Hundur í óskilum

Samfylk-logo-IIIÍ dag hefst landsfundur Samfylkingarinnar í Egilshöll og verður mikið um að vera. Við fáum þungavigtargesti á landsfundinn. Mona Sahlin, formaður sænska jafnaðarmannaflokksins og Helle Thorning-Schmidt, formaður danska jafnaðarmannaflokksins munu ávarpa fundinn við setningu hans kl. 16 í dag.

Allt áhugafólk um stjórnmál er hvatt til að mæta og hlusta á þessa öflugu stjórnmálaleiðtoga.

Annars hefst málefnastarfið kl. 13 í dag og eru landsfundarfulltrúar hvattir til að taka þátt í því. Sveitastjórnarráð Samfylkingarinnar heldur sinn fund á landsfundinum ásamt 60+ og Kvennahreyfingunni. Ungliðarnir verða sömuleiðis áberandi á fundinum.

Fjölmargir spennandi frummælendur verða á landsfundinum. Má þar nefna Þórólf Árnason forstjóra SKÝRR, Svöfu Grönfeldt rektor Háskólans í Reykjavík, Bjarna Ármannsson forstjóra Glitnis, Einar Kárason rithöfund, Dagný Ósk Aradóttur formann Stúdentaráðs, Viðar Hreinsson, forstöðumann ReykjavíkurAkademíunnar og Amal Tamimi, fræðslufulltrúa Alþjóðahúss.

En það verður ekki bara pólitík á landsfundinum heldur einnig skemmtanir og fjör. Hundur í óskilum, Baggalútur og Sprengjuhöllin munu spila. Þá munu Fóstbræður og Sigrún Hjálmtýsdóttir syngja. Síðan verður haldið lokahóf á laugardagskvöldinu á Grand Hótel þar sem Jafnaðarmannabandið Suðsuðvestur mun m.a. troða upp.

Sem fyrr tek ég fram að fólk þarf ekki að vera skráðir landsfundarfulltrúar eða flokksfélagar til að geta mætt á landsfundinn og fylgst með. Hvet því fólk til að kíkja upp í Egilshöll í dag og á morgun.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Bjarni Kjartansson

Jú jú, þurfið að skreyta ykkur með aðfengnu.  Heimafengnu baggarnir eru nú ekki á pari við það sem við bjóðum uppá í Laugardalshöllinni.  he he.

 Gott að ita, að gagnheilir Íhaldsmen tali yfir hausamótunum á ykkur.  Nafni hefur svosum ekki veri Krati, að því er ég best veit.  Grönfeldt er nú frekar á okkar línu, síðast þegar ég vissi.

Góða skemmtun, bið að heilsa karli föður þínum, vorum samtíða í Miðbæjarskólanum og síðar í framhaldinu.

Einnig var Össi minn samverkamaður minn í Fjósinu við MR.

Miðbæjaríhaldið

Verður á öðrum og merkilegri Landsfundi, sko ORGINALNUM altso.

Bjarni Kjartansson, 13.4.2007 kl. 09:53

2 Smámynd: Haukur Nikulásson

"Hundur í óskilum" er þvílík skemmtun að jafnvel ég gæti þolað málflutning Samfylkingarinnar í smá stund fyrir þá. Skemmtið ykkur vel!

Haukur Nikulásson, 13.4.2007 kl. 10:42

3 Smámynd: Þarfagreinir

Sjálfur er ég spenntastur fyrir Baggalúti. Góð dagskrá.

Þarfagreinir, 13.4.2007 kl. 10:54

4 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Það er nú lélegt að smala á landsfundinn með góðum skemmtiatriðum og hafa allt opið, þetta er eitt dæmið enn um stjórnleysið innan flokksins. Við sjálfstæðismenn höfum annan hátt og og MIKLU færri komast að en vilja, ég kemst reyndar ekki núna vegna veikinda og finnst mér það fúlt, skemmtilegustu samkomun sem ég veit eru landsf. Sjálfstm.

Ásdís Sigurðardóttir, 13.4.2007 kl. 12:08

5 Smámynd: Júlíus Valsson

Mona Sahlin? Er það ekki þessi með kreditkortið?

Júlíus Valsson, 13.4.2007 kl. 12:44

6 identicon

Úff, misskildi fyrirsögnina - greinin leggur sumsé ekki til að hundar fái kosningarétt .

Guðmundur G. Hreiðarsson (IP-tala skráð) 13.4.2007 kl. 12:45

7 Smámynd: Margrét St Hafsteinsdóttir

Voðalega eru allir eitthvað neikvæðir hérna sem eru að skrifa athugasemdir Eiginlega bara dónalegir. Ég hef verið fylgjandi Samfylkingunni en er ekki ákveðin hvort ég kýs hana næst. Kíktu endilega á pistlana á minni síðu þar sem ég fjalla um ýmis þjóðfélagsmál sem mér og fleirum er hugleikin. Kveðjur með óskum um gott gengi.

Margrét St Hafsteinsdóttir, 13.4.2007 kl. 15:08

8 Smámynd: Jón Einar Sverrisson

Það er svo merkilegt með þetta sjálfstæðisfólk hvernig þau reyna að gera lítið úr framtaki Samfylkingarinnar. Það hafa flestir unun að skemmtilegri tónlist og sú staðreynd að Samfylkingin hefur opið landsþing er merki um að flokkurinn er allra. Málflutningur margra hægrimanna og sjálfstæðismanna er svo ómálefnalegur á stundum að það er þeim sjálfum og flokknum til lækkunar, þó það eigi kannski ekki við um þá sem hér setja inn athugasemdir. En ómálefnaleg eru þau þó.

Jón Einar Sverrisson, 14.4.2007 kl. 00:21

9 Smámynd: Steindór Grétar Jónsson

Leiðinlegt reyndar að Hundur í óskilum urðu veðurtepptir fyrir norðan! En Diddú teygði bara lopann sem var fínt.

Steindór Grétar Jónsson, 16.4.2007 kl. 02:10

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Ágúst Ólafur Ágústsson
Ágúst Ólafur Ágústsson

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (5.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 17
  • Frá upphafi: 144278

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 17
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  
Leita í fréttum mbl.is

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband