans
- jara
- iagustsson
- ingo
- id
- jensgud
- jenni-1001
- joik7
- johannst
- skallinn
- joneinar
- joningic
- joninaros
- drhook
- jonthorolafsson
- juliaemm
- julli
- juliusvalsson
- komment
- killerjoe
- hjolaferd
- kjoneden
- kiddirokk
- kristjanmoller
- kvenfelagidgarpur
- lauola
- lara
- presleifur
- korntop
- matti-matt
- mortenl
- olimikka
- omarminn
- pallieinars
- pallkvaran
- pallijoh
- palmig
- robertb
- salvor
- xsnv
- fjola
- sigfus
- siggikaiser
- sigurjonsigurdsson
- stebbifr
- fletcher
- steindorgretar
- ses
- pandora
- kosningar
- svanurmd
- svenni
- saethorhelgi
- sollikalli
- thelmaasdisar
- tidarandinn
- tommi
- unnar96
- sverdkottur
- valdisa
- overmaster
- valgerdurhalldorsdottir
- valsarinn
- vefritid
- vestfirdir
- ver-mordingjar
- tharfagreinir
- steinibriem
- skrifa
- thordistinna
- thorirallajoa