Viltu vera líffæragjafi? Notum ökuskírteinin.

liffæragjöfVissir þú að á Íslandi eru líffæragjafir fátíðari en annars staðar á Norðurlöndunum? Vissir þú að hér á landi fara helmingi fleiri einstaklingar árlega á biðlista eftir líffærum en þeir sem fá líffæri? Og vissir þú að á Vesturlöndum deyja nú fleiri sjúklingar sem bíða líffæragjafar en þeir sem fá líffæri? Vegna þessara staðreynda hef ég nú lagt fram þingmál sem lýtur að því að gera upp upplýsingar um vilja til líffæragjafa sem aðgengilegastar. Og sú leið sem ég hef valið er að sá vilji komi fram í ökuskírteinum einstaklinga.

Það er vandfundin betri leið en að notast við upplýsingar á ökuskírteini viðkomandi og er það t.d. gert í Bandaríkjunum. Skráning þessara upplýsinga á ökuskírteinum er einnig heppileg þar sem það eru oft látnir ökumenn sem koma til greina sem líffæragjafar.

Með því að áskilja slíka skráningu á ökuskírteini þarf fólk að ákveða hvort það kærir sig um að gefa líffæri. Hér á landi hafna ættingjar líffæragjöf ættmenna sinna í um 40% tilvika en á Spáni er þetta hlutfall helmingi lægra. Það er því ástæða að auðvelda upplýsingargjöf viðkomandi einstaklings hvort hann kæri sig um að gefa líffæri sín eða ekki.

Það er mjög mikilvægt að fjölga íslenskum líffæragjöfum en hver líffæragjöf getur bjargað allt að sex mannslífum. Fram til ársins 1991 gátu Íslendingar einungis þegið líffæri frá öðrum þjóðum en ekki lagt þau til sjálfir skv. lögum.

Nú er bara vonandi að þetta mál fljúgi í gegnum þingið og af hverju ekki? Það er ætlast til að þingið afgreiði eitt stykki stjórnarskrárfrumvarp á 4 dögum.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Mér finnst þetta aldeilis frábær hugmynd hjá þér.  Ég hef oft velt fyrir mér hvaða leiið væri best í þessum málum, og datt helst í hug að þegar að heimilislæknir myndi hafa þetta inni hjá sér ásamt öðrum grunnupplýsingum um mann.  Ég fékk einhverntímann eitthvað kort í apóteki til að hafa í veskinu sem að sást að ég vildi vera líffæragjafi(ég má því miður ekki lengur gefa v/krabbameins), en ökuskíreini eru snilld- ég vona að þetta fljúgi í gegn á þingi

Þórdís tinna (IP-tala skráð) 13.3.2007 kl. 13:45

2 identicon

Ágúst, ég vona að þetta hafi ekki farið framhjá evrópukrata eins og þér, en nú eru ökuskírteinin sem við notum af samræmdri EES gerð.

Innihalda skírteinin sömu upplýsingar, hvaða land svo sem gefur þau út.

Okkur er því vart heimilt að breyta skírteinunum til að bæta þessum upplýsingum við án þess að öll EES lönd geri það.

Geir (IP-tala skráð) 13.3.2007 kl. 15:10

3 Smámynd: Ágúst Ólafur Ágústsson

Sæll Geir

Takk fyrir athugasemd þína en ég tel að það sé svigrúm að setja slíkar upplýsingar í ökuskírteini.

Eins og kemur fram í þingmálinu segir í 47. gr. reglugerðar um ökuskírteini, nr. 501/1997 að ökuskírteini skuli vera af EES-gerð í samræmi við ákvæði I. viðauka. Í reglugerðinni og viðaukum hennar kemur síðan fram að viðbótarupplýsingar geti verið í ökuskírteini, t.d. innlendar tákntölur sem eingöngu gildi innan viðkomandi lands.

Þannig að þetta ætti ekki að vera vandamál.

Bestu kveðjur,
Ágúst Ólafur

Ágúst Ólafur Ágústsson, 13.3.2007 kl. 16:21

4 identicon

Mjög þarft þingmál,þetta er stórmál,sem varðar hagsmuni okkar allra.Vona að þetta nái fram að ganga sem allra fyrst.

Kristján Pétursson (IP-tala skráð) 13.3.2007 kl. 20:20

5 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Þurfa ekki að fara fram einhverjar umræður um þetta efni? Hafa þær nokkurn tíma verið. Og getur ekki verið að Íslendingar vilji ekki endilega gefa líffæri. Þeir vita um möguleikann en nota hann ekki meira en raun er á. Er ekki tekið mark á viljanum nema hann sá sá að gefa líffæri? Svo er fólki eiginlega stillt upp við vegg: ef það gefur ekki líffæri er það ekki gott fólk. þetta er ekki sagt hreint út en er svona meiningin samt. Það er nánast verið að þvinga fólk til að gefa líffæri án nokkurrar umræðu um málið og ýmsar siðferðilegar hliðar þess. Og þarna stendur þú fremstur í flokki.

Sigurður Þór Guðjónsson, 21.3.2007 kl. 22:14

6 identicon

Finnst samt vanta eitt mikilvægt atriði í þetta mál.

Hvað með þá sem eru ekki með bílpróf og hafa þar af leiðandi ekki ökuskírteini.....þeir eru farþegar í bílum og því miður lenda þeir oft með ökumanni í slysum svo og öðrum slysum.þeir gætu líka verið viljugir til að gefa líffæri.Hvar á það að koma fram?

Og svo þarf að ræða þetta innan þjóðfélagsins,það eru margir sem eru tilbúnir í þetta en margir sem eru það ekki.....og hvað með börn og unglinga sem eru ekki komin með próf?Eða á þetta bara a ðná til þeirra sem eru með bílpróf?

Júlíus Már Baldursson (IP-tala skráð) 23.3.2007 kl. 01:13

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Ágúst Ólafur Ágústsson
Ágúst Ólafur Ágústsson

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.4.): 2
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 6
  • Frá upphafi: 144260

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 6
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        
Leita í fréttum mbl.is

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband