Hvað þýðir könnun Fréttablaðsins?

Könnun Fréttablaðsins í dag um fylgi stjórnmálaflokkanna er nokkuð áhugaverð. Vitaskuld horfum við Samfylkingarfólk fyrst til þess að samkvæmt henni mælumst við nú með 30.4% fylgi en Sjálfstæðisflokkurinn með 38.5%. Allt er það í rétta átt, en betur má ef duga skal og við ætlum okkur svo sannarlega stærri hlut í kosningunum.

Hitt er ekki síður áhugavert að sjá hvað Frjálslyndir bæta miklu fylgi við sig. Flokkurinn hefur samkvæmt könnunni fimmfaldað fylgið en er þó aðeins með 11%. Frjálslyndi flokkurinn hefur haft þann háttinn að finna sér eitt mál fyrir hverjar kosningar til þess að lifa baráttuna af. Staðreyndin er nefnilega sú að á milli kosninga á flokkurinn litlu sem engu fylgi að fagna meðal þjóðarinnar. En fyrir kosningar hefur flokkurinn svo lagt upp með að kosningarnar eigi að snúast um kvótakerfið, flugvöllinn og nú virðast það eiga að vera innflytjendamálin. Það er svo annað mál hvort að þetta fylgi sé varanlegt og sjálfur leyfi ég mér að efast stórlega um það. Þó verður fróðlegt að sjá hversu langt flokkurinn kemst á þessu eina málefni.

Könnunin birtir okkur fyrst og síðast þá staðreynd að skjótt skipast veður í pólitíkinni. Enn er langt í kosningar. Sigur Demókrata í Bandaríkjunum í gær undirstrikar enn frekar þessa staðreynd. Fyrir örfáum mánuðum síðan var ekki útlit fyrir þessi úrslit í Bandaríkjunum, en síðan hefur orðið algjör viðsnúningur. Ástæðan var fyrst og fremst Írak og ég gæti trúað því að íslensk stjórnvöld muni gjalda fyrir utanríkisstefnu sína í komandi kosningum.

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Nauðsynlegt er að skrá sig inn til að setja inn athugasemd.

Höfundur

Ágúst Ólafur Ágústsson
Ágúst Ólafur Ágústsson

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (20.4.): 1
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 16
  • Frá upphafi: 144254

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 16
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        
Leita í fréttum mbl.is

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband