Texasstrákurinn enn úti



Á síðastliðnu þingi tók ég upp á Alþingi mál íslensks ríkissborgara sem hlaut 10 ára fangelsisdóm í Texas fyrir minni háttar afbrot sem hann framdi þegar hann var 11 ára gamall.

Þá hafði viðkomandi einstaklingur setið í bandarísku fangelsi í meira en 7 ár og átti efir að sitja næstu 3 árin í ströngu stofufangelsi þar sem öll vinna er bönnuð, nánast öll samskipti við fjölskyldu og vini bönnuð og í raun öll útivera óheimil. Fylgst er með stráknum með staðsetningartæki og mun minnsta yfirsjón valda því að honum er hent aftur í grjótið.

Á sínum tíma beittu íslenskir embættismenn sér talsvert í málinu og fórr Bragi Guðbrandsson, forstöðumaður Barnaverndarstofu, meira að segja farið til Texas til að reyna að liðka fyrir málinu og eiga hann og aðrir embættismenn hrós skilið fyrir mikið starf og góðan vilja. En allt kom fyrir ekki og ekki var því hægt að fá leyfi fyrir strákinn til að ljúka afplánun sinni hér á landi.

Það var því mat þeirra sem hafa komið nálægt málinu að leiðir embættismanna væru fullreyndar og því bæri að grípa til annarra lausna. Ein þeirra er aðkoma stjórnmálamanna að málinu. Það verður bara að viðurkennast að sum milliríkjamál leysast ekki fyrr en þau komast á borð stjórnmálamanna. Í svona málum getur aðkoma stjórnmálamanna, ég tala ekki um ef þeir eru hátt settir eins og ráðherrar eru, skipt sköpum.

Vegna þessa tók ég þetta mál upp á þingi og beindi þeirri spurningu til þáverandi utanríkisráðherra, Halldórs Ásgrímssonar, hvort hann væri tilbúinn til að beita sér með beinum hætti fyrir lausn þessa sorglega máls, t.d. með því að hafa samband við stjórnvöld í Texas eða Washington til að umræddur Íslendingur geti lokið afplánun sinni hér á land.

Í umræðunni á þinginu á þeim tíma tók Halldór vel í þá umleitan og sagðist ætla að beita sér í málinu. Nú er liðið tæpt ár og ekkert bólar á stráknum heim. Eftir að ég tók þetta upp á þingi hef ég hins vegar rætt þetta bæði við Halldór Ásgrímsson og Helga Ágústsson, sendiherra í Washington, sem báðir sögðust hafa reynt að ná fram lausn þessa máls en ekkert hafi gengið í þeim efnum. Þeir sögðu þó báðir að enn væri einhver von á að málið gæti leyst en eftir sem tíminn líður verður maður sífellt svartsýnni.

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Nauðsynlegt er að skrá sig inn til að setja inn athugasemd.

Höfundur

Ágúst Ólafur Ágústsson
Ágúst Ólafur Ágústsson

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (21.6.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 12
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 3
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          
Leita í fréttum mbl.is

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband