Ráðumst að rót vandans

Mér finnst umræðan um skólabúninga oft ekki snúast um aðalatriðið. Það er sagt að ein af meginástæðunum fyrir skólabúningum sé sá efnahagslegi munur sem er á nemendunum. En með þessari nálgun erum við að gleyma aðalatriðinu sem er fátækt barna. Fátækt barna á ekki að vera liðin en í samtölum mínum við reynslumikla kennara hefur komið fram að þeir séu að skynja æ meiri efnamun á milli barna. Auðvitað eru allar aðgerðir jákvæðar sem hugsanlega draga úr einelti en það breytir því ekki að við þurfum að ráðast að rót vandans en ekki fela vandann með skólabúningum.

Það var því afar ánægjulegt að ný ríkisstjórn Samfylkingar og Sjálfstæðisflokks gerði það eitt af sínum fyrstu verkum að samþykkja aðgerðaráætlun í þágu barna en slíkt hafði aldrei verið gert áður. Þar er tekið á mýmörgu sem snýr að hagsmunum barna og fjölskyldna og m.a. annars að fátækt barna.

Má þar nefna eftirfarandi aðgerðir:

Barnabætur tekjulágra fjölskyldna verða hækkaðar.

Aðgengi allra barna og ungmenna að íþróttum og félagsstarfi, ekki síst þeirra er búa við veikan fjárhag, verður bætt.

Fæðingarorlof lengt í 12 mánuði.

Tannvernd barna verður bætt með gjaldfrjálsu eftirliti og auknum niðurgreiðslum.

Nemendur í framhaldsskólum skulu njóta stuðnings til kaupa á bókum og öðrum námsgögnum.

Þá segir einnig í stjórnarsáttmála þessarar ríkisstjórnarinnar að málefni barna séu forgangsmál ríkisstjórnarinnar og að skattleysismörk verði hækkuð. Þá ætlar ríkisstjórnin vinna að endurskoðun á skattkerfi og almannatryggingum til að bæta hag lágtekjufólks og millitekjufólks sem er löngu tímabært.

Þessar aðgerðir munu bæta hag barnafjölskyldna og vinna gegn fátækt barna sem á að vera ólíðandi í sjötta ríkasta landi í heimi.


mbl.is Flestir vilja vera í skólabúningi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Helgi Jóhann Hauksson

Góðir punktar um lykilatriði, fátækt sumra barna er auðvitað hið raunverulega vandamál en skólabúningar aðferð til að fela það.

Gott að sjá að mikilvæg skref til að leysa hið raunverulega vandamál og voru dregin skýrt fram í kosningastefnuskrá Samfylkingarinnar eru ekki gleymd heldur haldið á lofti.

Helgi Jóhann Hauksson, 25.8.2007 kl. 14:17

2 identicon

Ég styð þennan málaflutning - sérstaklega ef hann er bara ekki skrifaður heldur framkvæmdur líka!!!!!!!!!

Ása (IP-tala skráð) 25.8.2007 kl. 16:10

3 Smámynd: Baldur Fjölnisson

Nýfasisminn stefnir ekki síst að því að allir séu steyptir í sama mótið ( horfið í kringum ykkur ef þið eruð í vafa) og þetta einkenisbúningakjaftæði er hluti af því. Þeir sem lifa aðallega á framleiðslu skuldapappíra þurfa einhvern tíma að herja á aðra vegna skuldavandamála og lausnin er sem fyrr í sögunni að herja á lánardrottnana. Ísland er leppríki Bandaríkjanna og þessi speki eins og aðrar kemur þaðan. Það er bara verið að venja lýðinn og leppar sinna því sem fyrr...

Baldur Fjölnisson, 25.8.2007 kl. 21:00

4 Smámynd: Þorsteinn Siglaugsson

Hvenær á að gera alla þessa hluti, kallinn? Er þetta ekki bara eitthvert tal (les: samræðustjórnmál)?

Þorsteinn Siglaugsson, 26.8.2007 kl. 01:33

5 Smámynd: Ólafur Þórðarson

Er alveg sammála því að búningarnir eru feluleikur, -ef þeir eiga að fela fátækt. Gott að lesa það loksins. En flestir gleyma því að þetta snýst ekki bara um börnin, því þau eru endurspeglun á foreldrunum. Foreldrarnir eru einmitt að dragast afturúr og það er dæmigert fyrir yfirborðsmennskuna í Íslensku þ.jóðfélagi að vilja nota búninga sem skuespil.
Í öllu kjaftæðinu um góðærið gleymist að mikið af fjölskyldum eru bara ekkert að meika það og hafa ekki efni á stólpípuferðum til Póllands eða annari ámóta bilun. Að venju hefur Baldur ýmislegt til síns máls og gott að hafa smá yfirsýn inn á grunn vandamálanna.

Ólafur Þórðarson, 26.8.2007 kl. 04:03

6 Smámynd: Ásgerður

Þegar þú talar um að lengja fæðingarolof í 12 mánuði,,ertu þá að meina fyrir alla,,,eða bara þegar tveir taka orlof???  Það er nefnilega mikið óréttlæti í þessum "nýju" lögum um fæðingarorlof.

Því ef kona er einstæð að þá fær barnið hennar ekki að vera heima hjá foreldri í 9 mánuði,,eins og barn foreldra sem eru saman/gift.

Og svo þetta með barnabæturnar,,vona svo sannarlega að þetta sé ekki bara eitthvað til að skrifa um á blogginu,,,heldur verði framkvæmt,,

og hætt verði að skerða bæturnar þegar börn verða 6 eða 7 ára,,,því það er einmitt þá sem þau byrja í skóla, og útgjöldin fara að aukast fyrir alvöru. 

Ásgerður , 26.8.2007 kl. 06:48

7 Smámynd: Gunnar Kr.

Of mikið talað, of lítið gert!

Ég veit ekki í hvaða bómullarumhverfi þú hrærist, en í raunveruleikanum eru krakkar lagðir í einelti og jafnvel lamdir af samnemendum sínum, ef þeir eru í Hagkaupsfötum, en ekki einhverri rándýrri merkjavöru. Ég skil ekki að fólk þurfi að breytast í einhverja kerfiskarla og -kerlingar, við það að komast á þing. Ekki loka þig af í þinginu, Ágúst Ólafur, vertu í raunverulegu sambandi við þjóðina.

Gunnar Kr., 2.9.2007 kl. 00:46

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Ágúst Ólafur Ágústsson
Ágúst Ólafur Ágústsson

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.4.): 1
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 15
  • Frá upphafi: 144252

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 15
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        
Leita í fréttum mbl.is

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband