Okurbúllan Ísland

Enn á ný fáum við fréttir að Ísland er okurbúlla. Nýjar upplýsingar frá Hagstofu Íslands sýna samanburð á landsframleiðslu og verðlagi í ríkjum Evrópu. Ísland er í sjötta sæti hvað varðar landsframleiðslu en er með hæsta verðlagið.

Svona samanburður á verðlagi annars vegar og landsframleiðslu hins vegar er talinn geta gefið ágætar vísbendingar um lífskjörin. Í þessum samanburði kemur Ísland ekki sérlega vel út, miðað við nágrannalöndin, og þetta staðfestir að verðlagið hér á landi er óþarflega hátt.

Ég hef ítrekað talað fyrir því að eitt stærsta baráttumál almennings í þessu landi er lægra verðlag. Neytendamálin eru fyrst núna, hjá þessari ríkisstjórn, að nálgast þann sess sem þau eiga skilið. Hér þurfa almannahagsmunir að ríkja og sérhagsmunir að víkja.


mbl.is Matur og drykkur 64% dýrari en í ESB
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Haukur Nikulásson

Okurbúllunni Íslandi verður ekki breytt nema með grundvallarbreytingu í kerfinu hjá okkur. Þú veist eins og ég að það verður að fella niður tolla og vörugjaldavitleysuna. Í samhengi við það verður að gera landbúnaðinn að sjálfbærri framleiðslugrein.

Vegna fjarlægðar verðum við óhjákvæmilega með eitthvað hærra vöruverð vegna flutningskostnaðar, en þar skortir nú sárlega samkeppni. Það er ekki virk samkeppni í flutningum til Íslands, frekar en í bankakerfinu, tryggingum, orkusölu, smásölu og mörgu öðru sem hægt er að telja upp.

Ekki segja mér að við verðum að ganga í ESB, okurvandamálið okkar er nefnilega bara heimatilbúið, við þurfum ekki að henda endanlega frá okkur vandfengnu sjálfstæði til að laga til í okurmálunum hér heima.

Sem formaður viðskiptanefndar, og auk þess í stjórnarmeirihluta, ertu í aðstöðu til að hreyfa við málum, notaðu nú tækifærið. Í næstu kosningum verður þú nefnilega minntur á árangurinn af þessari stjórnarþátttöku. 

Haukur Nikulásson, 7.2.2008 kl. 13:55

2 Smámynd: Hjörtur J. Guðmundsson

Hvernig væri að setja þeta í samhengi við kaupmátt launa? Síðast var verðlagið lægst í Rúmeníu að mig minnir. Viljum við kannski rúmenskan kaupmátt hér á landi?

Hjörtur J. Guðmundsson, 7.2.2008 kl. 15:49

3 Smámynd: Haukur Nikulásson

Hjörtur, hvernig færðu út að kaumáttur launa og okur eigi að vera í einhverju samhengi?

Haukur Nikulásson, 7.2.2008 kl. 16:16

4 Smámynd: Einar Þór Strand

Haukur hvernig stendur á því að þú sért ekki samhengið á milli launakostnaðar og verðs á vöru og þjónustu? 

Þess vegna ætti að miða við hversu mikill kaupmáttur lægstu launataxta er í hverju landi ekki verðið beint það gefur betri samanburð.  Ég er aftur á móti ekki sanfærður um að okrið hér álandi batni mikið við það en kannski eitthvað.

Reyndar er ég með tillögu um hvernig við getum látið þingmenn taka á málinu og það hratt, það er að láta laun þeirra fylgja lægsta taxta á vinnumarkaði þannig að þeir finndu á eigin skinni hvernig það er að láta þau laun duga.

En ég er aftur á móti nokkuð viss um að enginn þeirra 63. sem á þingi sitja muni nenna að lggja það til, því til þess eru þeir of upptekir af að láta sér líða vel. 

Einar Þór Strand, 7.2.2008 kl. 19:20

5 Smámynd: Jón Halldór Guðmundsson

Það er alveg nokkuð til í þessu hjá Hirti.

Laun og ýmis tilkostnaður annar heldur uppi háu verðlagi hér á landi. Þessi dýrtíð veldur því að kaupkröfur eru hærri hér en viða annars staðar í Evrópu. 

Jón Halldór Guðmundsson, 7.2.2008 kl. 21:04

6 Smámynd: Gunnar Ásgeir Gunnarsson

Ef menn hafa áhuga á að spá í framtíðina og jafnvel græða á því þá eru allir helstu fjárfestar heimsins að snúa sér landbúnaðar hrávöru.  Síðustu 35 ár höfum við búið við offramleiðslu matvæla, sem er  einstakt tímabil í þekktri sögu, en nú er það búið. Öll matvælafjöllin eru uppurinn og fólki fjölgar um 200.000 á dag í heiminum.  Ríkir Asíubúar sem orðnir fleiri en allir Evrópubúar eru að koma inn á markaðina og spyrja ekki um verð. Búvöruframleiðslan í heiminum hefur ekki verið að aukast og sem dæmi að  ef þú ákveður í dag að fara að framleiða nautakjöt þá varan tilbúinn eftir 3 ár en á meðan fjölgar neytendum um 200 000 á dag. Hveiti, undirstaðan fyrir 80% allra matvæla í heiminum (kjöt,pasta,brauð og fleira)er orðin skortsvara  Hérna er verð þróunun Síðustu tíu ár á heimsmarkaði.  Ég held að allir skynsamir menn hljóti að sjá að það rétt að fara varleg. Ég veit það að var ekkert sjálfgefið að bændur fengju áburð nú í vor. Indverjar tæmdu alla hveitilagera á einu bretti  í Danmörku í fyrrahaust,  fyrsta skipti frá stríði að þeir tæmast

Gunnar Ásgeir Gunnarsson, 7.2.2008 kl. 21:44

7 Smámynd: Calvín

Þið stjórnmálamenn sem viljið láta taka ykkur alvarlega ættuð að fara að huga að matvælaöryggi fyrir þjóðina en ekki að eyða tímanum núna í þrætur um verð. Ástandið í heiminum í að tryggja fólki mat er orðið heldur óhugnanlegt. Það heyrast tölur um hækkanir á matvöru í Evrópu á bilinu 15-50% vegna hruns í framboði. Um fimmtugur af uppskeru í Kína fór fyrir lítið í kuldakastinu síðustu vikurnar, áburður er að hækka um 70%, korn um svipaðar hlutfallstölur og svona mætti lengi telja.

Svo hafa bloggarar bent á hér að ofan að það þarf að setja verð á vörum í samhengi við kaupmátt launa.

Calvín, 8.2.2008 kl. 00:03

8 Smámynd: Kári Harðarson

Einar Þór, ég er eins og Haukur, ég sé ekki af hverju góð laun á Íslandi réttlæta ósanngjarna álagningu á innfluttum vörum.

Ég sé sjampóbrúsa sem kosta 3 dollara í Bandaríkjunum selda hér á 1200 krónur.  Er það af því ég er með betri laun en ef ég byggi í Rúmeníu?

Það er eins og að segja að búðahnupl sé í lagi af því verslunareigendurnir séu svo ríkir.

Kári Harðarson, 8.2.2008 kl. 10:50

9 Smámynd: Gunnar Ásgeir Gunnarsson

Kári 

Ætli það sé ekki vegna afgreiðslufólkið í Rúmenu er með 18.000 Kr á mánuði í laun en í bónus með 180.000 Kr

Gunnar Ásgeir Gunnarsson, 8.2.2008 kl. 11:06

10 Smámynd: Gunnar Ásgeir Gunnarsson

Samkvæmt blaðagrein sem ég sá fyrir nokkru er Wal-mart að greiða fólki  í kringum 280 kr á tíma fyrir 8 tímana en hafa ekkert greitt fyrir yfirvinnu en fara fram á hana og ef þú neita geturðu fengið þér vinnu annarstaðar

Gunnar Ásgeir Gunnarsson, 8.2.2008 kl. 11:14

11 Smámynd: Haukur Nikulásson

Ég hef unnið við innflutning og sölu á tölvubúnaði í bráðum 27 ár.

Okurverð á Íslandi tengist fyrst og fremst tollum, vörugjöldum, hárri virðisaukaskattsprósentu og síðan skorti á virkri samkeppni í of mörgum greinum.

Eins og Kári benti á eru laun hér ekki helsta ástæða fyrir okri. Í minni grein er álagning með því lægsta sem gerist vegna vel virkrar samkeppni.

Hærra verð á tölvubúnaði hér á landi er bara tilkomið vegna hærri flutningskostnaðar og virðisaukaskatts sem fólk gleymir að reikna með þegar verðsamanburður er gerður við útlönd.

Haukur Nikulásson, 8.2.2008 kl. 13:11

12 Smámynd: Gunnar Ásgeir Gunnarsson

Ég er að hugsa um að kaupa mér tölvu, HP Compaq 6715b. Þessi tölva kostar á tilboði 159.900kr hjá fartölvur.is en kostar á Ebay $600 til $700 sem er frá 41.000 til 47.000 og ekki eru það tollarnir sem eru að þvælast fyrir. Þetta er fjórfaldur verðmunur. Ég held að menn ættu að hætta að væla yfir matarverðinu þó það sé 60% hærra

Gunnar Ásgeir Gunnarsson, 8.2.2008 kl. 13:56

13 Smámynd: Guðjón H Finnbogason

Í Færeyjum er verð á matvöru mikið lægra en hér á landi,Ég hef keypt mikið af matvöru í Færeyjum um langt skeið og það munar umtalsvert.

Laun hjá okkur er upp til hópa ekkert sérstaklega gott,lágmarkslaun undir 150.000

Tannlæknaþjónusta fer með fjárhag barnafjölskyldunnar.

Guðjón H Finnbogason, 8.2.2008 kl. 14:58

14 Smámynd: Heiðar Lind Hansson

Ég er sammála mörgum "kommentum" hér að ofan. Hátt verð fyrir hinar ýmsu vörur er einhvern veginn alltaf tengt velmegun o.s.frv. Íslendingar geta ekki horft framhjá þeirri staðreynd, að Ísland er eitt besta ríki í heimi til að lifa í. Hér er best að fæðas, lifa og deyja. Samt sem áður er hér að finna fátækt og þröngar aðstæður hjá mörgum fjölskyldum. Slíkt verðu alltaf við lýði, alveg sama hvernig "kerfi" er við lýði.

Samheiti á uppnefni Ágústs Ólafs, Okurbúllan Ísland gæti verið Hilton hótelið Ísland.

Hvað er það sem ýtir verðlaginu upp? Verð á matvöru? Eldsneyti? Íbúðaverð?

Hvar er staðreynda leit fjölmiðlana í þessum málum?

Heiðar Lind Hansson, 9.2.2008 kl. 22:56

15 Smámynd: Heiðar Lind Hansson

Úps. Staðreyndirnar eru á sínum stað í Mogganum!

Heiðar Lind Hansson, 9.2.2008 kl. 22:59

16 Smámynd: Halla Rut

Algjörlega sammála þér Ágúst.

Ef hér væri samkeppni þá væri verðmiðinn annar. Hér er verði stýrt til hagsbóta fyrir þá er eiga matvöruverslanirnar. En það er algjört "tapú" að tala um það og algjörlega bannað. Ég reyndi það eitt sinn á minni síðu og fékk í hausinn að ég  væri eins og Jónína "Baugsdóttir".

Halla Rut , 11.2.2008 kl. 19:38

17 Smámynd: Gunnar Ásgeir Gunnarsson

Það er margt skrýtið í kýrhausnum.

Ég hef séð í Hagkaup svínakjöt frá Tyson í Bandaríkjunum sem er næst stærsti svínakjötsframleiðandi í heiminum með  800 þúsund gyltur

Hérna er ég með frétt úr Landbrugs Avisen sem segir að þeir (Tyson) hafi ekki áhuga á að flytja kjöt til Kína vegna þess að Kínverjar leyfa ekki vaxtahormónið Ractoparmin. Ef þeir fá ekki að nota það borgar sig ekki flytja kjötið kjötið þangað.

Ég spurðist fyrir hvernig stæði á því að þetta sterakjöt væri í verslunum hér.

Svarið sem ég fékk hjá landbúnaðarstofnun var að ekki væri gerð krafa hér á Íslandi um  sterafrítt kjöt ef um elduð matvæli væri að ræða  

Gunnar Ásgeir Gunnarsson, 13.2.2008 kl. 11:42

18 Smámynd: Erna Friðriksdóttir

Hvað mega þeir segja sem búa út á landi, hafa ekki lágvöruverslanir, launin  eru þau lægstu sem hægt er að fá ef þú ert bara verkamaður......... húsnæði okkar er metið ansi lítið ef við viljum seljaog reyna að koma okkur á svæði kring um Höfuðborgina þá  megum teljast heppin ef við fáum 2 herb íbúð á Höfuðborgarsvæðinu fyrir kanski 160 fm íbúð  + bílskúr.   Er þetta í lagi ?

Erna Friðriksdóttir, 14.2.2008 kl. 16:47

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Ágúst Ólafur Ágústsson
Ágúst Ólafur Ágústsson

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.3.): 1
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 2
  • Frá upphafi: 144237

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 2
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            
Leita í fréttum mbl.is

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband