Eiríkur Hauks grætir barn

Í kvöld verður tekin pása frá Rósastríðinu mikla. Því í kvöld mun fjölskyldan á Framnesveginum safnast saman fyrir framan skjáinn til að bera Eirík nokkurn Hauksson augum. Á heimilinu er gríðarlega spenna fyrir kvöldinu. Það er búið að ræða Júróvisjón fram og tilbaka undanfarna daga og skipuleggja flókna pizzugerð í kvöld.

Þá eru myndir af rauðhærða kappanum reglulega klipptar út úr blöðunum og farið með í leikskólann. Eldri dóttirin (4) tók sig meira að segja til og ákvað að sofa með mynd af Eiríki Hauks. Svo var grátið heil ósköpin daginn eftir þegar kom í ljós að myndin hafði færst til um nóttina og dottið bak við rúmið.

En það er vonandi að rauði liturinn verði sigursæll næstu daga.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hlynur Þór Magnússon

Fremur lítinn áhuga hef ég á framvindunni í Júróvisjón og þeim mun síður óska ég rauða litnum í pólitíkinni velfarnaðar! Hitt líkar mér ákaflega vel að sjá loksins á ný orðalagið gamalgróna bera augum þar sem flestir nota nú skoporðalagið berja augum ...

Hlynur Þór Magnússon, 10.5.2007 kl. 19:48

2 Smámynd: Hlynur Þór Magnússon

P.s.: Berðu bestu kveðjur til Framnesvegarins gamla og Holtsgötunnar, þar sem ég átti heima í gamla daga rétt við hornið og verslaði í Baldri og svo auðvitað í mjólkurbúðinni og fiskbúðinni efst í brekkunni. Seinna eða á áttunda áratugnum átti ég reyndar heima á Bárugötu fjögur, en það er næsta hús við Bárugötu tvö ...

Hlynur Þór Magnússon, 10.5.2007 kl. 19:54

3 Smámynd: Inga Lára Helgadóttir

Ææ fór sú litla að gráta. Þau eru svo einlæg þessu litlu kríli

En fór sem fór með hann Eirík, það var leitt hvernig fór fyrir þeim rauða þetta kvöldið , en þér mun ganga vel á laugardaginn

Kveðja Inga 

Inga Lára Helgadóttir, 10.5.2007 kl. 23:06

4 Smámynd: Sigfús Sigurþórsson.

Hahahaha, hér á bæ var og er eitthvað svipað í gangi, prinsessan mín 7 ára ÁTTI "kærasta" sem er í sama skóla og hún, en eftir að farið var að spila lagið með Eiríki Hauks, fékk "kærastinn" að fjúka, og staðhæfir hún núna að hann hafi unnið þrátt fyrir að það var ekki einusinni tekið eftir okkur. Þau eru alveg indisleg þessi börn.

Sigfús Sigurþórsson., 10.5.2007 kl. 23:33

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Ágúst Ólafur Ágústsson
Ágúst Ólafur Ágústsson

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.4.): 2
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 8
  • Frá upphafi: 144263

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 8
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        
Leita í fréttum mbl.is

Af mbl.is

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband