Hagsmunir venjulegs fólks

AlþingisalurÍ vor verður kosið um forgangsröðun. Forgangsröðun Sjálfstæðisflokksins er þekkt. Skattalækkanir ríkisstjórnarinnar árið 2005 færðu 25% af hinu tekjuhæstu  2.500 milljónir kr. en 25% tekjulægstu fengu aftur á móti aðeins 300 milljónir kr. eða um 10 sinnum lægri upphæð.

Grunnskólakennari með meðallaun fékk um 1.900 kr. í skattalækkun sem dugar rúmlega fyrir einum bleyjupakka á mánuði. Á sama tíma fékk maður með milljón á mánuði um 23.000 kr. í skattalækkun mánaðarlega eða ígildi einnar utanlandsferðar í hverjum mánuði.

Kaupmáttaraukningunni er sömuleiðis mjög misskipt. Tekjulægstu 20% þjóðarinnar fengu 4 sinnum minni kaupmáttaraukningu en 10% tekjuefstu.

Skattbyrði 90% þjóðarinnar hefur þyngst
Skattbyrði 90% þjóðarinnar hefur þyngst samkvæmt svörum frá fjármálaráðherrum Sjálfstæðisflokksins. Skattbyrðin hefur einungis minnkað hjá 10% tekjuhæstu einstaklingunum. Það er sá hópur sem er með allra hæstu tekjurnar, fólk með meira en 1,2 milljón kr. á mánuði. Það er fólkið sem Sjálfstæðisflokkurinn ver með oddi og egg.

Svar Sjálfstæðismanna vegna sívaxandi skattbyrði hefur ætíð verið á sama veg, að tekjur fólks hafi aukist og því hafi skattbyrðin aukist. En hvernig má þá vera að fólk í topp 10% tekjuskalanum upplifir minni skattbyrði þrátt fyrir að tekjur þeirra hafi einnig aukist? Og hvernig má það vera að í löndunum í kringum okkur þar sem tekjur hafa einnig aukist upplifir fólk ekki þyngri skattbyrði?

kjosaAukin skattbyrði á láglaunahópum bitnar svo harðar á konum sem eru í meirihluta þessa hóps. Konur fá margar hverjar lægri laun vegna kynferðis og láglaunahópar bera svo í ofanálag hærri skattbyrði.

Týndi upp úr körfunni í Bónus
Það er nánast sama hvar borið er niður, niðurstaðan er að þessi ríkisstjórn er ekki ríkisstjórn venjulegs fólks, hins almenna launþega. Þetta er ríkisstjórn hinna fáu og ríkisstjórn misskiptingar enda telur 70% af þjóðinni að ójöfnuður hafi aukist.

Hvaða skilningi lýsir það þegar að Geir Haarde segir að ríkissjóð muni um hvern þúsundkall en ekki fólkinu í landinu. Ég hitti konu um daginn í Bónus sem sagði mér af því að hún hefði 27.000 krónur til að lifa af, þegar að hún var búin að borga húsaleiguna. Hún þurfti svo að týna upp úr matarkörfunni, því hún hafði ekki efni á helstu nauðsynjum. Þessa konu munar um svo sannarlega um hverja krónu. Það sem hún átti í lok mánaðar var þúsundkall.

Ríkisstjórnin með kosningavíxla upp á 400 milljarða
Ríkisstjórn Geirs Haarde er ábyrg fyrir alvarlegum hagstjórnarmistökum sem hver einasta greiningardeild, bæði innlend og erlend, OECD, Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn og meira að segja Seðlabankinn sjálfur, staðfestir þetta.

Almenningur þarf að greiða fyrir þessi hagstjórnarmistök með verðbólguskatti og heimsins hæstu vöxtum. Hagstjórnarmistökin hafa þær afleiðingar að á þessu ári þarf venjuleg fjölskylda að borga hálfri milljón kr. meira en ella.

Það er brýnt að koma á stöðugleika, það er hagsmunamál allra. Ábyrgðarlaus hagstjórn kristallast í kosningabaráttunni. Ríkisstjórnarflokkarnir  hafa lofað meira en 400 milljörðum kr. útgjöldum á næstu kjörtímabilum. Þetta er skóflustungupólitík ríkisstjórnarinnar þar sem allt er ákveðið á 12. ári og allt sem vantaði á að framkvæma á næsta kjörtímabili.

Samfylkingin er rödd skynseminnar og hún gengur skemur en aðrir flokkar í kosningaloforðum.

Við viljum ná tökum á hagstjórninni, lækka verðbólgu og skila afgangi á ríkissjóði.

Við viljum sömuleiðis ríkisstjórn sem setur hagsmuni venjulegs fólks í öndvegi. Ef þú vilt þetta kjóstu Samfylkinguna í kosningunum 12. maí.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Ágúst Ólafur Ágústsson
Ágúst Ólafur Ágústsson

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.4.): 2
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 8
  • Frá upphafi: 144263

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 8
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        
Leita í fréttum mbl.is

Af mbl.is

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband