2.4.2007 | 11:50
Þetta ætti að vera stærsta kosningamálið
Ef stjórnmál ættu að snúast um eitthvað eitt framar öðru þá ætti það að vera börnin. Mér finnst að málefni barna eigi að vera eitt stærsta kosningamálið. Þar eru stærstu hagsmunirnir á ferð.
Á meðan um 5.000 börn eru undir fátæktarmörkum, á meðan barnafátækt er tvöfalt meiri hér en á hinum Norðurlöndunum, á meðan 8.500 börn hafa ekki farið til tannlæknis á þremur árum, á meðan um 4.000 tilkynningar berast árlega til Barnaverndarstofu og á meðan ríkisstjórnin er búin að skerða barnabætur samanlagt um 11 milljarða kr þá er eitthvað að.
Þess vegna hefur Samfylkingin lagt fram ítarlega aðgerðaáætlun um hið unga Ísland.
Þar kemur m.a. fram að Samfylkingin vill:
1. Stytta vinnuvikuna í samráði við aðila vinnumarkaðarins
2. Fría tannvernd og afsláttarkort vegna tannviðgerða barna
3. Koma á sólarhringsaðstoð og ráðgjöf við unga fíkniefnaneytendur og börn með bráð geðræn vandamál
4. Ókeypis námsbækur í framhaldsskólum
5. Lengja fæðingarorlofið í 12 mánuði í áföngum og breyta reglum þannig viðmiðunartími við útreikninga orlofs verði styttur og að orlofið nýtist einstæðum foreldrum að fullu
6. Hækka barnabætur og vaxtabætur
7. Tryggja gjaldfrjálsa menntaleið í gegnum leik- og grunnskóla
8. Tryggja að öll börn geti tekið þátt í íþrótta-, tómstunda- og félagsstarfi
9. Að börn innflytjenda fái sömu tækifæri og þjónustu og íslensk börn, m.a. með stóraukinni áherslu á íslenskukennslu og stuðning í skólum
Annars má lesa um allar tillögurnar hér.
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 14:49 | Facebook
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (24.11.): 0
- Sl. sólarhring: 2
- Sl. viku: 7
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 3
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Tenglar
Málin mín á Alþingi
- Afnám fyrningar í kynferðisafbrotum gegn börnum
- Óháðar rannsóknarnefndir
- Lögfesting Barnasáttmála
- Löggjöf um heimilisofbeldi
- Auglýsingar heilbrigðisstétta
- Sérdeild fyrir unga fanga
- Vernd heimildarmanna fjölmiðla
- Líffæragjafir í ökuskírteinum einstaklinga
- Rannsaka þunglyndi eldri borgara
- Sendiráð ESB á Íslandi
- Mistök í heilbrigðiskerfinu
- Fleiri þingmál
Eldri færslur
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Janúar 2009
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
- Desember 2006
- Nóvember 2006
- Október 2006
- September 2006
- Ágúst 2006
- Júlí 2006
- Júní 2006
- Maí 2006
- Apríl 2006
- Mars 2006
- Febrúar 2006
- Janúar 2006
- Desember 2005
- Nóvember 2005
- Október 2005
- September 2005
- Ágúst 2005
- Maí 2005
- Apríl 2005
- Febrúar 2005
- Janúar 2005
- Desember 2004
- Nóvember 2004
- Október 2004
- September 2004
- Ágúst 2004
- Júlí 2004
- Júní 2004
- Maí 2004
- Apríl 2004
- Mars 2004
- Febrúar 2004
- Janúar 2004
- Desember 2003
- Nóvember 2003
- Október 2003
- September 2003
- Ágúst 2003
- Júlí 2003
- Júní 2003
- Maí 2003
- Apríl 2003
- Mars 2003
- Febrúar 2003
- Janúar 2003
- Nóvember 2002
- Október 2002
Af mbl.is
Póstlisti
Skráðu netfang þitt hér að neðan.
Fólk
- - -
-
Litla fjölskyldan
Breiðfylking jafnaðarmanna
Mikilvægar stofnanir
Hagfræðin
-
Joseph Stiglitz
-
John Kay
-
Paul Krugman
-
Þorvaldur Gylfason
-
Ásgeir Jónsson
-
Tímaritið Economist
-
Seðlabanki Íslands
-
Rannsóknarmiðstöð um efnahagsmál
-
Ríkiskassinn
-
Hagstofan
Lögfræðin
Atvinnulífið
-
Alþýðusambandið
-
Viðskiptaráð Íslands
-
Samtök atvinnulífsins
-
Samtök iðnaðarins
-
Félag kvenna í atvinnurekstri
-
Samtök sprotafyrirtækja
-
Félag íslenskra stórkaupmanna
-
Samtök verslunar og þjónustu
-
Nýsköpunarsjóður atvinnulífsins
-
Impra nýsköpunarmiðstöð
Evrópusamstarf
Hjartans mál
Bloggvinir
- almapalma
- andri
- husmodirivesturbaenum
- arnalara
- ahi
- gusti-kr-ingur
- alfheidur
- arniarna
- asarich
- astan
- heilbrigd-skynsemi
- baldurkr
- bardurih
- kaffi
- bjarnihardar
- masterbenedict
- bleikaeldingin
- salkaforlag
- bryndisfridgeirs
- calvin
- charliekart
- rustikus
- dagga
- deiglan
- dofri
- egill75
- egillg
- eirikurbergmann
- eirikurbriem
- ernafr
- skotta1980
- kamilla
- evropa
- vinursolons
- ea
- fanney
- arnaeinars
- gesturgudjonsson
- gislihjalmar
- grumpa
- gudni-is
- gudbjorgim
- gudfinnur
- mosi
- gummiogragga
- orri
- gudridur
- gudrunmagnea
- zeriaph
- gunnaraxel
- gbo
- coke
- gunnlaugurstefan
- gylfigisla
- holi
- hallurg
- handtoskuserian
- smali
- hannesjonsson
- hhbe
- haukurn
- heidistrand
- heidathord
- latur
- hlf
- tofraljos
- hildajana
- hildurhelgas
- hinrik
- kjarninn
- hlekkur
- hrafnhildurolof
- hrannarb
- hreinsi
- hvitiriddarinn
- hordurj
- hoskuldur
- hoskisaem
- ibbasig
- ingabesta
- ingibjorgstefans
- jara
- iagustsson
- ingo
- id
- jensgud
- jenni-1001
- joik7
- johannst
- skallinn
- joneinar
- joningic
- joninaros
- drhook
- jonthorolafsson
- juliaemm
- julli
- juliusvalsson
- komment
- killerjoe
- hjolaferd
- kjoneden
- kiddirokk
- kristjanmoller
- kvenfelagidgarpur
- lauola
- lara
- presleifur
- korntop
- matti-matt
- mortenl
- olimikka
- omarminn
- pallieinars
- pallkvaran
- pallijoh
- palmig
- robertb
- salvor
- xsnv
- fjola
- sigfus
- siggikaiser
- sigurjonsigurdsson
- stebbifr
- fletcher
- steindorgretar
- ses
- pandora
- kosningar
- svanurmd
- svenni
- saethorhelgi
- sollikalli
- thelmaasdisar
- tidarandinn
- tommi
- unnar96
- sverdkottur
- valdisa
- overmaster
- valgerdurhalldorsdottir
- valsarinn
- vefritid
- vestfirdir
- ver-mordingjar
- tharfagreinir
- steinibriem
- skrifa
- thordistinna
- thorirallajoa
Athugasemdir
Eru 6% barna undir fátækramörkum? Skv Hagstofunni eru 84000 börn 18 ára og yngri á Íslandi, eru virkilega 5.000 af þeim undir fátækramörkum? Hvernig færðu þessar tölur út?
Hallgrímur Egilsson, 2.4.2007 kl. 13:04
"Lengja fæðingarorlofið í 12 mánuði í áföngum og breyta reglum þannig viðmiðunartími við útreikninga orlofs verði styttur og að orlofið nýtist einstæðum foreldrum að fullu"
Á að auka misskiptinguna í velferðarmálum núna? Er planið virkilega þannig að refsa manni enn meira fyrir að vera heiðarlegur og skrá í sambúð eða gifta sig?
Hallgrímur Egilsson, 2.4.2007 kl. 13:11
Sæll Hallgrímur
Samkvæmt skýrslu forsætisráðherra um fátækt barna sem var gerð samkvæmt beiðni Helga Hjörvars segir m.a.:
"Eins og áður segir teljast 6,6% barna hafa búið í fátækt á Íslandi árið 2004. Þetta eru alls 4.634 börn í 2.977 fjölskyldum."
Alls nutu um 4.600 heimili fjárhagsaðstoð frá sveitarfélögum árið 1998 og um 6.300 árið 2003. Í skýrslunni stendur ennfremur: "Frá árinu 1998–2003 fjölgaði heimilum fjárhagsaðstoðarþega með börn um 44% en um 35% hjá öllum heimilum sem njóta fjárhagsaðstoðar."
Bestu kveðjur,
Ágúst Ólafur
Ágúst Ólafur Ágústsson, 2.4.2007 kl. 13:50
Er það ekki tímaskekkja að ætla sér að stytta vinnuvikuna, þegar skortur á vinnuafli er vaxandi vandamál? Sumar þjóðir reyna nú eftir fremsta megni að halda eldra fólki lengur á vinnumarkaði, svo er innflutt vinnuafl lausn sem allstaðar er notuð í vaxandi mæli, en spurning hvort við viljum ýta enn frekar undir þennan vanda með styttingu vinnuvikunnar? Það getur ýtt undir margþættan hagfræðilegan vanda ef framboð og eftirspurn á vinnumarkaði eru í ójafnvægi.
Jón Þór Bjarnason, 2.4.2007 kl. 14:19
Þetta er það sem strendur orðrétt í skýrslunni
1. Ísland er í hópi þeirra OECD-ríkja þar sem fátækt barna mælist hvað minnst. Þannig teljast 6,6% íslenskra barna hafa búið við fátækt á árinu 2004. Ef tekið er tillit til námslána frá LÍN lækkar hlutfallið í 6,3%. Meðlagsgreiðslur til einstæðra foreldra lækka þetta hlutfall enn frekar en ekki liggja fyrir fullnægjandi tölulegar upplýsingar um þessar fjárhæðir.
Sufjan (IP-tala skráð) 2.4.2007 kl. 14:43
Mjög sammála þér hér Ágúst. Voðalega er annars fólk með mikinn móral sem er að kommeta á síðuna þína. Þarf sterk bein að standa í þessu! Good luck :-)
Þóra (IP-tala skráð) 2.4.2007 kl. 15:12
Heill og sæll Ágúst Ólafur. Mikið óskaplega þakka ég ykkur Samfylkingarfólki vel fyrir að taka upp stefnu Framsóknar í hverju málinu á fætur öðru. Unga Ísland er þar ekki undanskilið nema að litlu leyti. Reyndar hefur nú þegar verið brugðist við mörgum þessarra mála og unnið er að þeim, en það er gott að vita hvað þið fylgist vel með á miðjunni. Bestu kveðjur til þín og þinna.
Helga Sigrún Harðardóttir, 2.4.2007 kl. 16:45
Ég er sammála þér, og hélt að málefni barna væri eitthvað sem allir gætu verið sammála um að skipti meira máli en allt annað þegar kemur að því að tryggja bestu framtíð samfélagsins, en ég er ánægð með að alla vega einn flokkur vilji gera þetta að kosningamáli.
Eva Kamilla Einarsdóttir, 2.4.2007 kl. 17:40
Í raun er svosem alveg sama hvaðan gott kemur en því miður getur Framsóknarflokkurinn eignað sér málefnið Unga Ísland. Einfaldlega að það eina sem tengist á einhvern hátt þessu málefni eru 36 orð um forvarnir í stefnu Framsóknarflokksins. Orðin um innrásina í Írak eru fleiri. gb
Gísli Baldvinsson (IP-tala skráð) 2.4.2007 kl. 18:22
Var að kynna mér tillögur ykkar um málefni fjölskyldunnar. Verð að segja að mér líst mjög vel á stefnu ykkar í þessum málum og vona að markmið ykkar verði að veruleika á komandi kjörtímabili.
Eiríkur Briem, 2.4.2007 kl. 20:08
Hvað skal nú segja um þjóð,
sem forgangsraðar steypu börnum ofar.
Auðvelt væri að laga slíkan ljóð,
ráðherra úrbótum fyrir kosningar lofar.
En það stóð aldrei til hjá honum,
að standa nokkurntímann við það.
Á meðan við bíðum og vonum,
að börn og veikir fái sinn stað.
Í velferðarþjóðfélagi eins og okkar,
ætti þetta ekki að þurfa að vera svona.
Meðan glóandi gullið ráðamenn lokkar
gráta okkar minnstu bræður og vona.
( Georg Pétur Sveinbjörnnson 2006 )
Georg P Sveinbjörnsson, 2.4.2007 kl. 20:54
Þakka þér fyrir að koma með þessi málefni, ég get sagt þér Ágúst að ég hef lesið rannsóknir á fátækt barna hér á landi og það var sorglegt að lesa mart af því. Ritgerðin heitir Fátækt barna í velferðarríkjum og er eftir þær Guðný Björk Eydal og Cynthia Lisa Jeans. Mér finnst ekki í lagi að stéttaskipting sé svo mikil hér, að meðan sumir lifa við allsnægtir, að þá þurfi börn fyrir fermingaraldur að vinna fyrir heimili sínu.... Finnst þér þetta hægt ? Lastu um draumalandið mitt á blogginu mínu ?
Bestu kveðjur Inga
Inga Lára Helgadóttir, 3.4.2007 kl. 00:22
Er það ekki týpískt að hér mætir fulltrúi Framsóknarflokksins og eignar sér stefnuna Unga Ísland. Hefur flokkur hennar ekki verið í stjórn síðan sautjánhundruð og súrkál án þess að taka til hendinni í þessum málum?
Ibba Sig., 3.4.2007 kl. 14:54
Bíðum nú við. Var ekki upprunalegur texti þessa bloggs einhvernveginn öðruvísi? Hélt að flestir bloggarar létu lesendur sína vita ef upprunalegum texta er breytt. Af hverju sá hinn ágæti höfundur þessa texta ástæðu til að breyta honum?
Sufjan (IP-tala skráð) 3.4.2007 kl. 15:24
Virkilega flottar tillögur.
Tómas Þóroddsson, 4.4.2007 kl. 00:37
Hver er hér fulltrúi Framsóknarflokksins ?
Inga Lára Helgadóttir, 4.4.2007 kl. 11:48
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.