Krónunni kastað fyrir aurinn

Nú berast enn einu sinni fregnir af uppnámi í heilbrigðiskerfinu. Í þetta sinn vegna deilu ljósmæðra við Tryggingarstofnun ríkisins (TR). Vegna þessa tók ég þetta mál upp á Alþingi í dag og spunnust heilmiklar umræður um málið. Samningur milli ljósmæðra og TR rann út fyrir tveimur nóttum og í kjölfarið hefur heimaþjónusta ljósmæðra við sængurkonur lagst af, sem hefur alvarlegar afleiðingar í för með sér.

Alvarlegar afleiðingar og skert þjónusta
Í fyrsta lagi mun þjónusta við mæður, börn og fjölskyldur minnka og jafnvel hverfa. Nú þegar hefur þjónusta við mæður minnkað. Það er sömuleiðis alvarlegt ef nauðsynlegt og faglegt eftirlit með félagslegum aðstæðum nýfæddra barna leggst af.

Í öðru lagi mun sængurlega kvenna á Landspítalanum lengjast að meðaltali um tvo sólarhringa. Einn sólarhringur á sængurkvennadeild Landspítalans er dýrari en heil vika hjá starfandi ljósmóður í heimaþjónustu. Kostnaðurinn er í báðum tilvikunum um 50.000 kr. Þetta ástand leiðir því af sér umtalsverðan kostnað fyrir hið opinbera.

Í þriðja lagi skerðir þetta ástand valfrelsi foreldra á mismunandi þjónustu - en nóg hefur verið gert af því með niðurlagningu á hinni svokölluðu MFS-einingu en það hefur bæði skert valkosti fjölskylda kvenna og aukið eftirspurnina á þessari heimaþjónustu sem við erum hér að ræða.

Í fjórða lagi mun þetta fylla hratt fæðingardeildir spítalans og auka álag á aðrar deildir spítalans, s.s. bráðamóttöku og barnaspítalann þar sem skoðun og aðstoð ljósmæðra heima fyrir verður ekki lengur til staðar. Þetta mun aftur auka kostnaðinn í kerfinu í heild sinni.
Mjög ódýrar kröfur
Núna fær hver ljósmóðir um 4.200 kr. fyrir hverja vitjun. Hins vegar liggur fyrir kostnaðargreining á þjónustunni upp á um 5.900 kr. Ljósmæðrafélagið bauð TR tilboð upp á 4.800 kr. sem er talsvert undir kostnaðargreiningunni en því tilboði hafnaði TR. Síðan þá hefur fundur Ljósmæðrafélagsins ályktað að þær muni ekki sætta sig við minna en sem nemur kostnaðargreiningunni.

Fyrra launatilboð ljósmæðra hefði kostað ríkið um 2 milljónir króna á ári til viðbótar. Tryggingastofnun hafnaði því tilboði. Sé farið eftir kostnaðargreiningu þjónustunnar mun nýr samningur hafa í för með sér 15 milljón króna viðbótarkostnað á ári eða rúma milljón á mánuði.

Upphæðirnar sem hér er verið að ræða um eru því ekki háar. Sérstaklega í ljósi þess kostnaðar sem verður til þegar þessi þjónusta leggst af eins og staðan er núna. Nú fer mun stærri hluti kvenna fyrr heim af spítalanum en áður eða um 65% innan 36 klst. Þetta hefur í för með sér aukinn kostnað fyrir Tryggingarstofnun ríkisins sem greiðir fyrir heimaþjónustu ljósmæðra. Hins vegar lækkar þetta kostnað spítalans þar sem konur liggja styttra inn á spítalanum en áður. Þetta er því enn eitt dæmið um það þegar hið opinbera lítur ekki á heildarmyndina og eins og venjulega líður almenningur – í þessu tilviki foreldrar og ungbörn – fyrir það.
Fátt um svör frá ráðherranum
Mig langaði því til að spyrja heilbrigðisráðherra hver væri staðan í samningaviðræðum við ljósmæður og hvernig hann myndi bregðast við því ófremdarástandi sem skapast hefur í heilbrigðiskerfinu og þeim aukna kostnaði vegna þessa.

Fátt var um svör hjá ráðherranum sem sagði málið ekki snúast um upphæðir og hann vonaðist eftir að samningar næðust. Sem sagt deilan heldur áfram og fjölskyldur landsins líða fyrir það.

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Nauðsynlegt er að skrá sig inn til að setja inn athugasemd.

Höfundur

Ágúst Ólafur Ágústsson
Ágúst Ólafur Ágústsson

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.3.): 1
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 2
  • Frá upphafi: 144237

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 2
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            
Leita í fréttum mbl.is

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband