Ragnar Reykás og rósastríđiđ

Undanfarna daga höfum viđ frambjóđendur Samfylkingarinnar hér í Reykjavík gengiđ í hús til ţess ađ spjalla viđ kjósendur og gefa ţeim rósir. Ţetta framtak hefur tekist mjög vel upp og ţessar göngur hafa reynst mjög skemmtilegar. Ţetta er góđ leiđ til ţess ađ spjalla viđ kjósendur og fólk virđist taka ţessu framtaki vel. Ég hef gengiđ í nokkur hverfi, m.a. í Breiđholtinu, Árbć, miđbćnum og í Laugardalnum. 

Ég tók eftir ţví ađ Gummi Steingríms flokksfélagi minn nefndi ţađ um daginn á blogginu ađ hann vćri svo upptekinn ađ hann hefđi lítinn tíma fyrir bloggiđ. Ég er honum sammála um ţađ. Og ţađ er auđvitađ nokkuđ fyndiđ til ţess ađ hugsa ađ nú ţegar ađ frambjóđendur allra flokka vilja hvađ ţeir geta koma sínum sjónarmiđum á framfćri ađ ţá eru ţeir svo uppteknir í baráttunni ađ ţeir hafa varla tíma til ţess ađ skrifa. En auđvitađ gefur ţađ manni mest ađ hitta kjósendur augliti til auglitis og sá ţáttur baráttunnar fer auđvitađ í algjöran forgang.

Ég heyri ţađ líka ađ fólki finnst kosningabaráttan róleg og jafnvel bragđdauf. Ţađ er ţó ekki tilfinning okkar sem förum á milli vinnustađa, ţví fólk er greinilega mikiđ ađ velta kosningum fyrir sér, hugsanlegu stjórnarmynstri ađ loknum kosningum og viđ fáum margar spurningar – sem mér finnst til marks um ţađ ađ fólk er svo sannarlega međ hugann viđ kosningarnar.

Ég náđi ađ horfa á kosningaţátt Íslands í dag í gćrkvöldi og hafđi gaman af. Ég var mjög ánćgđur međ frammistöđu Össurar, enda er međ mćlskari og skemmtilegri ţingmönnum. Ég var hjartanlega sammála nálgun hans á ummćlum Ástu Möller. Ţar held ég ţví miđur ađ hafi ekki veriđ á ferđinni skođun eins ţingmanns, ţarna birtist enn á ný tortryggni Sjálfstćđismanna í garđ forsetans. Satt ađ segja furđa ég mig á ţví ađ Ásta skuli fyrir ţađ fyrsta hafa tekiđ undir međ Reykjavíkurbréfi Moggans (og ţar er ég aftur sammála Gumma Steingríms – mađur á aldrei ađ taka undir Reykjavíkurbréf!) en ég er ekki síđur hissa á ţví ađ hún skuli hafa látiđ hafa sig út í ţađ ađ mćta í viđtal og draga algjörlega í land međ ţađ sem hún hafđi sagt fyrr sama dag. Ţetta minnti óneitanlega á ţann ágćta mann, Ragnar Reykás.


« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Páll Jóhannesson

Hins vegar hefur Ragnar Reykás meir sannfćringarkraft en Ásta og kemur sér betur út úr sínum eigin vandrćđum

Páll Jóhannesson, 4.5.2007 kl. 08:07

2 Smámynd: Jens Sigurjónsson

En hún sá ađ sér og bakkađi út úr vitleysunni.

Jens Sigurjónsson, 4.5.2007 kl. 08:35

3 Smámynd: Hilda Jana Gísladóttir

Stundum hagar mađur seglum eftir vindi og stundum bara eftir ţví hvort ađ ţađ er fyrir eđa eftir hádegi :-)

Hilda Jana Gísladóttir, 4.5.2007 kl. 09:37

4 Smámynd: Bjarni Kjartansson

Ég veit, ađ allmargir mćra Ólaf Ragnar einnig er mér ljós sú stađreynd, ađ hann verđur aldrei neitt sameiningartákn ţjóđarinnar.  Til ţess á hann sér of langa fortíđ og mis bjarta í stjórnmálunum.

Ađra ţekki ég, sem ekki líta hann réttu auga sakir framgöngu á sínum yngri árum fyrir Vestan.  Líklega eru ţar í hópi frćndur ţínir allmargir.  Ţar var lagt mat á menn eftir dugnađi til verka og ósérhlífni, ekki eftir refskap.

Ég er í ţeim hópi sem ber ekkert sérlegt traust til ÓRG.

Ég hygg, ef litiđ er yfir gjörđir hans, ađ honum yrđi lausari höndin til annars en rita umbođ til ,,Borgaralegra flokka".

Miđbćjaríhaldiđ

Bjarni Kjartansson, 4.5.2007 kl. 10:00

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Höfundur

Ágúst Ólafur Ágústsson
Ágúst Ólafur Ágústsson

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (16.5.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 13
  • Frá upphafi: 0

Annađ

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 13
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar

Maí 2024
S M Ţ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  
Leita í fréttum mbl.is

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband