Formennska í tveimur mikilvægum nefndum

Það er stundum sagt að tveir hópar í samfélaginu eigi að vera settir í forgang, börnin og aldraðir. Og í raun kemur slíkt fram í stjórnarsáttmála ríkisstjórnar Samfylkingar og Sjálfstæðisflokks. Það er því mikill heiður og ábyrgð að fá að gegna formennsku í tveimur nefndum sem fjalla einmitt um stöðu þessara mikilvægu hópa.

Fyrri nefndin sem ég gegni formennsku í er samstarfsnefnd um málefni aldraðra. Verkefni samstarfsnefndar um málefni aldraðra eru að stjórna Framkvæmdasjóði aldraðra og gera tillögur til ráðherra um úthlutun úr sjóðnum. Þá ber nefndinni að vera félags- og tryggingamálaráðherra og ríkisstjórn til ráðuneytis um málefni aldraðra og að vera tengiliður milli ráðuneyta, stofnana og samtaka sem starfa að málefnum aldraðra. Þessi málaflokkur hefur lengi verið pólitísk bitbein enda verkefnin næg. Það verður því afar spennandi og krefjandi að leiða þessa nefnd.

Seinni nefndin sem ég leiði á að fjalla um stöðu einstæðra og forsjárlausra foreldra og réttarstöðu barna þeirra. Nefndinni verður jafnframt falið að fjalla um réttarstöðu stjúpforeldra og aðstæður þeirra. Meginverkefni nefndarinnar verða að kanna fjárhagslega og félagslega stöðu einstæðra og forsjárlausra foreldra og stjúpforeldra, að skipuleggja og vinna að söfnun upplýsinga um þessa hópa foreldra og stöðu þeirra, að fara yfir réttarreglur sem varða hópana og gera tillögur til hlutaðeigandi ráðherra um hugsanlegar úrbætur í málefnum þeirra á grundvelli löggjafar og/eða tiltekinna aðgerða.

Eins og má sjá þá er þetta risavaxið verkefni enda mörg álitaefni hér á ferð. Nú erum við í þessari nefnd búin að hittast tvisvar sinnum en einvalalið situr í þessari nefnd með mér, eins og reyndar í þeirri fyrri.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Heimir Lárusson Fjeldsted

Varstu nokkuð búinn að gleyma því Ágúst Ólafur að skýra fyrir mér í hverju stórkostlegu kjarabæturnar til handa öryrkjum væru fólgnar?

Eða er það stjórnmálamanni samboðið að slá svona fram án rökstuðnings og þverskallast við að gera grein fyrir máli sínu?

Ég er þolinmóður og minnugur.

Heimir Lárusson Fjeldsted, 26.1.2008 kl. 14:14

2 Smámynd: Guðjón Sigþór Jensson

Nú þarf ríkisstjórnin að reka af sér slyðruorðið í málefnum eldra fólksins. Þau hafa verið til háborinnar skammar að ekkisé meira sagt. Kynslóðin sem lagði til tölulega mest á sig ber minnst úr bítum!

Taka þarf á öllu þessu ranglæti sem eldri borgaranir eru beittir: tekjuskattur á lífeyrisgreiðslur - þar ætti fjármagnsskattprósentan að nægja!

Greiðslur til heilbrigðiskerfisins eru mörgum efnalitlum ellilífeyrisþegum mjög þungbærar og núverandi heilbrigðisráðherra hækkaði þær! Hvar voruð þið Samfylkingarfólk þegar sú ákvörðun var tekin?

Svon má lengi telja.

Mosi

Guðjón Sigþór Jensson, 26.1.2008 kl. 15:41

3 Smámynd: Calvín

Láttu ekki tæknilegar orðaflækjur og úrtölur embættismanna draga úr þér kjark við að koma hugsjónunum í framkvæmd.

Calvín, 26.1.2008 kl. 18:21

4 Smámynd: Ari Guðmar Hallgrímsson

Nafnið hljómar vel og lítur vel út á pappír, en hvað gerir þessi nefnd, Það er varla margra manna verk að úthluta úr framkvæmdasjóði aldraðra. Það eru ær og kýr stjórnmálamanna að skipa í nefndir, sem oftar en ekki skila litlu og engu, eða þá einhverju, sem kemur þeim sem eiga að njóta, að litlu gagni. Nú átt þú leik ungi maður, segist hafa áhuga á að rétta hlut eldri borgara, brettu þá upp ermarnar og láttu verkin tala.Ég  bendi þér á það sem Calvin skrifar hér fyrir ofan,er sammála honum.                    KVeðja

Ari Guðmar Hallgrímsson, 26.1.2008 kl. 22:05

5 Smámynd: Erna Friðriksdóttir

Búin að skrifa hér romsu um mál eldri borgara og öryrkja en það kemur ekki ?????      Finst nú að Ríkisstjórnin eigi að láta til sín taka........

Erna Friðriksdóttir, 28.1.2008 kl. 17:26

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Ágúst Ólafur Ágústsson
Ágúst Ólafur Ágústsson

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (24.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 5
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 5
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        
Leita í fréttum mbl.is

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband