Hættum að deila um staðreyndir og förum að tala um pólitík

Það er voðalega leiðinlegt í íslenskri stjórnmálaumræðu hvað sumir eru viljugir til að deila um staðreyndir. Ráðherrar gera tölfræði frá virtum aðilum eins og OECD tortryggilega, tölur frá Alþýðusambandinu eru einnig ekki nógu góðar að þeirra mati, sömu sögu má segja um tölfræði frá Landssambandi eldri borgara og ráðherrarnir gera meira að segja tölfræði frá sjálfum sér, s.s. um þróun skattbyrði eða fjölda fátækra barna, einnig tortryggilega eins furðulegt og það hljómar.

Það væri mikið framfaraspor ef stjórnmálamenn gætu komið sér saman um staðreyndirnar en deilt síðan um túlkun þeirra og áhrif. Það þarf því að efla alþjóðlegan samanburð og auka vægi hlutlausra greiningaraðila á sviði hagstjórnar og félagsmála. Það voru t.d. mikil mistök hjá Sjálfstæðisflokknum að leggja niður Þjóðhagsstofnun.


mbl.is Benda á villandi tölur stjórnarþingmanna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Gísli Hjálmar

Er ekki bara málið að kjósa RÉTT!

Og það má velta því upp hvort þessi ríkisstjórn sé ekki einfaldlega "barn síns tíma" ...

Gísli Hjálmar , 8.5.2007 kl. 12:09

2 identicon

Það er skiljanlegt að hinir svokölluðu talsmenn skattalækkana vilji ekki kannast við OECD. Sérstaklega með tilliti til talna eins og þessara sem koma fram í þessari grein.  http://di.se/Index/Nyheter/2007/05/08/232383.htm?src=xlink

Í sjöunda sæti yfir þau lönd sem hafa hæstu skattinnheimtuna og hefur aukist um 50 punkta á milli ára. Sýnir bara að tal XD um skattalækkanir er innistæðulaust hjal.

Þá er ekki furða að menn vilji ekki segja neitt, bara brosa og vera sætir. Litlum orðum fylgir lítil ábyrgð.

Bestu kosningakveðjur

Magnús Bjarnason (IP-tala skráð) 8.5.2007 kl. 14:00

3 Smámynd: Eiríkur Ingvar Ingvarsson

Er hægt að deila um staðreindir....

Þegar staðreyndafælnin verður ofaná þá er gripið til þess þunna ís sem pólitíkin er. Það er þörf á því að viðurkenna það sem vel er gert. Kjósendur finna það á sínu eigin skinni að hlutirnir eru allment í góðu lagi, það að reyna að sannfæra kjósendur um annað er ekki rétt og að mínu mati endar það í færri atkvæðum.

Nú skrifa ég sem Jafnaðarmaður að ég held að kostningarbaráttan hefði verið árangursríkari ef staðreyndir hefðu verið viðurkendar og komið með tillögur að nýjum áherslum. Þá á ég ekki við tannheilsu barna sem verður alltaf á ábyrggð foreldra, ekki stofnanna.

Eiríkur Ingvar Ingvarsson, 8.5.2007 kl. 14:43

4 Smámynd: Björn Viðarsson

Það er ekki auðvelt að halda því fram að allt sé á vonarvöl þegar ríkissjóður er skuldlaus, kaupmáttur eykst meira hér en annars staðar, skattar lækka frá ári til árs,  atvinnuleysi er ekkert o.s.frv.

Maður gæti haldið að við hefðum það bara þokkalegt. Ef þetta er afleit hagstjórn hvernig er þá úrvals hagstjórn? Hvurs lags ofurmenni bíða okkar eiginlega á bekknum í stjórnarandstöðunni? 

Björn Viðarsson, 8.5.2007 kl. 16:12

5 Smámynd: Jónas Tryggvi Jóhannsson

Björn lifir í daumaveröld Sjálfstæðisflokksins, þar sem það skiptir engu máli að almenningur á Íslandi sé sá skuldugasti í heimi.. og það þykir svaka fínt að að hagvöxtur verði tæplega 1% á þessu ári og 3% árin 2008 og 2009 þegar meðal hagvöxtur í heiminum er 5%. Hvaða svakalegi árangur er það?

Kaupmáttaraukning verður ekki án hagvaxtar, og það er greinilegt að fjárfestingar núverandi ríkistjórnar hafa ekki skilað árangri. Það stefnir í hallarekstur ríkisjóðs á næsta ári, og 5% atvinnuleysi árið eftir það skv. seðlabankanum.. og enn hreykja Sjálfstæðismenn sér af glæstum árangri!

Það þarf enga snillinga til að gera betur, það þarf bara eitthvað annað en dýralækna og íhaldsmenn! því betur þarf ef duga skal, því við erum byrjuð að dragast aftur úr.

X-Samfylkingin fyrir nýrri og ferskari ríkistjórn takk! og Ágúst Ólaf sem fjármálaráðherra :)

Jónas Tryggvi Jóhannsson, 8.5.2007 kl. 17:52

6 Smámynd: Fannar frá Rifi

Jónas þú vilt semsagt hemja þessa skuldasöfnun Íslendinga? Það er þú vilt fá að stjórna því hvort Jón og Sigga í næsta húsi fá að taka lán fyrir nýrri íbúð. Þú vilt hafa hemil á almenningi og hugsa fyrir hann. 

5% atvinnuleysi? Kannski ef við gengjum í ESB. Eftir að hafa borgað niður erfðaskuldir vinstristjórna þá talara um hallarekstur. hvurslags vitleysa er þetta. Meðan Sjálfstæðisflokkurinn er með fjármálaráðaneytið mun ekki verða 5% atvinnuleysi (undanskilið ef á skilli heimskreppa).

Ef þú fylgdist ekki með fréttum þá var atvinnuleysi í desember síðastliðnum 0.9%. Náttúrulegt atvinnuleysi er 1.5%. Náttúrulegt atvinnuleysi er þeir sem eru á millistarfa, námsmenn að koma úr skóla og þeir sem vilja ekki vinna. 

Síðastliðin ár höfum við búið við mestu velsæld í heiminum. Við höfum það svo gott að vandamálinn sem við tölum um eru af þeim toga að um þau er einungis fjallað á tímum góðæris.

Hver talar um tannheilsu barna þegar atvinnuleysi er viðvarandi, verðbólgan sú mesta í allri norður álfu og það er landflótti Íslendinga til útlandi í leit að betri kjörum. eða réttara sagt ástand mála eftir hagstjórnar hamfarir síðustu vinstri stjórnar. 

Fannar frá Rifi, 9.5.2007 kl. 00:23

7 Smámynd: Inga Lára Helgadóttir

Ágúst Ólafur, ekki í fyrsta sinn sem þú kemur með eitthvað sem ég hef svo mikið hugsað áður. En þetta er svo rétt hjá þér og ég vildi óska að fleiri mundu hugsa eins. Það er svo leiðinlegt að fá sitthvorar tölur úr öllum áttum. 

En eins og oft áður hittir þú naglann á höfuðið

Kveðja Inga 

Inga Lára Helgadóttir, 9.5.2007 kl. 00:34

8 identicon

Ég er sammála þér Ágúst varðandi þessa umræðu. Mér finnst það óábyrgt af stjórnmálamönnum að taka t.d. ekki virtar stofnanir á sínu sviði alvarlega. Það hefur margoft gerst að ef þeim líkar ekki útkoman byrja þeir að tala niðurstöðurnar með einhverjum hætti niður. Þeir hafa meira að segja látið svona með sjálfa stjórnarskrána.

Ég sakna líka margs í kosningaumræðunni, t.d. umræðunnar um evru-mál og ESB. Hvenær ætla stjórnmálamenn og þá meina ég í ÖLLUM flokkum að þora að taka þá umræðu? Hvað eru þeir hræddir við?

Anna Ólafsdóttir (anno) (IP-tala skráð) 9.5.2007 kl. 01:26

9 Smámynd: Björn Viðarsson

Jónas, Jónas. Ef þú hefur áhyggjur af litlum hagvexti kjóstu þá framsókn (eða D). Samfylking er að tala um aðhald og stóriðjuhlé og fleira. Skapar það hagvöxtinn sem þú vilt?

Og hafa fjárfestingarnar ekki skilað sér? Hefur ekki verið kaupmáttaraukning? Hvar býrð þú?

Björn Viðarsson, 9.5.2007 kl. 09:11

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Ágúst Ólafur Ágústsson
Ágúst Ólafur Ágústsson

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.4.): 2
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 8
  • Frá upphafi: 144263

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 8
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        
Leita í fréttum mbl.is

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband