Hversu mörg börn fara ekki til tannlæknis?

Auðvitað er það alvarlegt ef börn fara ekki til tannlæknis. Og auðvitað er það svolítið sérkennilegt að munnurinn sé undanskilinn hinu opinbera heilbrigðiskerfi þegar kemur að fullorðnu fólki. Fyrir nokkru lagði ég fram fyrirspurn á Alþingi um hversu mörg börn fara ekki til tannlæknis. Þetta var mjög áhugaverð spurning að mínu mati og á vel við núna þegar heilmikil umræða er í gangi um tannheilsu íslenskra barna.

Svörin voru mjög áhugaverð.

Þar kom m.a. í ljós að 8.500 börn á aldrinum 3-17 ára höfðu ekki farið til tannlæknis í 3 ár.

Einnig kom í ljós að um 2.000 börn á aldrinum 6-17 höfðu ekki farið til tannlæknis í 5 ár.

Þá höfðu um 800 börn á aldrinum 9-17 ekki farið til tannlæknis í 7 ár. Þetta er langur tími án þess að hafa farið til tannlæknis.

Sjálfsagt eru margar ástæður fyrir þessum tölum en ein af þeim hlýtur að vera efnahagur fjölskyldunnar. Ljóst er að hið opinbera greiðir aðeins hluta af þeim kostnaði sem fjölskyldur verða fyrir þegar barn fer til tannlæknis.

Við verðum því að gera það ódýrara fyrir fjölskyldur að fara með börn sín til tannlæknis. Það er því sérstakt fagnaðarefni að kosningaloforð Samfylkingarinnar um auknar niðurgreiðslur í tannvernd barna hafi bæði ratað í stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar og í samþykkta aðgerðaráætlun fyrir börn og ungmenni.


mbl.is Fleiri þriggja ára börn til tannlæknis
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir

Þarfar ábendingar hjá þér!

Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir , 6.2.2008 kl. 14:23

2 Smámynd: Steinunn Þórisdóttir

Mjög svo þarfar ábendingar. En hvað þá með tannréttingar? Styrkur sem greiddur er í tannréttingar er skammarlega lítill.  Sonur minn þurfti nauðsynlega á tannréttingum að halda vegna plássleysis í munni. Þetta ferli kostaði mig rúml. 1 millj. styrkurinn hljóðaði upp á 150 þús. Þetta var aðgerð sem varð að gera.

Steinunn Þórisdóttir, 6.2.2008 kl. 15:12

3 Smámynd: Ásgeir Kristinn Lárusson

Það sem er alvarlegast í þessu máli, er að skólatannlækningar skyldu aflagðar árið 2000. Til skammar fyrir okkar „ríka“ þjóðfélag!

Ásgeir Kristinn Lárusson, 6.2.2008 kl. 15:42

4 Smámynd: Guðjón H Finnbogason

Skólatannlækningar hjálpuðu mörgum og hefði mátt halda þeim áframm,skólin sem ég var í rétt eftir stríð var með sérstakri tannlæknastofu og tannlækni.Við hjónin pössuðum vel upp á dætur okkar að þær væru skoðaðar tvisvar á ári og það hefur hjálpað mikið,yngsta dóttir okkar sem 21árs hefur fengið eina skemd og hinarþrjár eru með góðar tennur,konan líka en ég slæmar en það kom af öðru.

Guðjón H Finnbogason, 6.2.2008 kl. 19:42

5 Smámynd: Finnur Ólafsson Thorlacius

Ég er alveg sammála því að það þarf að setja meiri pening í þetta.  En, ég er ekki sammála því að slæm tannheilsa sé mest fáum tannlæknaferðum barna að kenna.  Mesta og mikilvægasta tannhirðan fer fram inná baðherbergi heimilisins 2svar á dag, kvölds og morgna.  Ef þarf á miklum tannlækningum að halda þá er væntanlega í óefni komið og er það foreldrum að kenna, það skiptir ekki máli hversu fjárhagurinn er slæmur, foreldrar ættu alltaf að hafa efni á að kaupa tannbursta og tannkrem handa börnunum sínum.  Ef foreldrar hugsa vel um þetta ætti að vera nóg að fara til tannsa 1sinni á ári í skoðun, 5000þús kall á ári er ekki mikill peningur.

Guðjón, góð tannheilsa barna þinna er sjálfsagt þér og konunni þinni mest að þakka.

Það má ekki gleyma ábyrgð foreldra á þessu.  

Finnur Ólafsson Thorlacius, 6.2.2008 kl. 22:32

6 Smámynd: Jóna Kolbrún Garðarsdóttir

Ég er einstæð móðir, ég fór til nýs tannlæknis í síðustu viku, vegna þess að minn gamli tannlæknir dó í haust, hann var ódýr.  Þar þurfti ég að borga 5000 kr. fyrir viðgerð, nýi tannlæknirinn rukkaði mig um 16.200 fyrir 30 mínútur í stólnum það eru yfir 10 % af mánaðarlaunum mínum.  Ég á bókaðan tíma fyrir yngstu dóttur mína hjá sama tannlækni á morgun, ef ég þarf að borga yfir 5000 kr. þarf ég að hætta að fara til tannlæknis sjálf, og börnin mín líka.  Þetta er skelfilegt ástand að hafa ekki efni á því að viðhalda tannheilsu minni og barnanna minna

Jóna Kolbrún Garðarsdóttir, 7.2.2008 kl. 02:54

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Ágúst Ólafur Ágústsson
Ágúst Ólafur Ágústsson

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (24.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 5
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 5
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        
Leita í fréttum mbl.is

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband