24.4.2007 | 22:21
2 samviskuspurningar
Mikið var ég ánægður með mitt fólk í sjónvarpinu í kvöld. Jóhanna Sig sýndi sína góðu takta og sannar að það stenst hana enginn snúninginn þegar kemur að velferðarmálunum. Þar er hún einfaldlega á heimavelli og í algjörum sérflokki. Björgvin var einnig mjög góður í umræðum um menntamálin, enda hefur hann lagt ríka áherslu á þau og er mjög öflugur í þeim málaflokki eins og öðrum.
Þessir tveir málaflokkar birta vel nauðsyn þess að skipta hér um ríkisstjórn. Ríkisstjórnin hefur einfaldlega staðið sig illa í velferðarmálunum og hefði auðveldlega getað gert mun betur í menntamálum. Það sýnir samanburður á framlögum til grunnskólans, sem sveitarstjórnir landsins reka, og svo framlag til háskóla- og framhaldskólana sem ríkið rekur.
Kjósendur þurfa að svara a.m.k. tveimur grundvallarspurningum fyrir kosningar.
Sú fyrri er hvort að fólk vilji ríkisstjórn sem er ábyrg fyrir því að Ísland er í 21. sæti af 30 helstu iðnríkjum heims þegar kemur að opinberum útgjöldum í háskólana og hvort að fólk sé sátt við það að Ísland sé í 16. sæti þegar borin eru saman opinber úgjöld til framhaldsskóla.
Sú síðari varðar velferðarmálin og aðbúnað aldraðra. Vill fólk ríkisstjórn sem er ábyrg fyrir því að um 400 eldri borgarar eru í brýnni þörf eftir hjúkrunarrýmum og um 1.000 eldri borgara eru í þvingaðri sambúð með kolókunnugu fólki? Munum að það eru fjölmörg dæmi um eldri hjón sem hafa verið aðskilin á ævikvöldi sínu vegna skorts á búsetuúrræðum en þau eru á ábyrgð ríkisstjórnarinnar.
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 7
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 3
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Tenglar
Málin mín á Alþingi
- Afnám fyrningar í kynferðisafbrotum gegn börnum
- Óháðar rannsóknarnefndir
- Lögfesting Barnasáttmála
- Löggjöf um heimilisofbeldi
- Auglýsingar heilbrigðisstétta
- Sérdeild fyrir unga fanga
- Vernd heimildarmanna fjölmiðla
- Líffæragjafir í ökuskírteinum einstaklinga
- Rannsaka þunglyndi eldri borgara
- Sendiráð ESB á Íslandi
- Mistök í heilbrigðiskerfinu
- Fleiri þingmál
Eldri færslur
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Janúar 2009
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
- Desember 2006
- Nóvember 2006
- Október 2006
- September 2006
- Ágúst 2006
- Júlí 2006
- Júní 2006
- Maí 2006
- Apríl 2006
- Mars 2006
- Febrúar 2006
- Janúar 2006
- Desember 2005
- Nóvember 2005
- Október 2005
- September 2005
- Ágúst 2005
- Maí 2005
- Apríl 2005
- Febrúar 2005
- Janúar 2005
- Desember 2004
- Nóvember 2004
- Október 2004
- September 2004
- Ágúst 2004
- Júlí 2004
- Júní 2004
- Maí 2004
- Apríl 2004
- Mars 2004
- Febrúar 2004
- Janúar 2004
- Desember 2003
- Nóvember 2003
- Október 2003
- September 2003
- Ágúst 2003
- Júlí 2003
- Júní 2003
- Maí 2003
- Apríl 2003
- Mars 2003
- Febrúar 2003
- Janúar 2003
- Nóvember 2002
- Október 2002
Póstlisti
Skráðu netfang þitt hér að neðan.
Fólk
- - -
-
Litla fjölskyldan
Breiðfylking jafnaðarmanna
Mikilvægar stofnanir
Hagfræðin
-
Joseph Stiglitz
-
John Kay
-
Paul Krugman
-
Þorvaldur Gylfason
-
Ásgeir Jónsson
-
Tímaritið Economist
-
Seðlabanki Íslands
-
Rannsóknarmiðstöð um efnahagsmál
-
Ríkiskassinn
-
Hagstofan
Lögfræðin
Atvinnulífið
-
Alþýðusambandið
-
Viðskiptaráð Íslands
-
Samtök atvinnulífsins
-
Samtök iðnaðarins
-
Félag kvenna í atvinnurekstri
-
Samtök sprotafyrirtækja
-
Félag íslenskra stórkaupmanna
-
Samtök verslunar og þjónustu
-
Nýsköpunarsjóður atvinnulífsins
-
Impra nýsköpunarmiðstöð
Evrópusamstarf
Hjartans mál
Bloggvinir
- almapalma
- andri
- husmodirivesturbaenum
- arnalara
- ahi
- gusti-kr-ingur
- alfheidur
- arniarna
- asarich
- astan
- heilbrigd-skynsemi
- baldurkr
- bardurih
- kaffi
- bjarnihardar
- masterbenedict
- bleikaeldingin
- salkaforlag
- bryndisfridgeirs
- calvin
- charliekart
- rustikus
- dagga
- deiglan
- dofri
- egill75
- egillg
- eirikurbergmann
- eirikurbriem
- ernafr
- skotta1980
- kamilla
- evropa
- vinursolons
- ea
- fanney
- arnaeinars
- gesturgudjonsson
- gislihjalmar
- grumpa
- gudni-is
- gudbjorgim
- gudfinnur
- mosi
- gummiogragga
- orri
- gudridur
- gudrunmagnea
- zeriaph
- gunnaraxel
- gbo
- coke
- gunnlaugurstefan
- gylfigisla
- holi
- hallurg
- handtoskuserian
- smali
- hannesjonsson
- hhbe
- haukurn
- heidistrand
- heidathord
- latur
- hlf
- tofraljos
- hildajana
- hildurhelgas
- hinrik
- kjarninn
- hlekkur
- hrafnhildurolof
- hrannarb
- hreinsi
- hvitiriddarinn
- hordurj
- hoskuldur
- hoskisaem
- ibbasig
- ingabesta
- ingibjorgstefans
- jara
- iagustsson
- ingo
- id
- jensgud
- jenni-1001
- joik7
- johannst
- skallinn
- joneinar
- joningic
- joninaros
- drhook
- jonthorolafsson
- juliaemm
- julli
- juliusvalsson
- komment
- killerjoe
- hjolaferd
- kjoneden
- kiddirokk
- kristjanmoller
- kvenfelagidgarpur
- lauola
- lara
- presleifur
- korntop
- matti-matt
- mortenl
- olimikka
- omarminn
- pallieinars
- pallkvaran
- pallijoh
- palmig
- robertb
- salvor
- xsnv
- fjola
- sigfus
- siggikaiser
- sigurjonsigurdsson
- stebbifr
- fletcher
- steindorgretar
- ses
- pandora
- kosningar
- svanurmd
- svenni
- saethorhelgi
- sollikalli
- thelmaasdisar
- tidarandinn
- tommi
- unnar96
- sverdkottur
- valdisa
- overmaster
- valgerdurhalldorsdottir
- valsarinn
- vefritid
- vestfirdir
- ver-mordingjar
- tharfagreinir
- steinibriem
- skrifa
- thordistinna
- thorirallajoa
Athugasemdir
Sæll Ágúst,já ég horfði á þáttinn í gær með öðrum verkum mínum,og vissulega stóð Jóhanna sig vel eins og alltaf enda loks hennar tími kominn vona ég,og varðandi 16 sætið er það bara gamalt eurovision sæti sem við kærum okkur ekkert um aftur :) gangi ykkur allt í haginn.
kv.Úlli.
Úlfar Þór Birgisson Aspar, 25.4.2007 kl. 08:55
Það sem var áhugavert er að fylgjast með því hvernig Samfylkingarfólk keppist við að segja hvaða mál sé í fyrsta sæti hjá þeim.
Fagra Ísland, Unga Ísland, Velferð, Aldraðir, Menntun og Samgöngur. Allt er þetta hæsta forgangsmál fyrir Samfylkinguna, og allt eftir því hvað umræðuefnið er hverju sinni (og skoðanakannanir segja). Og aldrei er sagt hvernig eigi að borga.
Hvernig geta allir stærstu kostnaðarliðir ríkisins verið í fyrsta forgangi? Einhver er að ljúga.
Þessi hringlháttur ykkar í skoðunum veldur því að ykkur skortir allan trúverðugleika.
Kalli (IP-tala skráð) 25.4.2007 kl. 10:22
Ég held Kalli að þú sért nú búinn að gleyma til hvers ríkið var upphaflega stofnað. Því var ætlað að sjá til þess að löndum þínum væru tryggð mannsæmandi kjör, heilbrigðisþjónusta og menntun... auk vegagerðar o.þ.h. Upphaflegt markmið var ekki að eiga rosa flott sendiráð út um allt, byggja "bráðnauðsynleg" Héðinsfjarðargöng osfrv. Gæti skrifað ritgerð um bruðl núverandi ríkisstjórnar.
Það eruð þið sem hafið glatað trúverðugleika með forgangsröðun ykkar.
Anna Einarsdóttir, 26.4.2007 kl. 11:54
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.