21.9.2006 | 11:35
Svar til Viðskiptablaðsins
Á leiðarasíðu Viðskiptablaðsins föstudaginn 8. september sl. er fjallað um undirritaðan í dálki sem merktur er Tý. Þar er fjallað um blaðaskrif mín um efnahagsmál og þær athugasemdir sem ég hef gert við hagstjórn ríkisstjórnarinnar. Uppistaðan í pistli hins ónafngreinda pistlahöfundar Viðskiptablaðsins eru skrif á heimasíðu þröngsýnna hægri manna á andriki.is sem hafa allt annað að leiðarljósi en málefnalega eða sanngjarna umfjöllun um pólitíska andstæðinga sína og málefni þeirra. Pistlahöfundur Viðskiptablaðsins dettur því miður í sama pytt og umræddir hægri menn, sem hann kallar reyndar vini sína í pistlinum.
Hann segir að áhyggjur þær sem ég hef lýst af efnahagsástandinu bendi til þess að ég hafi ekki lesið þjóðhagspá Glitnis. Þá ýjar pistlahöfundurinn ónafngreindi að því að ég hafi verið að nýta þjóðhagsspá Glitnis til að villa vísvitandi um fyrir lesendum.
Það er lítið hægt að segja við pillum sem birtast á pólitískum heimasíðum eins og Andríki en mér finnst eiga að vera hægt að gera aðrar og meiri kröfur til virtra blaða eins og Viðskiptablaðsins. Það er alvarlegt að brigsla mönnum um að þeir séu vísvitandi að blekkja almenning. Undir því get ég ekki setið þegjandalaust.
Hvað stendur í skýrslunni?
Ég get upplýst lesendur, og pistlahöfund Viðskiptablaðsins, um að ég bæði las þjóðhagsspá Glitnis og mætti auk þess á kynningarfund bankans á henni. Ég stend ennfremur fast við þau orð mín að í spá Glitnis sé gert ráð fyrir að almenningur lendi í að borga brúsann fyrir efnahagsmistök ríkisstjórnarinnar. Skoðum nokkur dæmi:
Um framtíðarhorfur í efnahagsmálum segir orðrétt í umfjöllun Greiningar Glitnis að lendingin í hagkerfinu muni: " fela í sér tímabundna rýrnun kaupmáttar, lækkun eignaverðs og aukningu vanskila og gjaldþrota svo eitthvað sé nefnt."
Og síðan segir Glitnir að:"...nú blasir við tímabil mikillar verðbólgu, hárra vaxta og lækkun húsnæðisverðs. Skuldahlutföll sem eru í hærri kanti þess sem gerist á alþjóðavísu verða enn verri þegar skoðað er að íslensk heimili greiða mun hærri vexti af þessum lánum sínum en nágrannar þeirra í öðrum löndum."
Og áfram segir í þjóðhagsspánni: "Ljóst er að á þessu ári [mun greiðslubyrði heimilanna af lánum sem hlutfall af ráðstöfunartekjum] verða talsvert hærri og þrengja að þeim sem mest hafa skuldsett sig á undanförum árum og/eða þeim sem munu sökum versnandi atvinnuástands tapa ráðstöfunartekjum sínum að stórum hluta."
Og enn fremur segir bankinn að: "Atvinnuleysi mun aukast jafnt og þétt " og annars staðar í skýrslunni er gert ráð fyrir áframhaldandi hárri verðbólgu á næsta misseri og umtalsverðri sveiflu á gengi krónunnar.
Burtséð frá pólitískum viðhorfum pistlahöfundar Viðskiptablaðsins þá er engin leið að horfa framhjá því að allir þessir þættir; kaupmáttarrýrnun, vaxandi atvinnuleysi, gengissveiflur, háir vextir og verðbólga koma illa við hag bæði almennings og fyrirtækja.
Enda segir orðrétt í skýrslu Glitnis: "Hagur heimilanna hefur versnað nokkuð það sem af er ári og er útlit fyrir að hann muni versna enn á næsta ári þegar dregur frekar úr þenslu í hagkerfinu."
Mistök ríkisstjórnarinnar staðfest
Auðvitað er staðan í efnahagslífinu ekki alslæm, enda er veruleikinn sjaldnast svo einfaldur, jafnvel þó að Andríkismönnum og -konum verði æði oft á að líta á allt sem svart eða hvítt. En ég sem stjórnmálamaður, sem hef meðal annars menntað mig í hagfræði, hlýt að mega draga mínar ályktanir af þeim niðurstöðum sem birtast m.a. í þjóðhagsspá Glitnis án þess að vera sakaður um að vera að reyna að villa um fyrir almenningi.
Ég tel mikilvægt að stjórnmálamenn séu ábyrgir og hófsamir í allri umfjöllun um efnahagsmál. Ég er þannig óhræddur við að segja að sumt hefur verið ágætlega gert hér undanfarin ár en það þýðir ekki að horfa eigi framhjá því sem miður hefur farið.
Því miður hefur ríkisstjórnin gert óþarflega mörg mistök í hagstjórninni og verst þykir manni að það sé almenningur sem sýpur seyðið af þessu andvaraleysi ríkisstjórnarinnar. Ég hef áhyggjur af því að stjórnin sé einfaldlega ekki lengur á tánum eftir langa setu við völd. Ráðherrarnir séu ófúsir að taka á efnahagsmálunum fyrir kosningar sem gæti orðið atvinnulífinu dýrkeypt.
Því má svo bæta við að í hinni margumræddu þjóðhagsspá Glitnis er einmitt fjallað efnislega um nokkur mistök ríkisstjórnarinnar, s.s. aðhaldsleysi hennar í ríkisfjármálunum og benda skýrsluhöfundar á að: "Seðlabankinn mun áfram bera hitann og þungann af mótvægisaðgerðum gegn ofhitnun í hagkerfinu." Óvilhallir aðilar fjármálamarkaðarins hafa ítrekað fjallað um þessi sömu hagstjórnarmistök á opinberum vettvangi.
Í greinum mínum um efnahagsmál hef ég reynt að fara með málefnalegum hætti yfir þá þætti sem ég tel hafa misfarist í efnahagstjórnun ríkisstjórnarinnar og hef ég stuðst við fjölmargar skýrslur aðila fjármálamarkaðarins, þar á meðal Glitnis. Hafi lesendur áhuga á því að kynna sér þessi skrif þá má nálgast þau á heimasíðu minni, agustolafur.is.
Jafnvel þó ekki sé unnt að ætlast til þess að allir séu sammála þá getur ekki talist sæmandi fyrir hið góða blað Viðskiptablaðið að gera mönnum upp annarlegan ásetning á borð við þann að villa vísvitandi um fyrir almenningi eða fyrir að hafa ekki kynnt sér heimildir. Hvorugt á hér enda við.
Þessi grein birtist í Viðskipablaðinu 15. september sl.

Breytt 12.2.2007 kl. 14:53 | Facebook
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 7
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 3
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Tenglar
Málin mín á Alþingi
- Afnám fyrningar í kynferðisafbrotum gegn börnum
- Óháðar rannsóknarnefndir
- Lögfesting Barnasáttmála
- Löggjöf um heimilisofbeldi
- Auglýsingar heilbrigðisstétta
- Sérdeild fyrir unga fanga
- Vernd heimildarmanna fjölmiðla
- Líffæragjafir í ökuskírteinum einstaklinga
- Rannsaka þunglyndi eldri borgara
- Sendiráð ESB á Íslandi
- Mistök í heilbrigðiskerfinu
- Fleiri þingmál
Eldri færslur
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Janúar 2009
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
- Desember 2006
- Nóvember 2006
- Október 2006
- September 2006
- Ágúst 2006
- Júlí 2006
- Júní 2006
- Maí 2006
- Apríl 2006
- Mars 2006
- Febrúar 2006
- Janúar 2006
- Desember 2005
- Nóvember 2005
- Október 2005
- September 2005
- Ágúst 2005
- Maí 2005
- Apríl 2005
- Febrúar 2005
- Janúar 2005
- Desember 2004
- Nóvember 2004
- Október 2004
- September 2004
- Ágúst 2004
- Júlí 2004
- Júní 2004
- Maí 2004
- Apríl 2004
- Mars 2004
- Febrúar 2004
- Janúar 2004
- Desember 2003
- Nóvember 2003
- Október 2003
- September 2003
- Ágúst 2003
- Júlí 2003
- Júní 2003
- Maí 2003
- Apríl 2003
- Mars 2003
- Febrúar 2003
- Janúar 2003
- Nóvember 2002
- Október 2002
Af mbl.is
Póstlisti
Skráðu netfang þitt hér að neðan.
Fólk
- - -
-
Litla fjölskyldan
Breiðfylking jafnaðarmanna
Mikilvægar stofnanir
Hagfræðin
-
Joseph Stiglitz
-
John Kay
-
Paul Krugman
-
Þorvaldur Gylfason
-
Ásgeir Jónsson
-
Tímaritið Economist
-
Seðlabanki Íslands
-
Rannsóknarmiðstöð um efnahagsmál
-
Ríkiskassinn
-
Hagstofan
Lögfræðin
Atvinnulífið
-
Alþýðusambandið
-
Viðskiptaráð Íslands
-
Samtök atvinnulífsins
-
Samtök iðnaðarins
-
Félag kvenna í atvinnurekstri
-
Samtök sprotafyrirtækja
-
Félag íslenskra stórkaupmanna
-
Samtök verslunar og þjónustu
-
Nýsköpunarsjóður atvinnulífsins
-
Impra nýsköpunarmiðstöð
Evrópusamstarf
Hjartans mál
Bloggvinir
- almapalma
- andri
- husmodirivesturbaenum
- arnalara
- ahi
- gusti-kr-ingur
- alfheidur
- arniarna
- asarich
- astan
- heilbrigd-skynsemi
- baldurkr
- bardurih
- kaffi
- bjarnihardar
- masterbenedict
- bleikaeldingin
- salkaforlag
- bryndisfridgeirs
- calvin
- charliekart
- rustikus
- dagga
- deiglan
- dofri
- egill75
- egillg
- eirikurbergmann
- eirikurbriem
- ernafr
- skotta1980
- kamilla
- evropa
- vinursolons
- ea
- fanney
- arnaeinars
- gesturgudjonsson
- gislihjalmar
- grumpa
- gudni-is
- gudbjorgim
- gudfinnur
- mosi
- gummiogragga
- orri
- gudridur
- gudrunmagnea
- zeriaph
- gunnaraxel
- gbo
- coke
- gunnlaugurstefan
- gylfigisla
- holi
- hallurg
- handtoskuserian
- smali
- hannesjonsson
- hhbe
- haukurn
- heidistrand
- heidathord
- latur
- hlf
- tofraljos
- hildajana
- hildurhelgas
- hinrik
- kjarninn
- hlekkur
- hrafnhildurolof
- hrannarb
- hreinsi
- hvitiriddarinn
- hordurj
- hoskuldur
- hoskisaem
- ibbasig
- ingabesta
- ingibjorgstefans
- jara
- iagustsson
- ingo
- id
- jensgud
- jenni-1001
- joik7
- johannst
- skallinn
- joneinar
- joningic
- joninaros
- drhook
- jonthorolafsson
- juliaemm
- julli
- juliusvalsson
- komment
- killerjoe
- hjolaferd
- kjoneden
- kiddirokk
- kristjanmoller
- kvenfelagidgarpur
- lauola
- lara
- presleifur
- korntop
- matti-matt
- mortenl
- olimikka
- omarminn
- pallieinars
- pallkvaran
- pallijoh
- palmig
- robertb
- salvor
- xsnv
- fjola
- sigfus
- siggikaiser
- sigurjonsigurdsson
- stebbifr
- fletcher
- steindorgretar
- ses
- pandora
- kosningar
- svanurmd
- svenni
- saethorhelgi
- sollikalli
- thelmaasdisar
- tidarandinn
- tommi
- unnar96
- sverdkottur
- valdisa
- overmaster
- valgerdurhalldorsdottir
- valsarinn
- vefritid
- vestfirdir
- ver-mordingjar
- tharfagreinir
- steinibriem
- skrifa
- thordistinna
- thorirallajoa
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Þú ert innskráð(ur) sem .
Innskráning