Þingið komið saman á ný

Nú er þingið loksins komið saman. Stemmningin í þinghúsinu minnir um margt á fyrsta skóladaginn en það mun án efa taka einhvern tíma að venjast nýjum andlitum í þingsalnum. Talsverð endurnýjun átti sér stað í síðustu kosningum og t.d. eru allmargir sterkir sveitastjórnarmenn nú komnir á þing.

Nú hefur Samfylkingin átt sæti í ríkisstjórn í rúma fjóra mánuði. Strax má sjá ýmis merki þess. Má þar nefna aðgerðaráætlunin fyrir börn, baráttuna gegn biðlistunum, neytendamálin, bætta stöðu langveikra barna, aðgerðir gegn kynbundnum launamun, endurskoðun húsnæðismála, bættar samgöngur, varðstöðuna um auðlindir þjóðarinnar o.s.frv.

Þá koma margvíslegar áherslur fram í nýkynntu fjárlagafrumvarpi. Útgjöld til velferðar- og menntamála eru aukin talsvert. Auðvitað mun taka tíma að ná fram baráttumálum Samfylkingarinnar en við erum bara rétt að byrja. 

Ég er annars nú þegar búinn að leggja fram mitt fyrsta þingmál á þessum vetri en það lýtur að lögfestingu Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna. Lögfesting sáttmálans yrði talsverð réttarbót fyrir íslensk börn og hefði gríðarlegt gildi að mínu mati.

Aðildarríki samningsins s.s. Ísland eru einungis skuldbundin barnasáttmálanum samkvæmt þjóðarrétti en ekki að landsrétti. Því þarf að lögfesta alþjóðalega samninga ef þeir eiga að hafa bein réttaráhrif hér á landi.

Að mínu mati á slíkur grundvallarsáttmáli að vera lögfestur hér á landi með sama hætti og Mannréttindasáttmáli Evrópu hefur verið lögfestur. Við það fengið barnasáttmálinn aukið vægi þar sem stjórnvöld og dómstólar landsins yrðu að taka mið af honum sem sett lög. Noregur lögfesti barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna árið 2003.

Einnig er lagt til í þingmálinu að íslensk löggjöf verði aðlöguð að barnasáttmálanum. Samkvæmt barnasáttmálanum ber t.d. að aðskilja unga fanga frá fullorðnum föngum en hér á landi er það ekki gert.

Friðhelgi einkalífs barna og sjálfsákvörðunarrétt þeirra í lögum þyrfti ennfremur að tryggja betur í barnalögum, barnaverndarlögum og lögum um réttindi sjúklinga. Þá þyrfti að tryggja í lög að rætt sé við yngri börn en nú er gert í umgengis- og barnaverndarmálum og rétt þeirra í grunnskólalögum um að láta í ljós skoðanir sínar. Sömuleiðis ætti réttur barnsins til að þekkja foreldra sína að vera tryggður í lögum og skoða hvort það eigi við ættleidd börn og í sæðisgjöfum.

Í sambandi við lögfestingu á Barnasáttmálnum þarf að skoða sérstaklega stöðu barna sem glíma við langvarandi veikindi, fötlun, geðsjúkdóm, fátækt og barna nýbúa í íslenskum lögum.  

Þingmálið í heild sinni má sjá hér.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Inga Lára Helgadóttir

Þú ert maður sem ég treysti verulega á .... þú Ágúst Ólafur ert á réttum stað og mikið er ég fegin

Kveðja Inga Lára Helgadóttir 

Inga Lára Helgadóttir, 11.10.2007 kl. 22:42

2 identicon

Mig langar til að vita, hverra hagsmuna þú ert að gæta í þessu áfengis bulli. Það er ömurlegt til þess að vita þegar menn tala gegn betri vitund til að koma málum áfram. Þegar ég segji að tala gegn betri vitund, á ég við þegar sögð eru orð eins og að aukið aðgengi auki ekki áfengisneyslu. Ég vil bara benda þingmanninum á að það fara 3 miljarðar af skattfé almennings til heilbrigðismála vegna áfengisneyslu og það er einmitt upphæðin sem ríkið fær í hagnað af áfengissölu. Nú ætlar þú ásamt öðrum að koma þessum miljörðum í vasann hjá verslunarmönnum og þá verður að taka þessa miljraða af skatttekjum almennings í staðinn. Ekki verða þeir teknir af kvótaeigendum, það er nokkuð víst. Ég skil ekki offorsið sem þér gekk til í Kastljósþætti, það var eins og ekkert annað kæmist að, bíddu áttu frænda sem er verslunarmaður? Eða hvað á maður að halda

Valsól (IP-tala skráð) 16.10.2007 kl. 08:14

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Ágúst Ólafur Ágústsson
Ágúst Ólafur Ágústsson

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (26.4.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 3
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 3
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        
Leita í fréttum mbl.is

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband