Að rata heim

EU og KA svarthvitFjölskyldan á Framnesveginum á 2 ketti. En þrátt fyrir að við eigum þessa tvo ketti þá er ég með ofnæmi fyrir þeim. Ég var reyndar talsmaður þess að fá þessi blessuðu dýr og því læt ég mig hafa það að taka eina pillu á dag. Þegar yngri dóttirin fæddist fyrir tæpum 2 árum voru uppi vangaveltur hvort hún hefði erft ofnæmisgen pabba síns. Og vegna þess ákváðum við þá að koma köttunum fyrir í pössun og fengu amman og afinn á Seltjarnarnesinu þann heiður að hýsa læðurnar.

Þetta er kannski ekki virði frásagnar nema einum sólarhringi síðar birtist annar kötturinn allt í einu heima. Hann hafði sem sagt labbað yfir allt Seltjarnarnesið og í gegnum allan Vesturbæinn og loks fundið lítið gult hús við Framnesveginn sem hann kannaðist við.

Þetta vakti auðvitað mikla furðu og jafnvel aðdáun á heimilinu. En kettirnir þurftu að vera í pössun í nokkra daga og voru því settir aftur í pössun og nú hjá hinni ömmunni og hinum afanum sem reyndar búa einnig á Nesinu. En læðan, Lína, endurtók leikinn og gekk heim, augljóslega mjög ósátt við þetta nýja fyrirkomulag.

Eftir þetta var nú ekki hægt að setja þær aftur í útlegð. Enda kom síðar í ljós að yngri dóttirin var ekki með ofnæmi og því lifa kettirnir núna góðu lífi á Framnesveginum og heimilisfaðirinn heldur áfram að taka eina pillu á dag.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Hvað er ein pilla fyrir blessuð börnin okkar ... góð frásögn.

Beztu kveðjur,

Gíslí Hjálmar

Gísli Hjálmar (IP-tala skráð) 2.3.2007 kl. 12:59

2 identicon

Þið vitið væntanlega að ofnæmi erfist ekki, heldur er áunnið. Sjálfur er ég með kattaofnæmi, en held samt 4 ketti.

Steinn (IP-tala skráð) 2.3.2007 kl. 13:59

3 Smámynd: halkatla

yndisleg saga - Lína er töffari ég dáist að fólki sem er með ofnæmi og á samt ketti - bravó! 

halkatla, 2.3.2007 kl. 14:29

4 Smámynd: Fanney Dóra Sigurjónsdóttir

Það má því segja að þú sért á Pillunni Gústi!

Fanney Dóra Sigurjónsdóttir, 2.3.2007 kl. 18:27

5 Smámynd: Dagbjört Hákonardóttir

Hah, þetta er yndislegt! Ef einhver er sökker fyrir góðri kisusögu, þá er það ég. Meira svona. 

Ég myndi bjóðast til þess að passa dýrin þín, en ég veit ekki alveg hvernig Lína myndi höndla Kringlumýrarbrautina á leið sinni úr Kópavoginum yfir á Framnesveg :)

Dagbjört Hákonardóttir, 3.3.2007 kl. 00:19

6 Smámynd: Guðríður Hrefna Haraldsdóttir

Frábært!

Guðríður Hrefna Haraldsdóttir, 3.3.2007 kl. 00:25

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Ágúst Ólafur Ágústsson
Ágúst Ólafur Ágústsson

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (26.7.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 4
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 3
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Júlí 2025
S M Þ M F F L
    1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 31    
Leita í fréttum mbl.is

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband