Bandarísku þingkosningarnar snúast um Írak

Það verður spennandi að vaka í nótt og fylgjast með úrslitum kosninganna í Bandaríkjunum. Baráttan þar hefur verið mjög hörð og æsispennandi. Þeir voru ekki margir sem trúðu því fyrir örfáum mánuðum síðan að Demókratar myndu eiga nokkurn séns í kosningunum. En síðan hefur þeim tekist að snúa vörn í sókn og lykilorðið í því sambandi er eitt: Írak.
Svo virðist sem bandaríska þjóðin sé loks að átta sig á því hvílík mistök innrásin í Írak var og það hefur auðvitað allt með það að gera að mannfall er orðið þónokkuð og þjóðin virðist einfaldlega vera búin að fá nóg. Þeir eru sífellt fleiri sem líkja Írak við Víetnam. Og vinni Demókratar þessar kosningar liggur það í þessu máli fyrst og síðast. Nálgun Repúblikana á stríðið og ástæður þess virðist ekki lengur eiga jafnmikinn hljómgrunn og það hefur auðvitað sitt að segja að illa hefur gengið að sýna fram á árangur, enda er raunveruleikinn auðvitað sá að ástandið í Írak hefur ekki batnað heldur versnað til mikilla muna.
Ég horfi stundum á Fox sjónvarpsstöðina sem hefur einkunnarorðin “Fair and Balanced” sem eru sennilega einhver mestu öfugmæli sem hugast getur. Það breytir ekki skemmtanagildinu og það verður að viðurkennast að umfjöllun stöðvarinnar um bandarísk stjórnmál með ótrúlegum einföldum, alhæfingum og rangfærslum eru bráðskemmtileg. En sennilega væri manni ekki jafnskemmt að þurfa að takast á við svona málflutning hér heima.
Við Þorbjörg konan mín vorum í Bandaríkjunum í síðustu forsetakosningum þegar að Kerry og Bush áttust við. Og það verður að viðurkennast að andrúmsloftið og stemmningin var engu lík en að sama skapi óhugguleg því kosningabaráttan þar var ótrúlega persónuleg og níðingsleg og sannarlega ekki til eftirbreytni.

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Nauðsynlegt er að skrá sig inn til að setja inn athugasemd.

Höfundur

Ágúst Ólafur Ágústsson
Ágúst Ólafur Ágústsson

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 14
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 14
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        
Leita í fréttum mbl.is

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband