Skuldar borgarbúum skýringar

Hlutirnir hafa heldur betur breyst hratt í pólitíkinni. Fyrst voru það milljón króna fötin og hnífasettin í Framsókn. Og nú er það nýr meirihluti í höfuðborginni.

Eftir að hafa horft á einn versta blaðamannafund sem haldinn hefur verið norðan Alpafjalla þegar nýr meirihluti var kynntur á Kjarvalsstöðum er ljóst að það er ástæða til að hafa talsverðar áhyggjur af stöðu mála hér í borginni.

Það sér hver maður að hinn nýi meirihluti í borginni er afskaplega veikur og málaefnaskráin þunnur þrettándi þó það sé látið heita að hún snúist um aukið öryggi, betri almenningssamgöngur og bætta velferð. Sömuleiðis er ljóst að Ólafur F. skuldar borgarbúum frekari skýringar á liðhlaupi sínu. Ólíkt því þegar meirihluti D og B sprakk í borginni virðist hér ekki hafa verið neinn aðdragandi að sprengjunni nú og ekki neinar pólitískar deilur eða persónuleg missklíð sem geta útskýrt gjörðir Ólafs F. í þessu máli.

Augljóst er að Ólafur F. var einungis að hugsa um sinn eigin rass þegar þessi ákvörðun var tekin og tók hana að auki án alls samráðs við sína samstarfsfélaga í borginni. Borgarbúar súpa seyðið af þessum farsakenndu hræringum. Þeir missa öflugan meirihluta sem var bæði atkvæðamikill og vinsæll meðal borgarbúa.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jón Ingi Cæsarsson

Satt segir þú. Þetta var dapurleg brunaútsala á pólitískum hugsjónum og reisn. Virðing mín fyrir Ólafi sem hugsjónamanni hvarf og í stað hennar kom sorg yfir mannlegum brestum og valdagræðgi.

Jón Ingi Cæsarsson, 21.1.2008 kl. 22:51

2 Smámynd: Calvín

Því miður eru allir brenndir af fyrri yfirlýsingum þar sem borgarfulltrúar hafa lent báðum megin við borðið. Þess vegna eru ekki mark á takandi á nokkrum borgarfulltrúa Reykjavíkur í dag. Ótrúlegt sjónarspil allra flokka.

Calvín, 21.1.2008 kl. 22:53

3 Smámynd: Bergljót Aðalsteinsdóttir

Ég er að vona að ég vakni upp í fyrramálið og Ólafur verði kominn með væga flensu og geti ekki mætt í vinnuna. Þar með er meirihlutinn fallinn! Án gríns Hvernig dettur Vilhjálmi í hug að borgarbúar vilji hann aftur sem borgarstjóra eftir klúðrið í haust??

Bergljót Aðalsteinsdóttir, 21.1.2008 kl. 23:10

4 Smámynd: Alma Jenny Guðmundsdóttir

Ég tek undir með greinarhöfundi um afar sérkennilegan fund.  Mín tilfinning er sú að þarna sé eingöngu verið að nota tvo aðila, þ.e. annars vegar Ólaf F. og Vilhjálm Þ. til valdatöku og mér fannst það alveg ótrúlega dapurlegt.  Á bak við stóð 6 manna hópur algerlega blindur í því að ná sínu fram, því að sitja að völdum.

Hef einhverja tilfinningu fyrir því að borgarbúar hafi vart komið upp í huga þessa fólks, við því að ná fram markmiði sínu.

Það að bjóða okkur borgarbúum upp á þennan leik í kvöld er með ólíkindum.  Það var algerlega ljóst á sínum tíma, á meðan að umræða um samruna og samninga Reykjavík Energy Invest og Geysir Green Energy að borgarstjóri þá og væntanlegt borgarstjóraefni sem Sjálfstæðisflokkurinn býður okkur upp á, varð til þess að ekki er víst að við höldum fullum ráðstöfunarrétti yfir  náttúru-auðlindum okkar vegna þess að þáverandi borgarstjóri var ekki viss um hvað í ofangreindum samningum stóð og bar fyrir sig skorti á ensku-kunnáttu.

Hvar er fagmennskan og viljinn til þess að gera sitt besta gagnvart kjósendum?   Er þessi ráðstöfun Sjálfstæðisflokksins það besta okkur borgarbúum til handa, eða skiptir það kannski engu máli og bara verið að nota þessa tvo ofangreinda aðila?

Persónur þessara manna skipta minnstu máli, en hér er sjálftaka um völd til þess að stýra stefnu í það hvernig skattpeningum borgarbúa er varið.

Þá verð ég að segja að borgarbúar standa algerlega berskjaldaðir fyrir borgarstjórnarmálum og ekki heyrist í ráðamönnum þjóðarinnar, sem er skömm við þessar aðstæður.

Pólitísk öfl í þessu máli skipta minna máli gagnvart okkur borgarbúum en gjörningur þessi sem - minnir á valdarán - án þeirra hjálpartækja sem tíðkast í lýðræðislega vanþróuðum ríkjum.

Alma Jenny Guðmundsdóttir, 21.1.2008 kl. 23:17

5 Smámynd: Svanur Sigurbjörnsson

Laukrétt Ágúst Ólafur.  Ég framkvæmdi mína krufningu á þessu máli á blogginu mínu.  Fjósin lykta betur en þessi gjörningur blindrar valdagræðgi.

Svanur Sigurbjörnsson, 21.1.2008 kl. 23:56

6 Smámynd: Ingibjörg Hinriksdóttir

Sammála Ágúst Ólafur, þessi gjörningur er með öllum ólíkindum. Nýr meirihluti er ekki aðeins veikur, hann er fársjúkur og mér liggur við að segja að hann sé andvana fæddur. Valdagræðgi er grundvöllur hans og ekkert annað. Margar vondar tillögur hafa komið frá Kjartani Magnússyni í gegnum tíðina en engin þó eins slæm og þessi sem varð til á heimili hans í dag.

Ingibjörg Hinriksdóttir, 22.1.2008 kl. 00:29

7 Smámynd: Hólmdís Hjartardóttir

Dapurlegur gjörningur fyrir borgarbúa. Hver vill Vilhjálm sem borgarstjóra????

Hólmdís Hjartardóttir, 22.1.2008 kl. 01:48

8 Smámynd: Hjörtur J. Guðmundsson

Þessi meirihluti hefur þó einhverja málefnaskrá, annað en sá á undan. Samkvæmt Ólafi var það ein helzta ástæðan fyrir því að fór sem fór.

Hjörtur J. Guðmundsson, 22.1.2008 kl. 03:02

9 Smámynd: Árni Gunnarsson

Ég held næstum að Bergljót hafi talað fyrir okkur bæði.

Árni Gunnarsson, 22.1.2008 kl. 09:20

10 Smámynd: Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir

Það er með ólíkindum að fylgjast með þessari vitleysu. Grímulaus uppdráttarsýki og ekkert annað. Setti inn færslu um málið í gær, læt það duga í bili.

Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir, 22.1.2008 kl. 11:27

11 Smámynd: Páll Einarsson

Sæll félagi, Fylgist með þessum hörmungum frá Danmörku.

Hvernig stendur á því að íhaldið skuli hafa dottið það í huga að mynda svona veikan meirihluta. Hann er varla starfhæfur. Trúi ekki að sjálfstæðismenn hafi grafið öll sín hnífasett í jörðu eftir hasarinn um daginn og Ólafur en mennskur eins og við og getur fengið kvef...þó læknir sé.

Trú ekki að þetta lifi lengi. Ég vil nýjar kosningar hið fyrsta enda tel ég þetta ekki vera heillaspor fyrir Reykvíkinga.

kveðja,

Páll Einarsson, 22.1.2008 kl. 11:54

12 Smámynd: halkatla

þetta er sorglegasti atburður borgarstjórnmála, mér er svosem alveg sama hver ræður en grímulaus siðblinda Ólafs F og barnaskapur frjálslyndra sem fagna þessu er alveg ótrúlega dapurlegt sjónarspil :(

halkatla, 22.1.2008 kl. 13:01

13 Smámynd: Gísli Hjálmar

... þetta er fáránleikinn uppmálaður í alla staði.

Hvernig er það; getur Margrét Sverrisdóttir ekki slitið meirihlutanum ef hún tæki sæti Ólafs F. sem varamaður. Það er að segja ef til þess kæmi að hann þyrfti frá að hverfa vegna veikinda og kalla þyrfti til varamann í hans stað?

Gísli Hjálmar , 22.1.2008 kl. 20:19

14 Smámynd: haraldurhar

    Sammála þínum sjónamiðum varðandi pólitíkina í Reykjavík, Gengifelling Stjórnmála.

   Það er veldur mér meiri undrun, er aðgerðaleysi Ríkistjórnar Íslands, í atvinnu og peningamálum þjóðarinnar.  Er Samfylkingin algjörlega búinn að taka að sér hlutverk Framsóknar, að kokgleypa allt frá íhaldinu.   Ykkur ber skylda við mig og aðra kjósendur, að taka strax í taumanna, og ganga í að lækka vexti strax, áður en kemur til fjöldagjaldþrota og gríðalegst atvinnuleysi.  Að leyfa sér að tala eins og forsætisráðherra og utanríkiráðherra gerðu á dögunum að nú væri bara halda ró sinni, nánast allt væri í lagi hjá okkur, en valdamálin væru erlendis, er hrein móðgun við okkur kjósendur.

Síðustu dægur hafa vel á þriðja hunduð stafsmanna útflutingf. fengið uppsagnarbréf, kveikir það á eingum bjöllum í höfðinu á ykkur.

haraldurhar, 22.1.2008 kl. 21:04

15 identicon

Þessi nýi meirihluti er ekkert veikar en sá sem er að fara frá. Hann hékk líka á einum manni.

Og sá meirihluti gerði lítið annað en hækka álögur á borgarbúa, og samþykkja það sem var löngu búið að koma sér saman um.

Klúður, ja, er þá ekkert klúður sem Dagur og co gerði???

Ég óska þessum nýju stjórnarmeirihluta til hamingju með frábæran málefnasamning. Og vona að það sem kemur svo uppá, verði leyst í sátt og samlyndi.

Nú er kominn tími á að haga sér eins og fullorðið og vel vitiborið fólk.

Ég fer að halda að það sé meira vit í að óska eftir hæfni manna til að stjórna, heldur að óska eftir vottorði frá lækni um heilbrygði viðkomandi.

Og meina ég þetta til allra borgarfulltrúanna, hverra flokka eða óflokka sem þeir eru. 

Sigrún Jóna (IP-tala skráð) 22.1.2008 kl. 22:37

16 identicon

Til upprifjunar:

Ólafur F. í Silfrinu 2. des. 07
Hér er slóð á viðtal við Ólaf F. Magnússon í Silfri Egils 2. desember síðastliðinn:

http://http.ruv.straumar.is/static.ruv.is/geyma/olafurf.2007-12-02.wmv


Kristján Þór Júlíusson um nýja meirihlutann í Reykjavík:
http://www.visir.is/article/20080124/FRETTIR01/80124016


Hér er því haldið fram að sjálfstæðismenn hafi lekið upplýsingum um heilbrigðisvottorð

Ólafs F,Magnússonar:

http://eyjan.is/hux/2008/01/22/bjortu-hli%c3%b0arnar/


kv. gb

Gísli Baldvinsson (IP-tala skráð) 24.1.2008 kl. 17:41

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Ágúst Ólafur Ágústsson
Ágúst Ólafur Ágústsson

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (26.4.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 3
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 3
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        
Leita í fréttum mbl.is

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband