Hvað er búið að gerast undanfarna 10 daga?

Eitthvað er þetta skrýtið, rétt fyrir kosningar, að ganga frá aukinni tannvernd barna. En það er ekki eins og að Framsóknarflokkurinn hafi ekki haft tíma til að ráðast í þetta, búinn að vera í ríkisstjórn stöðugt í 35 ár að 4 árum undanskildum.

Annars er með ólíkindum hvað ríkisstjórnarflokkarnir hafa gengið langt í að lofa útgjöldum inn í framtíðina. Nú er talan yfir kosningavíxla Sjálfstæðis- og Framsóknarflokks komin yfir 400 milljarðar króna á næstu 2 kjörtímabilum.

Þessa dagana fáum við þingmenn mýmarga tölvupósta frá ráðuneytunum um allt það nýjasta sem ráðherrarnir hafa lofað.

Mig langar að deila með ykkur nokkrum tölvupóstum sem ég hef einungis fengið síðastliðna 10 daga frá ráðherrunum en þetta er ekki tæmandi upptalning.

1. Heilbrigðisráðherra semur við Tannlæknafélag Íslands um tannlæknaþjónustu þriggja og tólf ára barna.

2. Menntamálaráðherra og samgönguráðherra undirrita samninga um samstarf menntamálaráðuneytis og samgönguráðuneytis við samtök sveitarfélaga á Norðurlandi eystra, Norðurlandi vestra, Vestfjörðum, Suðurlandi og Suðurnesjum um menningarmál og menningartengda ferðaþjónustu.

3. Heilbrigðisráðherra semur um geðheilbrigðisþjónustu á Sauðárkróki og Ísafirði.

4. Heilbrigðisráðherra tryggir aðgang að bóluefni gegn heimsfaraldri inflúensu.

5. Fjármálaráðherra undirritar kaupsamning um 15,2% hlut ríkisins í Hitaveitu Suðurnesja hf.

6. Heilbrigðisráðherra framlengir þjónustusamning við SÁÁ.

7. Heilbrigðisráðherra eykur styrki til kaupa á næringarefnum og sérfæði.

8. Félagsmálaráðherra undirritar þjónustusamning um málefni fatlaðra og samkomulag um ný búsetuúrræði og eflingu dagþjónustu og dagvist fyrir geðfatlað fólk í Þingeyjarsýslum.

9. Félagsmálaráðherra undirritar samkomulag um verkefni til að fjölga búsetuúrræðum og efla dagþjónustu og dagvist fyrir geðfatlað fólk á Austurlandi.

10. Félagsmálaráðherra undirritar þjónustusamning við Sveitarfélagið Hornafjarð um þjónustu við fatlaða.

11. Menntamálaráðherra úthlutar úr Þróunarsjóði grunnskóla 20 milljónir króna til 35 verkefna.

12. Menntamálaráðherra kynnir stefnu stjórnvalda í byggingarlist.

13. Menntamálaráðherra undirritar samning um samstarf menntamálaráðuneytis og samgönguráðuneytis við 16 sveitarfélög á Norðurlandi eystra um menningarmál og menningartengda ferðaþjónustu.

14. Menntamálaráðherra undirritar samstarfssamning um Orkuháskóla í tengslum við uppbyggingu Háskólans á Akureyri.

15. Heilbrigðisráðherra undirritar reglugerð sem felur í sér að Tryggingastofnun ríkisins er heimilt að taka aukinn þátt í kostnaði við tannlækningar fatlaðra og langveikra barna sem njóta umönnunargreiðslna og vegna tannlæknismeðferða þroskaheftra sem eru 18 ára og eldri.

16. Félagsmálaráðherra setur á fót skrifstofu barna- og fjölskyldumála í félagsmálaráðuneytinu.

17. Heilbrigðisráðherra gefur út stefnumörkun heilbrigðisyfirvalda í gæðamálum til ársins 2010.

18. Utanríkisráðherra og félagsmálaráðherra tilkynna að ríkisstjórnin hafi markað þá stefnu að tekið verði á móti hópi flóttamanna hér á landi á hverju ári.

19. Ríkisstjórnin samþykkir að veita Þjóðminjasafni Íslands 1,5 milljón króna styrk af ráðstöfunarfé sínu til að standa straum af kostnaði safnsins við móttöku á íslenskum munum sem Nordiska museet í Stokkhólmi hyggst afhenda Þjóðminjasafni til varðveislu.

20. Heilbrigðisráðherra veitir SAMAN hópnum Íslensku lýðheilsuverðlaunin 2007 fyrir að leiða saman ólíka aðila til stuðnings íslenskum foreldrum í vandasömu uppeldishlutverki þeirra.

21. Heilbrigðisráðherra skrifar undir samning um stækkun heilsugæslunnar á Siglufirði.

22. Heilbrigðisráðherra ákveður gagngerar endurbætur á Fjórðungssjúkrahúsinu í Neskaupsstað.


Og munið að þetta er bara það sem ég hef fengið tilkynningu um undanfarna 10 daga frá ráðherrunum.


mbl.is Samið um tannlæknaþjónustu og forvarnarskoðanir 3 og 12 ára barna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Pálmi Gunnarsson

Það þarf ekki að bæta miklu við þennan lista og standa við gefin loforð til að gera landið að útópísku alltíhimnaríkislagi landi. Þá þurfum við enga stjórn og hægt verður að selja Alþingishúsið undir hótel.

Pálmi Gunnarsson, 5.5.2007 kl. 21:44

2 Smámynd: Eggert Hjelm Herbertsson

Góð samantekt. Við erum var við þetta í NV kjördæmi. Svo þeysast ráðherrarnir um á ráðherrabílum, með einkabílstjóra og aðstoðarmann til að vinna í kosningabaráttunni fyrir þá - er þetta eðlilegt?

Eggert Hjelm Herbertsson, 5.5.2007 kl. 22:07

3 Smámynd: Hallgrímur Óli Helgason

af hverju gerðu þeir þetta ekki í fyrravor, af hverju núna, jú það eru að koma kosningar.

Hallgrímur Óli Helgason, 5.5.2007 kl. 22:17

4 Smámynd: Hallur Magnússon

Ágúst Ólafur.

Þetta er nú hræsni hjá þér sem er neðan þína virðingu sem vel gefinn, vel menntaðs og vel upplýsts manns sem alla tíð hefur fylgst með stjórnmálum.

Hvað varðar Framsóknarflokksinn, þá er það þótt þér finnist erfitt að viðurkenna það, að flokkurinn hefur verið að skrifa undir samninga og vinna að málum allt kjörtímabilið.

Tökum sem dæmi Jón Kristjáns og núna Siv.  Þau hafa skrifað reglulega undir mikilvæga samninga allt kjörtímabilið. Þið farið síðan af hjörunum þegar hún heldur áfram sínu striki og heldur áfram að skrifa undir mikilvæga samninga alveg fram að kosningum!

Þú veist það einnig að stærsti hluti þess sem verið er að ganga frá núna hefur verið í undirbúningi - jafnvel allt kjörtímabilið. Hræsni að gera lítið úr því.

Hvað varðar það sem setti pistilinn þinn af stað - tannverndinn - þá er Siv bara að vinna eftir samþykktum flokksþins Framsóknar.

Meira um það hérna:

Siv flott í gervi tannálfsins!

Hallur Magnússon, 5.5.2007 kl. 22:25

5 Smámynd: Lýður Pálsson

Þetta eru ágæt afköst. En í listann vantar ýmis ráðuneyti. Svona verður þetta hjá þínu ráðuneyti eftir fjögur, átta eða tólf ár! Ekki til peningar nema rétt fyrir kosningar. Öllu eytt fyrirfram af fráfarandi valdhöfum og þetta er sko ekki nýtt fyrirbrigði. BSV-stjórn eftir kosningar takk.

Lýður Pálsson, 5.5.2007 kl. 22:25

6 Smámynd: Hallur Magnússon

Flottur Lýður

Hallur Magnússon, 5.5.2007 kl. 22:54

7 Smámynd: Gestur Guðjónsson

Ég bíð enn eftir útlistingum á þessum fullyrðingum um 400 milljarða kosningavíxil. Það er ótrúverðugt hjá varaformanni stjórnmálaflokks sem vill láta taka sig alvarlega að slá svona fram órökstutt.

Gestur Guðjónsson, 5.5.2007 kl. 22:55

8 Smámynd: Lára Stefánsdóttir

Listinn er langur og spurning hverjar eru hinar raunverulegu kosningaskrifstofur.

Lára Stefánsdóttir, 5.5.2007 kl. 23:45

9 Smámynd: Bryndís G Friðgeirsdóttir

Úff, þetta er langur listi.  Ég var einmitt að blogga um ókeypis auglýsingar Sjálfstæðisflokksins á minni skíðu.  Þú ættir bara að vita hvernig þétta hefur verið hér á Vestfjörðum !!

Baráttukveðjur,

Bryndís Friðgeirs

Ísafirði 

Bryndís G Friðgeirsdóttir, 6.5.2007 kl. 01:11

10 identicon

Þegar ég vafra inn á blogg hinna ýmsu stjórnarandstöðuþingmanna þykist ég sjá eitt: Fjöldi stjórnarliða sem geysist fram í kommentakerfinu er fínn mælikvarði á áreiðanleika upplýsinganna. Eftir að hafa lesið komment Halls, Lýðs og Gests er ég orðin alveg sannfærð um að upplýsingarnar þínar standast nánari skoðun

Anna Ólafsdóttir (anno) (IP-tala skráð) 6.5.2007 kl. 02:32

11 Smámynd: Gísli Hjálmar

Framsóknar-mennskan er fyrir mér einsog alkóhólisti sem vaknar af löngu fylleríi og í allri þeirri vanlíðan sem því fylgir (timburmennirnir) þá að sjálfsögðu lofar hann bót og betrun.

En alkóhólistinn dettur alltaf í það aftur og aftur - og hvað þá?

kv. GHs

Gísli Hjálmar , 6.5.2007 kl. 13:21

12 Smámynd: Pálmi Gunnarsson

Gísli ... þegar menn hafa dottið aftur og aftur þá er þeim boðið uppá langtímameðferð ...  að því loknu taka menn sér mörg ár í að laga til eftir sig og jafna sig í hausnum.

Pálmi Gunnarsson, 6.5.2007 kl. 13:42

13 Smámynd: Gísli Hjálmar

Einmitt málið Pálmi ...

kv. GHs

Gísli Hjálmar , 6.5.2007 kl. 16:13

14 Smámynd: Inga Lára Helgadóttir

Það er aðeins lítill hluti alkóhólista sem nær bata frá sjúkdómi sínum, svo ég tek undir hjá Gísla

Inga Lára Helgadóttir, 6.5.2007 kl. 23:50

15 Smámynd: Björn Viðarsson

Samfylkingin býr sér illa í haginn með að láta ekki núverandi stjórn njóta sannmælis. Auðvitað vita allir að hér hefur verið margt jákvætt í gangi þó að sumt megi betur fara.

En að orða þetta þannig að hér sé allt í rjúkandi rúst setur ansi mikla pressu ef Samsfylkingin kemst í stjórn. Þá fáum við vonandi að kynnast hve lífið getur verið gott. Ja annars þarf flokkurinn að svara vel fyrir þær stóryrtu yfirlýsingar sem gengið hafa um hörmungarstandið á þjóðfélaginu sem D og B vilja viðhalda.

Björn Viðarsson, 7.5.2007 kl. 13:47

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Ágúst Ólafur Ágústsson
Ágúst Ólafur Ágústsson

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (26.4.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 3
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 3
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        
Leita í fréttum mbl.is

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband