Bloggfærslur mánaðarins, júní 2004

Frjálslynt fólk velur Samfylkinguna

Hegðun forsætisráðherra er stundum alveg með ólíkindum. Það líður vart sá dagur að forsætisráðherrann hágrenji ekki yfir fjölmiðlaumfjöllun um sig og telur sig búa við hörðustu pressu í heimi. Þessi forsætisráðherra myndi ekki þola við einn dag með bresku pressunni. Fólk sem hefur fyrir því að fletta erlendum blöðum veit það.
Forsætisráðherra neitar að tala við ákveðna fjölmiðla og slítur fundum þegar honum eru kynnt viðhorf - ekki skilyrði - stjórnarandstöðunarinnar gagnvart stjórnarskránni. Forsætisráðherra hikar ekki við að taka menn á teppið fyrir greinarskrif eða hella sér yfir Umboðsmann Alþingis fyrir að gefa ,,rangt" álit.

Hæstirréttur, Háskóli Íslands, Biskupinn, blaðamenn, Samtök iðnaðarins og nú síðast Þjóðkirkjan hafa fengið að kenna á geðvonskuköstum forsætisráðherra. Hegðun forsætisráðherra minnir einna helst á frekjuköst lítils barns.
Kjósendur verða að geta sýnt flokkunum rauða spjaldið
Þetta gengur ekki svona lengur. Það er grundvallaratriði að fólk líti ekki á flokka eins og fótboltalið sem það heldur með í gegnum súrt og sætt. Flokkar eiga ekki að eiga kjósendur. Kjósendur eiga stjórnmálaflokkana. Kjósendur eiga að vera virkt aðhald fyrir stjórnmálaflokkana. Það breytist ekkert í okkar samfélagi ef hinn almenni kjósandi gerir ekki kröfur til stjórnmálaflokkana og stjórnvalda.

Margir kjósendur Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks geta átt farsæla samleið með Samfylkingunni. Ef við lítum á raunveruleg verk Sjálfstæðisflokks undanfarið ár þá kemur margt áhugavert í ljós.
Verk Sjálfstæðisflokksins tala sínu máli

Sjálfstæðisflokkurinn setur sértæk fjölmiðlalög sem ganga miklu lengra en þörf er á og eru alvarlegt inngrip í markaðinn. Sjálfstæðisflokkurinn setur ein hörðustu og ósanngjörnustu útlendingalög sem til þekkist í Evrópu. Sjálstæðisflokkurinn ákveður að verja 27 milljörðum í mjólkursamning. Sjálfstæðisflokkurinn leggur fram frumvarp þar sem gert er ráð fyrir hlerun án dómsúrskurðar og takmörkun á rétti borgara til gjafsóknar. Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins verja á þingi skilyrðislausan rétt atvinnurekanda á lífsýnatöku úr launþegum sínum. Sjálfstæðisflokkurinn stundar vinaráðningar og hunsar jafnréttislög og stjórnsýslulög. Klíkuskapurinn er ofar landslögum. Og á hverju hafnar Sjálfstæðisflokkurinn lagasetningu um fjármál stjórnmálaflokkana. Hvers vegna skyldi það vera?
Sjálfstæðisflokkurinn veitir Háskóla Íslands minna fjármagn en sem nemur fjölgun nemenda. Sjálfstæðisflokkurinn setur lög sem heimilar ríkisábyrgð til eins fyrirtækis fyrir um 20 milljarða króna. Sjálfstæðisflokkurinn þrengir að einkaframtaki á fjölmiðlamarkaðinum með því að neita að taka ríkisfjölmiðlinn af auglýsingamarkaðinum. Ríkisstjórnin fer fram úr fjárlögum á hverja einasta ári og hefur sett fjáraukalög fyrir tugmilljarða króna.
Samfylkingin er fyrir frjálslynda Íslendinga

Samfylkingin vill hins vegar frelsi og virka samkeppni í atvinnulífinu og ríka vernd persónuréttinda. Samfylkingin vill að sett verði lög um fjármál stjórnmálaflokkana og að frelsi ríki á fjölmiðlamarkaðinum. Samfylkingin vill öflugt heilbrigðiskerfi fyrir alla, þar sem einkarekstur fær að njóta sín. Samfylkingin vill verja meiri fjármunum í menntakerfið og endurskoða landbúnaðarkerfið frá grunni.
Samfylkingin vill frjálslynt samfélag með ábyrgri efnahagsstjórnun. Samfylkingin er í raun eina skjól frjálslyndra Íslendinga í íslenskum stjórnmálum.

Höfundur

Ágúst Ólafur Ágústsson
Ágúst Ólafur Ágústsson

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.3.): 1
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 2
  • Frá upphafi: 144237

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 2
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            
Leita í fréttum mbl.is

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband