Bloggfærslur mánaðarins, febrúar 2004
23.2.2004 | 15:56
Þingmál um sérdeild fyrir unga fanga
Nú hef ég lagt fram fram þingsályktun um að sett verði á fót sérdeild fyrir unga fanga á aldrinum 18-24 ára þar sem samneyti þeirra við eldri fanga verður í algjöru lágmarki og aðeins ef brýna nauðsyn ber til. Með mér á málinu eru tólf aðrir þingmenn Samfylkingarinnar.
Bygging fyrirhugaðs fangelsis á Hólmsheiði við Nesjavallaveg er einstakt tækifæri til að gera ráð fyrir sérstakri deild fyrir unga fanga. Í umræðu um hið nýja fangelsi hefur hins vegar ekki verið gert ráð fyrir slíkri sérdeild fyrir unga fanga. Hérlendis hafa ekki verið rekin sérstök fangelsi fyrir unga fanga en slíkar stofnanir þekkjast þó víða erlendis.
Ungir fangar hafa margs konar sérstöðu og álíta að ekki sé æskilegt að þeir afpláni dóma í samneyti við eldri afbrotamenn. Það getur verið ókleift að ná fram betrun ungra fanga með því að vista unga fanga í samneyti við eldri fanga, sem sumir hverjir eru síbrotamenn. Margoft hefur verið sýnt fram á að samneyti ungra fanga við eldri, og jafnvel forhertari fanga, gerir þeim yngri ekkert gott og getur í sumum tilvikum haft afar hvetjandi áhrif á unga fanga til frekari þátttöku í afbrotum.
Endurhæfing er því líklegri til að skila betri árangri séu ungu fangarnir í eins jákvæðu og uppbyggilegu umhverfi og hugsast getur miðað við aðstæður. Sérdeild fyrir unga afbrotamenn býður einnig upp á margs konar sérstæk úrræði fyrir þennan aldurshóp, t.d. á sviði vímu- og geðmeðferðar.
Þingsályktunina í heild sinni má finna á vef Alþingis.

Breytt 12.2.2007 kl. 14:53 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
15.2.2004 | 21:28
Furðuhljóð menntasókn
Þriðji menntamálaráðherra Sjálfstæðisflokkins á 2 árum hefur nýverið tekið við. Jómfrúargrein ráðherrans sem birtist í Morgunblaðinu 7. febrúar síðastliðnum er fyrir marga hluta sakir furðuleg. Þar er fullyrt að menntasókn hafi verið í gangi í mörg ár undir forystu Sjálfstæðisflokksins. Ef einhver sókn hefur verið í gangi er ljóst að hún hefur farið furðuhljótt.
Að sækja aftur á bak
Flestir sem láta sig menntamál varða eru sammála um að menntakerfið, og þá sérstaklega háskólastigið, hefur búið við mikið fjársvelti undanfarin ár. Nýi menntamálaráðherrann lét það hins vegar vera eitt af sínum fyrstu ummælum í starfi að Háskóli Íslands ,,væri ekki blankur." Það væri ráð að ráðherrann myndi heimsækja forsvarsmenn allra deilda háskólans eins og þingmenn Samfylkingarinnar gerðu í upphafi þessa árs. Hún myndi fljótt heyra að blankheit skólans séu svo sannarlega fyrir hendi. Þetta vita bæði starfsfólk Háskólans og stúdentar.
Ráðherrann fjallar um þá aukningu sem átt hefur sér stað undanfarin ár á fjármagni til háskólastigsins. Hún tekur ekki fram að sú aukning svarar aðeins til þess sem fjöldi nemenda hefur aukist. Samhliða nemendaaukningu hafa laun starfsfólks háskólastigsins hækkað talsvert.
Þetta aukna fjármagn er því eingöngu vegna nemendafjölgunar og launahækkana og nær þó ekki að halda í þessa tvo þætti. Ef litið er eingöngu til Háskóla Íslands kemur meira að segja fram í grein ráðherrans að aukning á fjármagni til Háskólans frá árinu 2000 er minni en nemendafjölgunin á sama tíma. Gagnvart Háskóla Íslands hafa því stjórnvöld farið aftur á bak.
Samanburður við önnur lönd
Ráðherrann lendir einnig í vandræðum þegar kemur að samanburði við aðrar þjóðir. Í nýjustu skýrslu OECD frá árinu 2003, Education at Glance, kemur fram að Íslendingar eru einungis hálfdrættingar á við önnur Norðurlönd þegar kemur að útgjöldum til háskólastigsins. Þessi nýjasti samanburður OECD er fyrir árið 2000. Það er tómt mál að tala um stöðuna árið 2003 eins og ráðherra gerir vegna þess að samanburðartölur liggja ekki fyrir. En jafnvel þótt við séum að auka útgjöld okkar stöndum við öðrum þjóðum langt að baki. Þótt við myndum auka útgjöldin til háskólastigsins um 1 %-stig af landsframleiðslu, sem eru 8 milljarðar, næðum við ekki efstu þjóðum.
Af 29 OECD ríkjum er Ísland í 24.-27. sæti hvað varðar heildarútgjöld til háskólastigsins eða í 6.-3. neðsta sæti. Við erum með 0,8% af landsframleiðslu sem opinber útjgöld til háskóla og 0,1% sem einkaútgjöld.
Ráðherrann stærir sig einnig af því að hafa gert samning við Háskóla Íslands um að greitt verði fyrir 5.200 virka nemendur. En hann gleymir því að virkir nemendur við Háskólann eru 5.700 eða um 500 fleiri. Ef menn ætla að styðjast við þá aðferðarfræði að greitt sé með hverjum nemanda verður að greiða með hverjum nemanda en ekki sleppa tíunda hverjum.
Fjöldatakmarkanir ráðherrans opinberaðar
Ráðherrann telur í grein sinni að íslenska þjóðin hafi hátt hlutfall háskólamenntaðs fólks. Þetta er rangt. Ef skoðaðar eru nýjustu tölur OECD fyrir árið 2001 kemur í ljós að um 27% fólks á aldrinum 25 til 34 ára hefur lokið háskólaprófi á Íslandi en á öðrum Norðurlöndum er þetta hlutfall yfirleitt um 37%. Staðan er enn verri ef litið er til framhaldsskólaprófs þar sem einungis um 60% Íslendinga á aldrinum 25 til 34 ára hefur lokið því. Á öðrum Norðurlöndum er þetta hlutfall um 86%-94%. Þetta þýðir að nánast annar hver Íslendingur í þessum aldursflokki hefur einungis grunnskólapróf.
Að lokum segir ráðherrann í grein sinni, ,,Ríkið getur ekki gefið grænt ljós á að Háskólinn taki inn fleiri nemendur en gert er ráð fyrir í fjárlögum." Í þessum orðum ráðherrans felast þau tímamót að Háskóli Íslands er ekki lengur opinn öllum stúdentum. Með knöppum fjárveitingum ríkisstjórnarinnar til Háskólans hefur ráðherrann því ákveðið meiri takmarkanir að þjóðskólanum en hafa þekkst í sögu Háskólans. Fjöldi nemenda við Háskólans mun því takmarkast af pólitískri ákvörðun ráðherrans en ekki eftirspurn og vilja þjóðarinnar. Slíkt er ekki menntasókn heldur fjársvelti.

4.2.2004 | 12:41
Frumvarp um afnám fyrningarfresta
Ég hef nú lagt fram á Alþingi lagafrumvarp um afnám fyrningarfresta vegna kynferðisafbrota gegn börnum undir 14 ára aldri. Meðflutningsmenn eru níu aðrir þingmenn Samfylkingarinnar.
Með frumvarpinu er tekið tillit til sérstöðu kynferðisafbrota gegn börnum. Börn eru sérlega viðkvæmur hópur. Barn sem verður fyrir kynferðisofbeldi áttar sig oft ekki á að brotið hafi verið gegn því fyrr en mörgum árum síðar eða bælir minninguna um ofbeldið og telur sig jafnvel sjálft bera sök. Kynferðisbrot gegn börnum koma því oft ekki fram í dagsljósið fyrr en mörgum árum eða áratugum eftir að þau voru framin, þegar þau eru fyrnd að lögum. Flutningsmenn telja að gerandi eigi ekki að hagnast á þeim mikla aðstöðumun sem er á honum og brotaþola.
Fyrningarfrestir vegna kynferðisafbrota gegn börnum er núna allt frá 5 árum upp í 15 ár og byrja þeir að telja frá 14 ára aldri brotaþola. Núgildandi fyrningarfrestir eru í mörgum tilfellum of skammir fyrir stóran hóp brotaþola. Dómar þar sem menn hafa verið sýknaðir fyrir kynferðisbrot gegn börnum, jafnvel þótt sekt hafi verið sönnuð, staðfesta þetta.
Flutningsmenn álíta að rangt sé að kynferðisbrot gegn börnum geti fyrnst. Vegna eðli og sérstöðu þessara brota er börnum ekki tryggð nægjanleg réttarvernd og réttlæti samkvæmt núgildandi lögum.
Frumvarpið í heild sinni má finna á vef Alþingis.

Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 7
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 3
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Tenglar
Málin mín á Alþingi
- Afnám fyrningar í kynferðisafbrotum gegn börnum
- Óháðar rannsóknarnefndir
- Lögfesting Barnasáttmála
- Löggjöf um heimilisofbeldi
- Auglýsingar heilbrigðisstétta
- Sérdeild fyrir unga fanga
- Vernd heimildarmanna fjölmiðla
- Líffæragjafir í ökuskírteinum einstaklinga
- Rannsaka þunglyndi eldri borgara
- Sendiráð ESB á Íslandi
- Mistök í heilbrigðiskerfinu
- Fleiri þingmál
Eldri færslur
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Janúar 2009
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
- Desember 2006
- Nóvember 2006
- Október 2006
- September 2006
- Ágúst 2006
- Júlí 2006
- Júní 2006
- Maí 2006
- Apríl 2006
- Mars 2006
- Febrúar 2006
- Janúar 2006
- Desember 2005
- Nóvember 2005
- Október 2005
- September 2005
- Ágúst 2005
- Maí 2005
- Apríl 2005
- Febrúar 2005
- Janúar 2005
- Desember 2004
- Nóvember 2004
- Október 2004
- September 2004
- Ágúst 2004
- Júlí 2004
- Júní 2004
- Maí 2004
- Apríl 2004
- Mars 2004
- Febrúar 2004
- Janúar 2004
- Desember 2003
- Nóvember 2003
- Október 2003
- September 2003
- Ágúst 2003
- Júlí 2003
- Júní 2003
- Maí 2003
- Apríl 2003
- Mars 2003
- Febrúar 2003
- Janúar 2003
- Nóvember 2002
- Október 2002
Póstlisti
Skráðu netfang þitt hér að neðan.
Fólk
- - -
-
Litla fjölskyldan
Breiðfylking jafnaðarmanna
Mikilvægar stofnanir
Hagfræðin
-
Joseph Stiglitz
-
John Kay
-
Paul Krugman
-
Þorvaldur Gylfason
-
Ásgeir Jónsson
-
Tímaritið Economist
-
Seðlabanki Íslands
-
Rannsóknarmiðstöð um efnahagsmál
-
Ríkiskassinn
-
Hagstofan
Lögfræðin
Atvinnulífið
-
Alþýðusambandið
-
Viðskiptaráð Íslands
-
Samtök atvinnulífsins
-
Samtök iðnaðarins
-
Félag kvenna í atvinnurekstri
-
Samtök sprotafyrirtækja
-
Félag íslenskra stórkaupmanna
-
Samtök verslunar og þjónustu
-
Nýsköpunarsjóður atvinnulífsins
-
Impra nýsköpunarmiðstöð
Evrópusamstarf
Hjartans mál
Bloggvinir
- almapalma
- andri
- husmodirivesturbaenum
- arnalara
- ahi
- gusti-kr-ingur
- alfheidur
- arniarna
- asarich
- astan
- heilbrigd-skynsemi
- baldurkr
- bardurih
- kaffi
- bjarnihardar
- masterbenedict
- bleikaeldingin
- salkaforlag
- bryndisfridgeirs
- calvin
- charliekart
- rustikus
- dagga
- deiglan
- dofri
- egill75
- egillg
- eirikurbergmann
- eirikurbriem
- ernafr
- skotta1980
- kamilla
- evropa
- vinursolons
- ea
- fanney
- arnaeinars
- gesturgudjonsson
- gislihjalmar
- grumpa
- gudni-is
- gudbjorgim
- gudfinnur
- mosi
- gummiogragga
- orri
- gudridur
- gudrunmagnea
- zeriaph
- gunnaraxel
- gbo
- coke
- gunnlaugurstefan
- gylfigisla
- holi
- hallurg
- handtoskuserian
- smali
- hannesjonsson
- hhbe
- haukurn
- heidistrand
- heidathord
- latur
- hlf
- tofraljos
- hildajana
- hildurhelgas
- hinrik
- kjarninn
- hlekkur
- hrafnhildurolof
- hrannarb
- hreinsi
- hvitiriddarinn
- hordurj
- hoskuldur
- hoskisaem
- ibbasig
- ingabesta
- ingibjorgstefans
- jara
- iagustsson
- ingo
- id
- jensgud
- jenni-1001
- joik7
- johannst
- skallinn
- joneinar
- joningic
- joninaros
- drhook
- jonthorolafsson
- juliaemm
- julli
- juliusvalsson
- komment
- killerjoe
- hjolaferd
- kjoneden
- kiddirokk
- kristjanmoller
- kvenfelagidgarpur
- lauola
- lara
- presleifur
- korntop
- matti-matt
- mortenl
- olimikka
- omarminn
- pallieinars
- pallkvaran
- pallijoh
- palmig
- robertb
- salvor
- xsnv
- fjola
- sigfus
- siggikaiser
- sigurjonsigurdsson
- stebbifr
- fletcher
- steindorgretar
- ses
- pandora
- kosningar
- svanurmd
- svenni
- saethorhelgi
- sollikalli
- thelmaasdisar
- tidarandinn
- tommi
- unnar96
- sverdkottur
- valdisa
- overmaster
- valgerdurhalldorsdottir
- valsarinn
- vefritid
- vestfirdir
- ver-mordingjar
- tharfagreinir
- steinibriem
- skrifa
- thordistinna
- thorirallajoa