Hverju ætla Frjálslyndir að stjórna?

Nú er talsverð umræða um áherslur Frjálslynda flokksins í innflytjendamálum en Frjálslyndir hafa sagt að þeir ætli sér að stjórna hverjir komi til landsins frá EES-ríkjunum út af einhverjum undanþágum sem þeir telja sig lesa úr EES-samningnum. Af því tilefni birti ég hér brot úr mjög fróðlegum pistli sem Árni Páll Árnason, lögmaður og frambjóðandi Samfylkingarinnar, birti á heimasíðu sinni.

Þar segir Árni:

"Staðreyndin er sú að engin slík undanþága er fyrir hendi. Hin almenna regla 28. gr. EES-samningsins er að frelsi launþega til flutninga skuli vera tryggt í aðildarríkjunum og að í því felist afnám allrar mismununar milli launþega „sem byggð er á ríkisfangi og lýtur að atvinnu, launakjörum og öðrum starfs- og ráðningarskilyrðum“.

Í 112. gr. samningsins eru almenn ákvæði um öryggisráðstafanir, sem ætlað er að gera samningsaðilum kleift að bregðast við því ef upp koma „alvarlegir efnahagslegir, þjóðfélagslegir eða umhverfislegir erfiðleikar í sérstökum atvinnugreinum eða á sérstökum svæðum“. Slíkar öryggisráðstafanir „skulu vera takmarkaðar, að því er varðar umfang og gildistíma, við það sem telst bráðnauðsynlegt til þess að ráða bót á ástandinu“ segir ennfremur í greininni.

Í 113. gr. er mælt fyrir um að unnt sé að grípa til þessara ráðstafana að höfðu samráði við aðra samningsaðila og í henni felst samningsskylda um að leita samkomulags við aðra samningsaðila um viðeigandi viðbrögð.

 Í 114. gr. segir að ef „öryggisráðstöfun, sem samningsaðili hefur gripið til, veldur misvægi milli réttinda og skyldna samkvæmt samningi þessum getur hver hinna samningsaðilanna gripið til jafn umfangsmikilla jöfnunarráðstafana gagnvart fyrrnefndum samningsaðila og bráðnauðsynlegar eru til að jafna umrætt misvægi.“

Yfirlýsing Íslands
Í tengslum við samningsgerðina lýstu íslensk stjórnvöld þeirri túlkun sinni að Ísland gæti nýtt þessar heimildir ef af framkvæmd samningsins myndi leiða „alvarlega röskun jafnvægis á vinnumarkaði vegna meiri háttar flutninga starfsfólks sem beinast að sérstökum svæðum, störfum eða atvinnugreinum“.

Þessi yfirlýsing er hins vegar einhliða yfirlýsing Íslands, sem bindur ekki hendur viðsemjenda okkar. Og jafnvel þótt hún gerði það eru skilyrði hennar ekki uppfyllt. Það hefur ekki orðið „alvarleg röskun jafnvægis á vinnumarkaði“. Þvert á móti: Vinnumarkaðurinn er í jafnvægi því atvinnuleysi er ekkert.

Engin undanþága
Það er öllum læsum mönnum ljóst að í þessum ákvæðum felst engin „undanþága .. sem samið var um í EES-samningnum, varðandi innflutning verkafólks“ eins og segir í auglýsingu Frjálslynda flokksins. Við getum gripið til aðgerða til að verjast alvarlegum efnahagslegum eða þjóðfélagslegum erfiðleikum, en við þurfum að bera þær aðgerðir undir viðsemjendur okkar og eiga við þá samstarf um þær. Ef þær hafa mikil áhrif, mega þeir beita samsvarandi aðgerðum gagnvart okkur. Með öðrum orðum: Ef við beitum þessu ákvæði til að takmarka innflutning verkafólks verðum við að takmarka innflutning frá öllum aðildarríkjunum og þau geta þá takmarkað heimildir okkar til að nýta okkur frjálsa för til launavinnu eða náms í aðildarríkjunum.

Ef við förum þá leið að takmarka innflutning erlends vinnuafls eiga viðsemjendur okkar samningsbundinn rétt til að beita sams konar aðgerðum gagnvart Íslendingum sem nú eru að störfum eða við nám í Evrópusambandsríkjunum. Viljum við það?"


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Árni Gunnarsson

Ólíklegt þykir mér að umræða okkar Frj.l. um málefni innflytjenda ylli þvílíkum usla sem raun ber vitni í sálarlífi fjórflokksins ef raunin er þessi. Ég ætla að leyfa mér efasemdir þar til annað verður beinlínis sannað. En ef svo reynist þá er kominn tími á aðra umræðu og sú er ekki minna verð. Ef tilvitnaður samningur við EES hefur tekið af okkar þjóð allt forræði yfir samfélagslegum meginþáttum held ég að ástæða sé til að staldra við áður en stærri skref verða stigin í sömu átt. Trúboð Samfylkingarinnar um inngöngu í ESB er mjög greinilega mál sem ég mælist þá til að verði beðið með að afgreiða bara si sona. Ég er nefnilega af þeirri kynslóð sem man glöggt daginn þann þegar Ísland fagnaði lýðveldistöku eftir nærri þúsund ára búsetu þjóðarinnar í landinu.

Árni Gunnarsson, 3.4.2007 kl. 23:32

2 Smámynd: Inga Lára Helgadóttir

Málflutningur þeirra í Frjálslynda byggist held ég eingöngu á þeirra fordómum samansafn af einstaklingum sem eru ekki viðræðuhæfir því þetta er bara tilfinningahitamál hjá þeim.

Ég skrifaði sjálf ummálefni útlendinga á mitt blogg, þá fyst hvernig þeir sköpuðu hagvöxt og hagfræðingar Kaupþings hafa reiknað út að innflytjendur draga úr verðbólgu okkar um 1% og rúmlega það. Miðað við höfðatölu, þá fá fá þeir minna út úr ríkinu en við íslendingar, svo það er ekki rétt að þeir leggist meira á spenann en við. Og það sama á við félagsþjonustuna... 

Inga Lára Helgadóttir, 4.4.2007 kl. 11:44

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Ágúst Ólafur Ágústsson
Ágúst Ólafur Ágústsson

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.5.): 0
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 10
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 10
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  
Leita í fréttum mbl.is

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband