10 ár og 2 mánuðir

Dagurinn í dag er sögulegur í Bretlandi. Tony Blair mun segja af sér sem forsætisráðherra Breta eftir 10 ár og 2 mánuði í þeim stól. Tony Blair stóð fyrir mörgu jákvæðu í breskum stjórnmálum. Hann átti sömuleiðis ríkan þátt í að stuðla að friði á Norður-Írlandi en þó held ég að efnahagslegur uppgangur á svæðinu og fjölgun í millistéttinni hafi einnig átt sinn þátt í því.

Blair breytti ásýnd jafnaðarstefnunnar með svokallaðri þriðju leið. Ég tel að þriðja leiðin lifi enn góðu lífi og sé grundvöllur að frjálslyndri jafnaðarstefnu þar sem markaðslögmálin og velferðin haldast í hendur. Einn af hugmyndafræðingum þriðju leiðarinnar er Anthony Giddens og ég man vel eftir að hafa sótt fyrirlestur hans þegar hann kom til Íslands fyrir nokkrum árum.

Helstu mistök Blair voru að sjálfsögðu stuðningur hans við innrásina í Írak og mun sú staðreynd ætíð vera skuggi á valdatíð hans. Sömuleiðis eru þau skref sem Tony Blair tók varðandi aukið eftirlit með almenningi umhugsunarverð.

Eftirmaður Blairs er Skotinn Gordon Brown. En einhvern veginn finnst mér Gordon Brown ekki vera alveg eins mikill pólitískur karakter og Blair var og er, svo ég segi nú ekki meira.

Leiðtogi Íhaldsmanna, David Cameron, hefur undanfarin misseri leikið mjög taktíska leiki. Hann hefur viljandi farið inn á þau svið sem tilheyra venjulega ekki hægri flokkum og má þar nefna umhverfismál og ýmar velferðaráherslur.

En ég tel að það geti jafnvel verið auðveldara, pólitískt séð, fyrir hægri mann að fara lengra til vinstri en það sem vinstri maður getur gert og og að sama skapi geti það verið auðveldara fyrir vinstri mann að fara lengra til hægri en hægri mann.

En burtséð frá því það tel ég að næstu þingkosningar í Bretlandi geti orðið Verkamannaflokknum erfiðar.


mbl.is Brown tekur við embætti forsætisráðherra
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jens Guð

  Auðmýkt og þjónkun Blairs við böðulinn frá Texas hefur valdið mörgum góðum manninum heilabrotum.  Ekki bara í stuðningnum við olíuránið í Írak heldur í fleiri málum.  Til að mynda stuðningi við innrás Ísraels í Líbanon. 

  Í samskiptum Blairs og Brúsks hefur Blair verið í hlutverki hundsins sem flaðrar upp um húsbóndann og reynir allt til að gera honum til hæfis. 

  Þeir sem best þekkja táknmál ósjálfráðs látbragðs fólks áttu auðvelt með að lesa út úr samskiptamynstri þeirra tveggja af ljósmyndum og sjónvarpsupptökum.  Látbragð Blairs bar öll merki "wannabe" guttans.  Hann fór meira að segja að setja þumalputtana í framanverða beltishanka á buxum sínum að hætti Brúsks fljótlega eftir að þeir hittust fyrst.   

Jens Guð, 27.6.2007 kl. 22:49

2 Smámynd: Óðinn Þórisson

"böðulinn frá Texas"
Hér er farið vel yfir strikið.

Það að blair sé hættur eru mjög góð tíðindi fyrir íhaldsflokkinn - ef bretar vilja raunvörulega breytingu þá er bara einn valkostur.

Óðinn Þórisson, 28.6.2007 kl. 17:55

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Ágúst Ólafur Ágústsson
Ágúst Ólafur Ágústsson

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.4.): 1
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 15
  • Frá upphafi: 144252

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 15
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        
Leita í fréttum mbl.is

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband