Hátækni og stjórnvöld

Þingmenn Samfylkingarinnar fóru um daginn í viðamikla útrás í öll kjördæmi landsins. Þar hittum við fjöldann allan af fólki og kynntumst ýmsum fyrirtækjum og stofnunum.

Afar fróðlegt var að heimsækja nokkur hátæknifyrirtæki s.s. Marel, Orf-líftækni, CCP-tölvuleikjafyrirtækið, Actavis og Marorku. Hjá þessum fyrirtækjum blasti við frumkvæði, áræðni og mikill sköpunarkraftur.

Hins vegar bentu öll þessi fyrirtæki á ákveðið skilningsleysi meðal stjórnvalda. Á meðan önnur ríki gera allt sem í þeirra valdi stendur til að gera starfsumhverfi hátækni- og sprotafyrirtækja aðlaðandi mæta þessi fyrirtæki áhugaleysi og skilningsleysi hér á landi. Meðal annars var bent á of lága rannsóknarstyrki, óhagstæðar skattareglur miðað við önnur lönd, gengisóvissu og væntanlegan skort á iðn- og raunvísindamenntuðu fólki.
Þögn Samtaka atvinnulífsins
Flest þessara fyrirtækja bentu sömuleiðis á þann gríðarlega ókost sem felst í íslensku krónunni. Það er alveg ljóst að íslensk fyrirtæki búa ekki við stöðugleika á meðan íslenska krónan er við lýði. Þegar allt að 40% sveiflur eru á gjaldmiðlinum er erfitt að gera áætlanir fram í tímann. Full aðild að Evrópusambandinu með evruna sem gjaldmiðil myndi færa íslenskum fyrirtækjum langþráðan stöðugleika ásamt gríðarlegum möguleikum til vaxtar og velferðar.

Alls staðar annars staðar í Evrópu hefur viðskiptalífið á viðkomandi stað gegnt lykilhlutverki í þrýstingnum fyrir aðild að Evrópusambandinu enda hagsmunirnir augljósir. En eins og einn forstjórinn sagði á þessum fundum þá er það mjög sérstakt að Samtök atvinnulífsins og Viðskiptaráð Íslands hafi ekki ályktað fyrir ESB aðild Íslands eins og öll önnur sambærileg samtök erlendis hafa gert. Þögn þessara aðila er ekki í samræmi við hagsmuni íslenskra fyrirtækja.
Sæeyru og hjúkrunarheimili
Sömuleiðis tók ég þátt í útrásinni í Suðurkjördæmi og sá í fyrsta skipti með eigin augu lifandi fyrirbæri sem heitir sæeyru. Minn hópur heimsótti þar m.a. eldisstöðvar, hitaveitu, grunnskóla og hjúkrunarheimili.

Það er alltaf fróðlegt að kynnast mismunandi sviðum atvinnulífsins og sjá vandann með eigin augum sem mörg fyrirtæki og stofnanir þurfa að kljást við á hverjum degi.

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Nauðsynlegt er að skrá sig inn til að setja inn athugasemd.

Höfundur

Ágúst Ólafur Ágústsson
Ágúst Ólafur Ágústsson

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (8.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 17
  • Frá upphafi: 144286

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 17
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  
Leita í fréttum mbl.is

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband