Markmiðið að Samfylkingin bjóði fram í eigin nafni sem víðast

Í síðustu viku heimsótti ég flokksfólk á Ísafirði og ræddum við um frekari uppbyggingu flokksins á því svæði. Mikill hugur er í Samfylkingarfólki á Vestfjörðum og var gaman að hitta félaga sína. Bæjarstjórinn á Bolungarvík var sömuleiðis heimsóttur og voru málin rædd yfir kaffibolla. Þá hittum Páll Stefánsson, ljósmyndara með meiru, fyrir tilviljun á Bolungarvík og dreif hann okkur upp á Bolafjall en útsýnið á þeim stað er geysilega fallegt eins og gefur að skilja. Annars var afskaplega gaman að  hlusta á Pál segja frá hinum og þessum uppákomum sem hann hefur lent í, ekki síst í Afríku þar sem hann er talsvert við störf. Það er nokkuð ljóst að ljósmyndaferill Páls er einstakur.

Í næstu viku er síðan stefnan tekin á Snæfellsnesið en Samfylkingin þarf að styrkja stöðu sína á því svæði. Þrátt fyrir allt er Samfylkingin enn ungur flokkur og því er margt ennþá ógert í flokkstarfinu. Fyrir utan að hafa virkt og skemmtilegt flokkstarf þá tel ég æskilegt að flokkurinn bjóði víðast fram í eigin nafni en staðbundnar aðstæður geta þó í sumum tilfellum komið í veg fyrir það. En markmiðið hlýtur þó að vera sjálfstæð Samfylkingarframboð á sem flestum stöðum á landinu.

Annars er ljóst að Norðvesturkjördæmi er erfitt kjördæmi í ýmsum skilningi þess orðs. Í fyrsta lagi eru vegalengdirnar innan kjördæmisins gríðarlegar. Í öðru lagi þá hefur uppgangur síðustu ára ekki skilað sér nægilega vel í kjördæmið. Í þriðja lagi eru samgöngur og fjarskipti á þessu svæði langt frá því að vera fullnægjandi. Í fjórða lagi hefur kjördæmið orðið fyrir nokkrum áföllum, bæði vegna fólksfækkunar en einnig vegna niðurskurðar í sjávarútvegi. Og svona mætti lengi telja áfram.

En hugur heimamanna er bjartur. Í þessari ferð heyrðum við margar raddir sem töldu uppbyggingu háskóla á Vestfjörðum vera heillaráð. Það er hugmynd sem ég held að við ættum að skoða í mikilli alvöru. Menntun er besta byggðastefnan en þó þarf einnig að hafa í huga aðstæður og hagsmuni þeirra sem huga ekki að langskólanámi.

Ég er einnig á því að það þarf að fara setja meiri þunga í málefnin sem lúta að tekjuskiptingu milli ríkis og sveitarfélaga. Það gengur ekki að sveitarfélög lepji dauðann úr skel á sama tíma og kröfurnar um aukna þjónustu aukast sífellt. Við þurfum því að auka tekjustofna sveitarfélaga samhliða auknum verkefnum. Það þarf að efla nærsamfélagið á Íslandi til muna.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Bjarni Kjartansson

Hættu nú!!!!

ER ekki nóg samt???

Ógæfu Vestfirðinga verður allt að vopni og ef þú ferð að reyna að dreyfa skriffinnsku, umræðustjónmálum og þessháttar nútíma Kratisma þarna, mun óáran auakst til muna ,,heima".

Afi þinn vissi um athafnaþrá þarna vestra og nýtti sér aðstæður þar til góðs, bæði fyrir sig og íbúa aðra.

Ekki vera að útbreiða ,,umræðustjórnmál og kynjarýni" þarna á mínar heimaslóðir!!!!!

 Það gerir öngvum neinn greiða.

Kynjarýnin heima var afar náttúruleg og ekki kvint um það annað að segja, kynstórir menn (karlar og konur) stóðu að umsvifum en ekki vaðlanda og blaðri.

Sumsé, hættu allri útbreiðslustarfsemi vestra og hunskastu í rann okkar Sjálfstæðismanna og ýttu undir sjálfsbjargarviðleitni frænda minna, fremur en Kratisma.

 Enda fellur Sjálfstæðishugsjónin betur að sinni manna vestra, líkt og atkvæðatölur sýna.

Miðbæjaríhaldið

fyrrum Vestfjarðaríhald

Bjarni Kjartansson, 29.8.2007 kl. 10:27

2 Smámynd: Jón Halldór Guðmundsson

Fátt væri betra fyrir Vestfirði en háskóli.  Þekkingarsókn í samfélagi, þar sem jafnrétti kynjanna er virt og lýðræði er, gæti verið góður grunnur að nýrri byggðastefnu.

Samfylkingin er þarna algert aukaatriði. Það vill hins vegar svo til að það er sá flokkur sem er að beita sér fyrir þessum gildum.

Jón Halldór Guðmundsson, 29.8.2007 kl. 14:47

3 Smámynd: Páll Jóhannesson

,,Sumsé, hættu allri útbreiðslustarfsemi vestra og hunskastu í rann okkar Sjálfstæðismanna og ýttu undir sjálfsbjargarviðleitni frænda minna, fremur en Kratisma" .... Ertu ekki að grínast?  Er Sjálfstæðisflokkurinn í samstarfi við Framsókn ekki búin að gera nóg af sér? Eru Vestfirðirnir ekki  eins og sviðin jörð? Þökk sé stjórnarsamstarfi Sjálfstæðis og Framsóknar.

Páll Jóhannesson, 29.8.2007 kl. 17:08

4 identicon

Í hvaða nafni hafið þið boðið fram?

Jónína Benediktsdóttir (IP-tala skráð) 30.8.2007 kl. 00:35

5 identicon

Næstu kosningar eru sveitarstjórnarkosningar, að öllu óbreyttu, og ekki fyrr en 2010. Í síðustu sveitarstjórnarkosningum bauð Samfylkingin ekki fram framboðslista í eigin nafni nema á 5 til 6 stöðum. Þessu þarf sannarlega að beyta. Það er ekki bara norðvestrið sem er erfitt kjördæmi, sannleikurinn er sá að þessi kjördæmaskipan er ófær. T.d. eru 711 km milli Sigufjarðar og Djúpavogs sem tilheyra sama kjördæmi. Breytum þessu og gerum landið að einu kjördæmi.

Gísli Baldvinsson (IP-tala skráð) 30.8.2007 kl. 09:20

6 Smámynd: Hallgrímur Óli Helgason

það mættu fleiri þingmenn taka þig til fyrirmyndar og heimsækja okkur Bolvíkinga og aðra vestfirðinga, okkar tveir Bolvísku þingmenn eru nú ekki mjög duglegir við það að heimsækja okkur

Hallgrímur Óli Helgason, 31.8.2007 kl. 16:52

7 Smámynd: Sigurgeir Jónsson

Ég hef trú á Vestfirðingum.Hef alltaf haft.En ég er ekki viss um að þeir hafi þá trú sjálfir.Menntun og uppbygging fólks hefur oft setið á hakanum á stöðum þar sem allt snýst um fisk.Ef Vestfirðir eiga að haldast í byggð er það skilyrði að ráðamenn landsins geri sér grein fyrir því að það á að vera  líf eftir þorsk, Kveðja,Geiri.

Sigurgeir Jónsson, 31.8.2007 kl. 17:22

8 Smámynd: Sigurgeir Jónsson

þessu til viðbótar, Ólafur Ágúst .þá virðist mér Vestfirðingar stundum berjast á móti sjálfum sér.Ferðamönnum er  til dæmis gert eins erfitt fyir og hugsast getur að skoða þær eyðijarðir sem kallast friðland. og hugsast getur.Í mínum huga er það engin spurning að það þarf að gera akfæran veg frá Unaðsdal til Leiruffjarðar.

Sigurgeir Jónsson, 1.9.2007 kl. 03:10

9 Smámynd: Ingibjörg Hinriksdóttir

Gísli, Samfylkingin bauð fram lista í eigin nafni á 11 stöðum á landinu. 1 í Reykjavík, 3 í SV kjördæmi (Hafnarfirði, Kópavogi og Mosfellsbæ), 2 í NV kjördæmi (Húnaþingi vestra og í Skagafirði), 3 í NA kjördæmi (Akureyri, Eyjafjarðarsveit og Norðurþing) og 2 í S kjördæmi (Árborg og Ölfus). 

Ingibjörg Hinriksdóttir, 4.9.2007 kl. 10:21

10 Smámynd: Eggert Hjelm Herbertsson

Ingibjörg, þar sem NV kjördæmi er mér ofarlega í huga, þá bauð Samfylkingin fram 3 list í kjördæminu, Húnaþing vestra, Skagafirði og á Akranesi.

Ágúst Ólafur er að vinna þarft starf í þessu og á heiður skilinn.

Eggert Hjelm Herbertsson, 7.9.2007 kl. 08:02

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Ágúst Ólafur Ágústsson
Ágúst Ólafur Ágústsson

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.3.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 2
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 2
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            
Leita í fréttum mbl.is

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband