Samfylkingin lætur verkin tala í jafnréttismálum

jafnrettisvogJafnréttismál verða að vera kosningamál í vor. Samfylkingin mun leggja sitt af mörkum til að svo megi verða. Á þessu kjörtímabili hefur Samfylkingin reglulega tekið jafnréttismál upp á þingi og bent á nauðsynlegar aðgerðir en einnig gagnrýnt ítrekuð brot ríkisstjórnarflokkanna á jafnréttislögunum í tengslum við stöðuveitingum. Til að undirstrika mikilvægi málaflokksins vill Samfylkingin að jafnréttismálin verði sett undir forsætisráðuneytið svo þau verið höfð til hliðsjónar í öllum málaflokkum.

Minnkuðum kynbundinn launamun um helming 
Samfylkingin hefur barist gegn launleynd sem viðheldur kynbundnum launamun. Undir stjórn Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur tókst að minnka kynbundinn launamun um helming í Reykjavík. Á sama tíma tókst ríkisstjórninni hins vegar ekki að minnka kynbundinn launamun um krónu.

Við höfum lagt til breytingar á fæðingarorlofslöggjöfinni með Katrínu Júlíusdóttur og Jóhönnu Sigurðardóttur í broddi fylkingar. Við mótmæltum harkalega skerðingu ríkisstjórnarinnar á valfrelsi kvenna varðandi fæðingar þegar MFS-einingunni (meðganga, fæðing, sængurlega) var lokað í vetur.

Samhljómur milli Samfylkingarinnar og kvennahreyfinganna 
Þá er fullkominn samhljómur milli Samfylkingarinnar og hina fjölmörgu kvennahreyfinga í landinu þegar kemur að kynbundnu ofbeldi og höfum við lagt til á þingi að sett verði sérstakt lagaákvæði um heimilisofbeldi.

Samfylkingin er eini flokkurinn sem státar af konu sem formanni og það skiptir máli. Þrír fyrstu þingflokksformenn Samfylkingarinnar voru konur. Nánast helmingur allra kvenna sem var kosinn á þing í síðustu kosningum komu úr einum flokki, Samfylkingunni. Á sama tíma var kynjahlutfallið Sjálfstæðisflokksins var 18 - 4 í síðustu kosningum, körlum í vil.

Samfylkingin ætlar að halda áfram að berjast fyrir jafnrétti og í vor ætlum við saman að ná fram þeim sögulega árangri að gera konu að forsætisráðherra í fyrsta skipti.

Jafnrétti kynjanna er sameiginlegt úrlausnarefni karla og kvenna. Við þurfum aðgerðir í jafnréttismálum. Og þær aðgerðir mun Samfylkingin framkvæma. Samfylkingin meinar það sem hún segir þegar kemur að jafnréttismálum. Og það er vert að minnast þess á alþjóðlega baráttudegi kvenna.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Hvernig væri nú að fara tala um jafnrétti út frá sjónarmiðum beggja kynja?

  Ég sem er félagi í Samfylkingunni er orðinn mjög þreyttur á endalausu tali um jafnrétti, en einungis út frá hagsmunum kvenna!

   Hvernig væri að tala um þá hundruði ef ekki þúsundir feður sem er meinað að sjá börnin sín!

   Hvernig væri að hleypa af stokkum átak sem hefði slagorðið "Mæður hættum að beita börn okkar ofbeldi".  

  Félagslegur flokkur talar um félagsleg málefni, eða hvað??

  Er það ekki félagslegt málefni þegar um helmingur meðlagsgreiðenda er í vanskilum?

 Hvað með ofbeldi??

 Langflestir þeir sem verða fyrir alvarlegu ofbeldi er karlmenn!!

 Hvað er endalaust talað um. Ofbeldi gagnvart konum.

 Í skólum landsins er strákar eftirbátar stelpna í öllum greinum!

  Hvar er umræðan sem var hér fyrir nokkrum árum um að strákum væri gert hátt undir höfði, og þess vegna væru þeir að standa sig í skólanum?? Hún er að sjálfsögðu ekki til staðar, vegna þess að þetta átti enga stoð í raunveruleikanum!!

   Sömu aðilar og töluðu um þetta á "faglegum forsendum" þaga þunnu hljóði í dag, þó að munurinn á líðan og árangri kynjanna hafi aldrei verið meiri!!!

  Hvernig væri nú að vera raunverulegur talsmaður jafnréttis?!

Guðmundur (IP-tala skráð) 8.3.2007 kl. 16:56

2 Smámynd: Kristján Pétursson

Ingibjörg Sólrún Gíslad.hefur allt frá sínum fyrstu afskiptum af stjónmálum verið í fararbroddi ísl.kvenna varðandi  almenn réttlætis - og baráttumál kvenna og kynbundin launamismun.Hún sýndi það sannarlega í verki þegar hún var borgarstj.

Ég trúi því ekki að konur séu búnar að gleyma öllum þeim kvenréttinda - og jafnréttismálum,sem hún hefur staðið fyrir.Staða Samfylkingarinnar nú í skoðanakönnunum er ekki í neinu samræmi við stefnu og stöðu flokksins í landsmálum.Þetta kosningahopp VG aðalega á kosnað Samfylkingarinnar  virðist byggjast á umhverfis - og náttúruverndarmálum er afar óverðskuldað,sé miðað við  Fagra Ísland stefnu Samfylkingarinnar.

Ágæta Samfylkingarfólk,sem ein samstyllt  fylking getum við sigrað

Kristján Pétursson, 8.3.2007 kl. 17:05

3 identicon

Eru ekki einhverjir kratar eftir sem geta endurvakið Alþýðuflokkinn?  Þessi ófreskja sem gleypti minn gamla flokk er eins og snýtt útúr nösunum á kvennalistanum, Jóni Baldvin og Guðmundi Árna hefur verið skipt út fyrir tvær kvennalistakellingar,  Tvær veruleikafyrrtar kvennalistakellingar sem svífa um á bleiku skýi og halda að það sem heitast brenni á heimilum landmanna sé klám og vændi, eða þá kynferði stjórnarmanna stórfyrirtækja, nefndarmanna hjá ríkinu eða forstöðumanna ríkisstofnanna. 

 Ekki veit ég hvernig hægt var að klúðra þessari sameiningu með jafn afgérandi hætti og raunin hefur orðið, en hitt veit ég að þessi áhersla leiðtoga flokksins á að fullnægja hvötum frústreðaðra miðaldra háskólamenntaðra kvenna mun aldrei skila sér í því að flokkurinn komist til áhrifa .  Þetta er þegar orðin fullkomin sneypuför fólks sem hvorki er eða hefur áhuga á að vera í sambandi við væntanlega umbjóðendur sína.

Eitt er víst, sem gamall krati þá á ég enga samleið með SF, annað hvort sit ég heima í næstu kosningum eða kýs íhaldið, eins og hinir munaðarlausu kratarnir.

Þrándur (IP-tala skráð) 8.3.2007 kl. 22:18

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Ágúst Ólafur Ágústsson
Ágúst Ólafur Ágústsson

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (12.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 19
  • Frá upphafi: 144298

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 19
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  
Leita í fréttum mbl.is

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband