Að gefnu tilefni

Í yfirlýsingu Björns Bjarnasonar, dómsmálaráðherra, vegna útstrikana á framboðslista Sjálfstæðisflokksins í Reykjavíkur kjördæmi suður, segir hann að ég hafi hlakkað yfir því, að hann skuli lækka á lista flokksins. Það er beinlínis rangt og ég hef hvergi lýst því yfir. Hér með leiðréttist það.
mbl.is Björn lýsir áhyggjum af þróun stjórnmálastarfs og réttarríkisins
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Björn Heiðdal

Þessi skrif benda til þess að Björn Bjarna sé algjörlega óhæfur til að stýra einu af valdamestu embættum landsins.  Nei annars þau beinlínis sanna það.

Orð Björns um að það sé nauðsynlegt að "hlutlausir, opinberir aðilar" fylgist með auðmönnum sýna að hann sé mikill grínisti eða alveg snarruglaður.  Hvort hann er læt ég fólk um að dæma sjálft.

En Björn og allir vinir hans flokkast varla undir hlutlausa aðila.  Besta grínið hjá Birni er þegar hann segir í bréfinu góða "Ég lýsi áhyggjum yfir þróun stjórnmálastarfs og raunar réttarríkisins sjálfs, sé talið sjálfsagt og eðlilegt að beita ofríki í krafti auðs í því skyni, að tryggja sér viðhlæjendur á þingi, í réttarsalnum og hjá ákæruvaldinu."

Er maðurinn að segja að auglýsingar einstaklinga í frjálsum fjölmiðlum séu ógnun við réttarríkið sjálft?

Björn Heiðdal, 17.5.2007 kl. 11:45

2 Smámynd: Gísli Hjálmar

Ég get nú ekki að því gert, en mér finnst þessi auglýsing hans Jóhannesar ekki til þess fallinn að vekja samkennd mína með málstað hans.

... og þessi jólasveinataktík (þar sem hann er myndaður í bak og fyrir við að gefa nokkrar krónur til einhvers málaflokks) hans finnst mér yfirleitt klisjukennd.

Ég segi nokkrar krónur vegna þess að ég er að miða við allar þær krónur sem verslanir hans gefa af sér í formi gróða og eru ekki nema að litlum hluta nýttar til fjárfestinga hér á landi. Ég vildi gjarnan sjá gróðann notaðan til að lækka matarverð eða á einhvern annan samfélagslegan hátt. 

Það má heldur ekki gleyma því að það er fallinn dómur í þessum málum og fengu tveir einstaklingar Baugs dóma fyrir refsivert athæfi.

En það að Björn sé að ausa úr skálum gremju sinnar yfir allt og alla er allt annað mál.

Björn, sem er æðsti fulltrúi dómsvalds okkar má hreinlega ekki haga sér svona einsog hann gerir - ekki að mínu viti allavega!  

Gísli Hjálmar , 17.5.2007 kl. 13:40

3 Smámynd: Steinn E. Sigurðarson

Varúð: Björn les hugsanir.

Steinn E. Sigurðarson, 17.5.2007 kl. 13:45

4 Smámynd: Hafsteinn Viðar Ásgeirsson

Hann er nú ekki þekktur af neinni sérstakri ást á sannleikanum þessi piltur sýnist mér og í þessum málum alveg sérstakleg, svo þú þarft sennilega ekkert að kippa þér upp við svona áburð. Hitt geturðu verið viss um að þessari fullyrðingu hans munu allir innvígðir trúa og þá er leikurinn unninn....finnst honum.

Hafsteinn Viðar Ásgeirsson, 17.5.2007 kl. 14:19

5 Smámynd: Guðrún Magnea Helgadóttir

Komdu sæll Ágúst Ólafur. Í þá tíð er Engey var byggð þá léku sér þar saman bræðurnir Jón og Pétur, langa langafar okkar Björns Bjarnasonar núverandi Dómsmálaráðherra. Langt er síðan og ekki má alltaf segja: Margt er líkt með skyldum. Ég á enga útskýringu á því hversvegna Björn sonur Bjarna Benediktssonar leiddist út á þá braut að standa með þeim sem ofsækja einstaklinga og það eingöngu vegna þess að þeir hafa auðgast á eigin hugviti.

Guðrún Magnea Helgadóttir, 17.5.2007 kl. 14:56

6 Smámynd: Inga Lára Helgadóttir

Alveg ótrúlegar margar hugdettur hér að ofan og mér er alveg sama þó að ég verði gagnrýnd fyrir að segja það

En með hann Ágúst okkar Ólaf, þá væri það mín ósk að hann fengi ráðherrasæti

Inga Lára Helgadóttir, 17.5.2007 kl. 23:01

7 Smámynd: Páll Jóhannesson

Björn Bjarnason ætti að líta í eigin barm og hugleiða hvort það geti ekki verið að hann eigið fólk hafi einfaldlega verið að dæma hann af hans eigin verkum. Hef sagt það áður og segi en hann ætti að rifja upp máltækið um ,,Flísina og bjálkann". Ágúst! þú þarft og hefur ekkert að afsaka - Björn hefur sjálfur séð um að koma sér í þau mál sem hann er nú í.....

Páll Jóhannesson, 18.5.2007 kl. 14:59

8 Smámynd: Hjörtur J. Guðmundsson

"Ágúst Ólafur Ágústsson, varaformaður Samfylkingarinnar, segir á vefsíðu sinni, að það sé beinlínis rangt, að hann hafi hlakkað yfir því, að ég lækkaði á lista flokksins hann hefði hvergi lýst því yfir. Ég bendi lesendum síðu minnar á að hlusta á viðtal við Ágúst Ólaf á morgunvaktinni miðvikudaginn 16. maí og það sem hann sagði um fall tveggja ráðherra Framsóknarflokksins og útstrikanir á ráðherra Sjálfstæðisflokksins."

http://www.bjorn.is/dagbok/2007/05/#d17

Hjörtur J. Guðmundsson, 19.5.2007 kl. 00:49

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Ágúst Ólafur Ágústsson
Ágúst Ólafur Ágústsson

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.3.): 1
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 2
  • Frá upphafi: 144237

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 2
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            
Leita í fréttum mbl.is

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband