Í hvaða hverfi borgarinnar má finna 16 leikskóla?

grafarvogurÉg fór í fermingu í gær í Grafarvoginum. Sóknin í Grafarvoginum er ein sú stærsta í landinu og ég held að séra Vigfús Þór muni þurfa að ferma langt fram á sumar. Það er með ólíkindum hvað margir búa í Grafarvoginum en um daginn heimsótti ég 16 leikskóla, aðeins í því hverfi. Grafarvogurinn er orðinn um 20.000 manna byggð sem er svipaður fjöldi og er á öllu Eyjafjarðarsvæðinu.

Í fermingunni var annars heilmikið rætt við mig um þetta risastökk sem Samfylkingin tók í skoðanakönnun Gallups sem var birt í gær en flokkurinn hækkaði sig um heil 6% á einni viku. Ég er  sannfærður um að nú sé flokkurinn kominn á siglingu. Kosningabaráttan gengur mjög vel og málstaður okkar virðist ná vel til kjósenda.

Enda hefur aldrei verið eins mikil þörf á því að hugmyndir Samfylkingarinnar nái að komast til framkvæmda, hugmyndir um stórbætt kjör eldri borgara, öryrkja og barnafólks, hugmyndir um raunverulegt jafnrétti kynjanna og byggðanna, hugmyndir um öflugan þekkingariðnað og hugmyndir um ódýrara Ísland, Fagra Ísland og Unga Ísland þar sem börnin eru sett í forgang.

Að lokum minni ég á fjölskylduhátíð Samfylkingarinnar sem verður haldinn á morgun, laugardag, í Húsdýragarðinum. Allir velkomnir og ókeypis í tækin. Jibbíí. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Inga Lára Helgadóttir

Hugsaðu líka út í það Ágúst (sem ég veit reyndar að þú gerir) að þegar fer að fjölga stöðugt í þjóðfélaginu og lífaldur fer hækkandi, þá er nauðsynlegt að stofnanir geri ráð fyrir því, og þeir sem stofnununum stjórna það þarf að gera áætlanir samkvæmt mannfjöldasmám til að mæta þessari aukningu

Gleðilegt sumar bloggfélagi 

Inga Lára Helgadóttir, 20.4.2007 kl. 11:33

2 Smámynd: Hlynur Jón Michelsen

 

Það var 1982 sem borgarstjóri vor og foringi Davíð Oddsson tók fyrstu skóflustunguna að nýju borgarhverfi í Grafaarvogi eftir 4 ára stöðnun í Reykjavík árana. 1978-1982 verður varla minnst í annálum framtíðarinnar nema ef vera skildi minnst á útitaflið í Lækjargötu.  

Hlynur Jón Michelsen, 20.4.2007 kl. 14:26

3 identicon

Ágúst ... 6 prósentustig!

Það er ekki það sama og 6% ...

kveðja,

GHS

Gísli Hjálmar (IP-tala skráð) 20.4.2007 kl. 17:29

4 Smámynd: Inga Lára Helgadóttir

Ertu nokkuð hættur að skrifa Ágúst Ólafur ? ég er eiginlega að bíða eftir að fá lesefni dagsins og þú skuldar mér núna nokkra daga

Inga Lára Helgadóttir, 22.4.2007 kl. 15:53

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Ágúst Ólafur Ágústsson
Ágúst Ólafur Ágústsson

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 14
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 14
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        
Leita í fréttum mbl.is

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband