9.7.2008 | 11:20
Hvað höfum við gert?
Samfylkingin hefur nú verið í ríkisstjórn í liðlega eitt ár. Árið hefur verið viðburðaríkt og þrátt fyrir að efnahagsástand sé nokkuð erfitt hefur mörg jákvæð mál náð fram að ganga þetta fyrsta starfsár ríkisstjórnarinnar. Eftir stendur vitaskuld að margt er eftir og auðvitað verða efnahagsmálin í forgrunni á komandi mánuðum.
Ég ætla að leyfa mér að birta hér stutta samantekt (sem einnig birtist í 24 stundum) á þeim fjölmörgu verkefnum sem nú þegar hafa komið til framkvæmda eða ákveðið hefur verið að ráðast í. Að sama skapi er ástæða til að geta þess að neðangreindur listi er engan veginn tæmandi, eðli málsins samkvæmt.
Bætt stuðningskerfi fyrir langveik börn og fjölskyldur þeirra
17% hækkun á fjárframlögum til menntunar og rannsókna milli ára
Þreföldun á fjármagni í heimahjúkrun á þremur árum
Stimpilgjöld afnumin fyrir fyrstu kaupendur íbúðahúsnæðis
Fyrsta aðgerðaráætlunin fyrir börn samþykkt - Unga Ísland samþykkt
Skattleysismörk verða hækkuð um 20.000 kr á kjörtímabilinu ofan á verðlagshækkanir
Skerðing bóta vegna tekna maka afnumin
Skerðing lífeyrisgreiðslna vegna séreignasparnaðar afnumin
Lífeyrisgreiðslur hækkaðar um 9 milljarða króna á heilu ári og jafngildir það u.þ.b. 17% hækkun lífeyris, miðað við síðasta ár
Hækkun greiðslna til lífeyrisþega sem hafa hvað verst kjör um 24.000 kr. á mánuði
Afnám tekjutengingar vegna launatekna þeirra sem eru 70 ára og eldri og frítekjumark vegna atvinnutekna ellilífeyrisþega hækkað í 100.000 kr.
300.000 króna frítekjumark á lífeyrisgreiðslur örorkulífeyrisþega
Aldurstengd örorkuuppbót hækkuð
60% aukning á fjármagni til Samkeppniseftirlitsins á 2 árum
50% aukning á fjármagni til Fjármálaeftirlitsins milli ára
25% aukning á fjármagni til Umboðsmanns Alþingis milli ára
Fjárframlög til Mannréttindaskrifstofu Íslands tryggð á fjárlögum
Tæplega helmings aukning á fjármagni til samgöngumála milli ára
Ný jafnréttislög sett og aðgerðir gegn kynbundnum launamun hafnar
Ný orkulög sett þar sem opinbert eignahald er tryggt á auðlindunum
Vinna hafin við rammáætlun um umhverfisvernd og öllum umsóknum um ný rannsóknarleyfi vísað frá á meðan
Skerðingarmörk barnabóta hækkuð um 50%
Hámark húsaleigubóta hækkað um 50%
Eignaskerðingarmörk vaxtabóta hækkuð um 35%
24 ára reglan þurrkuð út úr útlendingalögunum
Íbúðalán Íbúðalánasjóðs miðast nú við markaðsvirði en ekki brunabótamat
Stóraukið frumkvæði á alþjóðavettvangi og aukið fjármagn í þróunarmál
Trúfélögum heimilað að staðfesta samvist samkynhneigðra
Einhleypum konum heimilað að fara í tæknifrjóvgun
Fyrstu innheimtulögin sett
Stjórnarráðinu og þingskaparlögunum breytt með róttækum hætti
Eins og má sjá á þessari upptalningu hefur ríkisstjórnin nú þegar komið fjölmörgum málum til leiða. Það er hins vegar augljóst að málefni eldri borgara, öryrkja og barnafjölskyldna eru í forgangi hjá ríkisstjórn Samfylkingar og Sjálfstæðisflokks. Fjárfestingar í innviðum samfélagsins s.s. í samgöngu- og menntamálum hafa verið tryggðar ásamt í nauðsynlegum eftirlitsstofnunum. Þá hafa jafnréttismál verið sett á oddinn ásamt hagsmunamálum neytenda en það var löngu tímabært.
Verk hinnar frjálslyndu umbótastjórnar tala sínu máli.
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 11:22 | Facebook
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (31.1.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 2
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Tenglar
Málin mín á Alþingi
- Afnám fyrningar í kynferðisafbrotum gegn börnum
- Óháðar rannsóknarnefndir
- Lögfesting Barnasáttmála
- Löggjöf um heimilisofbeldi
- Auglýsingar heilbrigðisstétta
- Sérdeild fyrir unga fanga
- Vernd heimildarmanna fjölmiðla
- Líffæragjafir í ökuskírteinum einstaklinga
- Rannsaka þunglyndi eldri borgara
- Sendiráð ESB á Íslandi
- Mistök í heilbrigðiskerfinu
- Fleiri þingmál
Eldri færslur
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Janúar 2009
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
- Desember 2006
- Nóvember 2006
- Október 2006
- September 2006
- Ágúst 2006
- Júlí 2006
- Júní 2006
- Maí 2006
- Apríl 2006
- Mars 2006
- Febrúar 2006
- Janúar 2006
- Desember 2005
- Nóvember 2005
- Október 2005
- September 2005
- Ágúst 2005
- Maí 2005
- Apríl 2005
- Febrúar 2005
- Janúar 2005
- Desember 2004
- Nóvember 2004
- Október 2004
- September 2004
- Ágúst 2004
- Júlí 2004
- Júní 2004
- Maí 2004
- Apríl 2004
- Mars 2004
- Febrúar 2004
- Janúar 2004
- Desember 2003
- Nóvember 2003
- Október 2003
- September 2003
- Ágúst 2003
- Júlí 2003
- Júní 2003
- Maí 2003
- Apríl 2003
- Mars 2003
- Febrúar 2003
- Janúar 2003
- Nóvember 2002
- Október 2002
Af mbl.is
Póstlisti
Skráðu netfang þitt hér að neðan.
Fólk
- - -
-
Litla fjölskyldan
Breiðfylking jafnaðarmanna
Mikilvægar stofnanir
Hagfræðin
-
Joseph Stiglitz
-
John Kay
-
Paul Krugman
-
Þorvaldur Gylfason
-
Ásgeir Jónsson
-
Tímaritið Economist
-
Seðlabanki Íslands
-
Rannsóknarmiðstöð um efnahagsmál
-
Ríkiskassinn
-
Hagstofan
Lögfræðin
Atvinnulífið
-
Alþýðusambandið
-
Viðskiptaráð Íslands
-
Samtök atvinnulífsins
-
Samtök iðnaðarins
-
Félag kvenna í atvinnurekstri
-
Samtök sprotafyrirtækja
-
Félag íslenskra stórkaupmanna
-
Samtök verslunar og þjónustu
-
Nýsköpunarsjóður atvinnulífsins
-
Impra nýsköpunarmiðstöð
Evrópusamstarf
Hjartans mál
Bloggvinir
- almapalma
- andri
- husmodirivesturbaenum
- arnalara
- ahi
- gusti-kr-ingur
- alfheidur
- arniarna
- asarich
- astan
- heilbrigd-skynsemi
- baldurkr
- bardurih
- kaffi
- bjarnihardar
- masterbenedict
- bleikaeldingin
- salkaforlag
- bryndisfridgeirs
- calvin
- charliekart
- rustikus
- dagga
- deiglan
- dofri
- egill75
- egillg
- eirikurbergmann
- eirikurbriem
- ernafr
- skotta1980
- kamilla
- evropa
- vinursolons
- ea
- fanney
- arnaeinars
- gesturgudjonsson
- gislihjalmar
- grumpa
- gudni-is
- gudbjorgim
- gudfinnur
- mosi
- gummiogragga
- orri
- gudridur
- gudrunmagnea
- zeriaph
- gunnaraxel
- gbo
- coke
- gunnlaugurstefan
- gylfigisla
- holi
- hallurg
- handtoskuserian
- smali
- hannesjonsson
- hhbe
- haukurn
- heidistrand
- heidathord
- latur
- hlf
- tofraljos
- hildajana
- hildurhelgas
- hinrik
- kjarninn
- hlekkur
- hrafnhildurolof
- hrannarb
- hreinsi
- hvitiriddarinn
- hordurj
- hoskuldur
- hoskisaem
- ibbasig
- ingabesta
- ingibjorgstefans
- jara
- iagustsson
- ingo
- id
- jensgud
- jenni-1001
- joik7
- johannst
- skallinn
- joneinar
- joningic
- joninaros
- drhook
- jonthorolafsson
- juliaemm
- julli
- juliusvalsson
- komment
- killerjoe
- hjolaferd
- kjoneden
- kiddirokk
- kristjanmoller
- kvenfelagidgarpur
- lauola
- lara
- presleifur
- korntop
- matti-matt
- mortenl
- olimikka
- omarminn
- pallieinars
- pallkvaran
- pallijoh
- palmig
- robertb
- salvor
- xsnv
- fjola
- sigfus
- siggikaiser
- sigurjonsigurdsson
- stebbifr
- fletcher
- steindorgretar
- ses
- pandora
- kosningar
- svanurmd
- svenni
- saethorhelgi
- sollikalli
- thelmaasdisar
- tidarandinn
- tommi
- unnar96
- sverdkottur
- valdisa
- overmaster
- valgerdurhalldorsdottir
- valsarinn
- vefritid
- vestfirdir
- ver-mordingjar
- tharfagreinir
- steinibriem
- skrifa
- thordistinna
- thorirallajoa
Athugasemdir
Hvernig væri að bæta á þennan lista að þið hafið beitt ykkur fyrir því að borga ljósmæðurum mannsæmandi laun og stand við það sem stendur í stjórnarsáttmálanum um að meta menntun til launa og leiðrétta kynbundin launamun. Eru þetta bara orðin tóm sem standa þar?
kv
Hrafnhildur
Hrafnhildur Ólafsdóttir, 9.7.2008 kl. 13:44
ég gleðst yfir því hvað þið hafið verið að gera, gott mál.
En langar að vita ef þú getur svarð mér um hvað mörg % aldurstengd örorka hækkaði ???
Annað sem að mér persónulega finst. Hvernig dettur Ríkissjóði í hug að innheimta bifreiðagjöld af eldri borgurum ? Þessir aðilar sem eru að keyra um þe fá læknisvottorð um akstursgetu og eru allflestir rétt aðeins að aka innanbæjar
Að lokum, ég er ánægð með hækkun húsaleigubóta og vona að það komi mörgum til góða. En hvernig er það ef að ég á íbúð, verð að leigja hana vegna þess að ég stunda nám annarstaðar, þá á ég ekki rétt á húsaleigubótum sjálf ? Auk þess á ég ekki rétt á vaxtabótum af mínu húsnæði sem ég er að leigja , samt verð ég auðvitað að borga af húsnæðinu mínu öll þau lán sem að á henni hvíla, auk þess borga ég 10 % af leigutekjum í skatt??
Þetta er amk sagt og hvernig má þetta vera ?
Að lokum, ég er með dæmi um 17 ára einstakling sem að missti annað foreldri sitt, fékk því greiddan út arf sem líklegast framfærslueyrir og þessi sami einstaklingur er í námi ,leigir húsnæði en er skert um húsaleigubætur út af því það fékk arf eftir foreldri sitt, sem það mundi mikið frekar vilja hafa hér hjá sér.. Hvaða helv tvískinnungur er þetta
ég vona að þú hafir manndóm í þér að svara mér ef ekki hér á síðunni þá á netfang mitt ef þú óskar
Erna Friðriksdóttir, 9.7.2008 kl. 22:25
Glæsilegur listi.
En "aðgerðaráætlun" er alveg fáránlegt orðskrípi, að mínu mati. Hér er varla um eina "aðgerð" að ræða og "framkvæmdaáætlun" hljómar mun betur í mínum eyrum. "Við ætlum að framkvæma þessa hluti." "'Áætlun um framkvæmdir." "Framkvæmdaáætlun."
Þorsteinn Briem, 9.7.2008 kl. 22:38
Áætlun um framkvæmdir geta verið misvísandi......... Betra er : þetta erum við búin að gera ..........er það ekki ??
Erna Friðriksdóttir, 9.7.2008 kl. 22:44
Erna. Ég var nú að meina það sem stendur hér að ofan:
• Fyrsta aðgerðaráætlunin fyrir börn samþykkt."
"Aðgerðaráætlun" vísar væntanlega til þess sem ætlunin er að gera.
Örorkubótakerfið er tóm steypa og hrærigrautur eins og það er núna og vonandi verður því breytt og það einfaldað mjög mikið um áramótin.
Enda þótt öryrkjar geti nú haft 100 þúsund króna atvinnutekjur á mánuði til næstu áramóta, án þess að þær skerði lífeyrisgreiðslur þeirra frá Tryggingastofnun, myndu greiðslur til þeirra frá lífeyrissjóðunum væntanlega skerðast mjög mikið vegna þessara atvinnutekna.
Hér geturðu séð hvað hver og einn fékk mikla hækkun á aldurstengdri örorkuuppbót 1. júlí síðastliðinn. Hækkunin er mismikil eftir aldri, 5-67% frá 20 til 66 ára aldurs, sýnist mér:
http://www.tr.is/tryggingastofnun/breytingar-a-lifeyrisgreidslum/
Þorsteinn Briem, 9.7.2008 kl. 23:20
Ég skil ekki að stjórmarmenn, þe á Alþingi , geti ekki bara sagt þetta fólki á einfaldri ÍSLENSKU ????
kerfið hér er orði'svo rotið.FÓlk bíður langtímum sama í símanum af þvi það er nr 25 eftir svari
Erna Friðriksdóttir, 10.7.2008 kl. 01:21
Úff það er naumast það er bruðlað í Stjórnarráðinu á meðan almenningur er hvattur til að herða ólina. Sennilega er það kosturinn við að hafa tekjulind sem enginn getur valið frá að tilheyra.
Geir Ágústsson, 15.7.2008 kl. 22:10
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.