7.7.2007 | 12:05
Dvölin á Flórída
Bandaríkin eru furðulegt land. Eins og klisjan segir þá er allt stórt í Bandaríkjunum. Fólkið, maturinn, bílarnir, búðirnar, rigningin, skordýrin. Allt í yfirstærð. XXL. Nú er fjölskyldan stödd á Flórída og unir sér bara vel.
Reyndar er ekki hægt að komast spönn frá rassi án þess að nota þarfasta þjóninn. Annars er merkilegt að keyra hér um. Alls staðar má finna veitingastaði og bílaumboð en hvergi fólk og íbúðahús. Kannski er það allt falið í frumskóginum sem liggur hér allt um kring.
Næturhljóðin hér eru ótrúleg. Þetta er hinn mesti hávaði og liggur við að börnin þurfi að hylja eyrun. Eflaust fengitími hjá froskunum eða einhvers konar partý.
Ok, við fáum þá Flórída
Flórída er 150.000 km2 að stærð á meðan litla Ísland er 100.000 km2. Íbúar Flórída eru um 15 milljónir en Flórída fær þó svipaðan fjölda ferðamanna á hverju ári og New York og París fá samanlagt. Disney trekkir víst að.
Árið 1783 afhentu Englendingar Flórída til Spánverja en fengu í staðinn Bahamaeyjar. Verður nú að teljast vera frekar slappur díll fyrir Tjallana. En síðan var það árið 1821 sem Bandaríkin fengu Flórída frá Spáni vegna þess að Spánn skuldaði þeim pening. Strax þá voru Bandaríkjamenn orðnir að kapitílistum dauðans. Heilu fylkin gengu skiptum.
Kókaín og appelsínur
En hér er ekki bara túrismi. 3/4 af appelsínu- og sítrónuframleiðslu Bandaríkjanna er í Flórída. Sömuleiðis er talið að fjórðungur af öllum kókaíninnflutningi til Bandaríkjanna fari í gegnum Miami. Sem sagt fjölbreytilegir atvinnuvegir.
Sá að íbúar Flórída borga engan tekuskatt. Las þetta reyndar í danskri ferðabók þannig hugsanlega hefur túlkun mín eitthvað misfarist. Líklega. Annars eru ferðabækurnar Turen gar til... bestu ferðabækur sem ég hef rekist á. Mæli með þeim.
5 plastpokar fundust
Mér finnst Bandaríkin miklu hreinlegri en flest lönd í Evrópu. Allir vegakantar eru vel slegnir og ekkert fjúkandi rusl eða yfirkeyrð fauna.
Hér er vel hugsað um þá sem eiga peninga. En þótt neytandinn sé í draumaríkinu þá fékk maður reality sjokk í gær. Í fréttunum var sagt frá því að kona hefði fundist. Hún var reyndar í 5 mismunandi plastpokum. Fólkið í viðkomandi hverfi var afskaplega hissa á þessum fundi þar sem hér byggi svo gott fólk...
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 13:24 | Facebook
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 7
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 3
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Tenglar
Málin mín á Alþingi
- Afnám fyrningar í kynferðisafbrotum gegn börnum
- Óháðar rannsóknarnefndir
- Lögfesting Barnasáttmála
- Löggjöf um heimilisofbeldi
- Auglýsingar heilbrigðisstétta
- Sérdeild fyrir unga fanga
- Vernd heimildarmanna fjölmiðla
- Líffæragjafir í ökuskírteinum einstaklinga
- Rannsaka þunglyndi eldri borgara
- Sendiráð ESB á Íslandi
- Mistök í heilbrigðiskerfinu
- Fleiri þingmál
Eldri færslur
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Janúar 2009
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
- Desember 2006
- Nóvember 2006
- Október 2006
- September 2006
- Ágúst 2006
- Júlí 2006
- Júní 2006
- Maí 2006
- Apríl 2006
- Mars 2006
- Febrúar 2006
- Janúar 2006
- Desember 2005
- Nóvember 2005
- Október 2005
- September 2005
- Ágúst 2005
- Maí 2005
- Apríl 2005
- Febrúar 2005
- Janúar 2005
- Desember 2004
- Nóvember 2004
- Október 2004
- September 2004
- Ágúst 2004
- Júlí 2004
- Júní 2004
- Maí 2004
- Apríl 2004
- Mars 2004
- Febrúar 2004
- Janúar 2004
- Desember 2003
- Nóvember 2003
- Október 2003
- September 2003
- Ágúst 2003
- Júlí 2003
- Júní 2003
- Maí 2003
- Apríl 2003
- Mars 2003
- Febrúar 2003
- Janúar 2003
- Nóvember 2002
- Október 2002
Póstlisti
Skráðu netfang þitt hér að neðan.
Fólk
- - -
-
Litla fjölskyldan
Breiðfylking jafnaðarmanna
Mikilvægar stofnanir
Hagfræðin
-
Joseph Stiglitz
-
John Kay
-
Paul Krugman
-
Þorvaldur Gylfason
-
Ásgeir Jónsson
-
Tímaritið Economist
-
Seðlabanki Íslands
-
Rannsóknarmiðstöð um efnahagsmál
-
Ríkiskassinn
-
Hagstofan
Lögfræðin
Atvinnulífið
-
Alþýðusambandið
-
Viðskiptaráð Íslands
-
Samtök atvinnulífsins
-
Samtök iðnaðarins
-
Félag kvenna í atvinnurekstri
-
Samtök sprotafyrirtækja
-
Félag íslenskra stórkaupmanna
-
Samtök verslunar og þjónustu
-
Nýsköpunarsjóður atvinnulífsins
-
Impra nýsköpunarmiðstöð
Evrópusamstarf
Hjartans mál
Bloggvinir
- almapalma
- andri
- husmodirivesturbaenum
- arnalara
- ahi
- gusti-kr-ingur
- alfheidur
- arniarna
- asarich
- astan
- heilbrigd-skynsemi
- baldurkr
- bardurih
- kaffi
- bjarnihardar
- masterbenedict
- bleikaeldingin
- salkaforlag
- bryndisfridgeirs
- calvin
- charliekart
- rustikus
- dagga
- deiglan
- dofri
- egill75
- egillg
- eirikurbergmann
- eirikurbriem
- ernafr
- skotta1980
- kamilla
- evropa
- vinursolons
- ea
- fanney
- arnaeinars
- gesturgudjonsson
- gislihjalmar
- grumpa
- gudni-is
- gudbjorgim
- gudfinnur
- mosi
- gummiogragga
- orri
- gudridur
- gudrunmagnea
- zeriaph
- gunnaraxel
- gbo
- coke
- gunnlaugurstefan
- gylfigisla
- holi
- hallurg
- handtoskuserian
- smali
- hannesjonsson
- hhbe
- haukurn
- heidistrand
- heidathord
- latur
- hlf
- tofraljos
- hildajana
- hildurhelgas
- hinrik
- kjarninn
- hlekkur
- hrafnhildurolof
- hrannarb
- hreinsi
- hvitiriddarinn
- hordurj
- hoskuldur
- hoskisaem
- ibbasig
- ingabesta
- ingibjorgstefans
- jara
- iagustsson
- ingo
- id
- jensgud
- jenni-1001
- joik7
- johannst
- skallinn
- joneinar
- joningic
- joninaros
- drhook
- jonthorolafsson
- juliaemm
- julli
- juliusvalsson
- komment
- killerjoe
- hjolaferd
- kjoneden
- kiddirokk
- kristjanmoller
- kvenfelagidgarpur
- lauola
- lara
- presleifur
- korntop
- matti-matt
- mortenl
- olimikka
- omarminn
- pallieinars
- pallkvaran
- pallijoh
- palmig
- robertb
- salvor
- xsnv
- fjola
- sigfus
- siggikaiser
- sigurjonsigurdsson
- stebbifr
- fletcher
- steindorgretar
- ses
- pandora
- kosningar
- svanurmd
- svenni
- saethorhelgi
- sollikalli
- thelmaasdisar
- tidarandinn
- tommi
- unnar96
- sverdkottur
- valdisa
- overmaster
- valgerdurhalldorsdottir
- valsarinn
- vefritid
- vestfirdir
- ver-mordingjar
- tharfagreinir
- steinibriem
- skrifa
- thordistinna
- thorirallajoa
Athugasemdir
Í Flórída er það bara krókódíllinn sem hefur það gott. Honum er ekki of heitt né of kalt þar sem hann marir hálfur í kafi. Hann er friðaður þannig að enginn gerir honum mein en hann má éta alla hina.
Gunnar Skúli Ármannsson, 7.7.2007 kl. 12:28
Mmmmm.....hef 3x verið í Flórída og elska að vera þar. Á þar mína uppáhalds staði - búð sem selur föt sem eru eins og hönnuð fyrir Íslendinga - enda sagði afgreiðslukonan mér að íslenskar konur kæmu þangað mikið. Elska að koma á hlaðborðs veitingastaðina - sjá hvernig fólk velur sér mismunandi tegundir á diskana - elska að fygljast með hvað flóra mannlífs er mikil - elska að fara í skemmtigarðana og þá sérstaklega nýja garðinn sem Universal studios hefur hannað sérstaklega með börn í huga - þar sem korkur er í gólfum á leiksvæðum svo börnin meiði sig ekki - og litadýrðin maður - og svo er svo auðvelt að keyra þarna - þó ég hafi ekki farið síðan árið 2000 hef ég leiðirnar í huganum ennþá - mér fannst ekkert mál að skutlast þarna um alla Orlando. Svo er svo auðvelt að vera með börnin sín inná vernduðu svæðunum - leigja sér hús þar - allt við hendina - sundlaugin - veitingastaðurinn - golfið - jamm ég er Flórídafíkill.......!!!! Verst að tengdaforeldrarnir mínir eru búin að selja húsið sitt þar!!!!
Ása (IP-tala skráð) 8.7.2007 kl. 18:05
Ps. Maðurinn minn skilar kveðju til þín Ágúst og stingur uppá að þú keyrir niður á Miami South Beach og eyða þar einu kvöldi og sjá mannlífið - ógleymanlega upplifun - keyrir bara highway 95 niðureftir - leigir eina nótt á hóteli - auðvelt að labba þarna um með börnin og skoða flóruna - tilbreyting frá skemmtigörðum! Einnig sniðugt að fara niður á Coco Beach (sennilega highway 127east, beint austur af Orlando) og taka Disney skipið og sigla útá Disney Island - ekta fyrir börnin!!! Kemt þá til Nasa í leiðinni útá Canaveral höfða - þar er hægt að fara í þrívíddarbíó með börnin, söfn ofl. og sjá hvernig þetta hefur verið gegnum árin.
Við sjáumst hress vinur!!!!!! Knús á fjölskylduna þína frá okkur!!!!
Ása (IP-tala skráð) 8.7.2007 kl. 18:15
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.