Bætum öryggið á Barnaspítalanum

Mér fannst ástæða til þess að taka upp þá stöðu sem ríkir á Barnaspítala Hringsins og spurði Siv Friðleifsdóttur nýjan heilbrigðisráðherra út í þessa stöðu á þingfundi í dag. Sú staðreynd hefur legið fyrir í talsverðan tíma að það vantar sárlega hágæsluherbergi á Barnaspítala Hringsins. Hágæsla er aðeins lægra þjónustustig en gjörgæsla sem tekur við allra veikustu og slösuðustu sjúklingunum. Vegalengdin milli Barnaspítalans og gjörgæsludeildarinnar á Landspítalanum er löng. Þess finnast jafnvel sorgleg dæmi að þessi vegalengd hafi reynst of löng enda geta mínútur, og jafnvel sekúndur skipt sköpum.

Það verður því að hefja rekstur á sérstöku hágæsluherbergi á Barnaspítalanum og auka þannig öryggi og þjónustustig spítalans. Plássið er fyrir hendi og kostnaður af slíkri deild er ekki mikill – sérstaklega ekki í ljósi þeirra gríðarlegu hagsmuna sem eru í húfi.

Þessi hágæsluþjónusta innan Barnaspítalans myndi kosta um 60-80 milljón króna á ári. Landspítalinn kostar hins vegar 30.000 milljónir króna á hverju ári. Við erum að því aðeins að tala um 0,2% af heildarrekstrarkostnaði spítalans. 0,2% fyrir þjónustu sem getur reynst lífsnauðsynleg.

Í umræðunni fyrir jól um fjárlög þessa árs - fyrir aðeins 4 mánuðum – lögðum við í stjórnarandstöðunni fram beina tillögu á Alþingi um að þessari viðbótarupphæð yrði veitt til Landspítalans, svo hægt væri að starfrækja svona hágæsluþjónustu á Barnaspítalanum. Tillagan var því miður felld af hálfu stjórnarmeirihlutans.

Skora á nýjan heilbrigðisráðherra
Vegna þessa tók ég þetta mál upp á Alþingi og kallaði eftir svörum og aðgerðum frá nýjum heilbrigðisráðherra. Ég skoraði á nýjan heilbrigðisráðherra að sýna þann vilja að kippa þessu máli strax í lið og sagði að það gæti verið glæsilegt upphaf hjá henni sem nýr heilbrigðisráðherra.

Hins vegar var fátt um svör frá ráðherranum sem sagði málið einfaldlega vera í skoðun. En málið var einnig í skoðun fyrir 6 vikum þegar spurt var um sama mál. Ráðherrann vísaði einnig ábyrgðinni á yfirstjórn Landspítalans og sagði yfirstjórnina ekki hafa sett málið í forgang. Þetta er hins vegar kolröng nálgun þar sem ábyrgðin liggur hjá stjórnvöldum. Alþingi hefur fjárveitingarvaldið og við getum kippt þessu í liðinn sé vilji fyrir því.

Eitt tilfelli er einu tilfelli of mikið
Heilbrigðisráðherra sagði að Ísland hefði besta heilbrigðiskerfi í heimi. En á meðan þessi alvarlega brotalöm er á kerfinu, á meðan að börn og fjölskyldur þeirra búa ekki við hámarksöryggi þá finnst mér ekki væra hægt að halda því fram að hér sé til staðar besta heilbrigðiskerfi í heimi þrátt fyrir frábært starfsfólk.

Við eigum að gera kröfu til þess að hér séu bestu mögulegu aðstæður fyrir landsmenn, ekki síst börn og eldri borgara. Við eigum sömuleiðis að gera kröfum um að sú þjónusta standi öllum til boða án tillits til efnahags – en þær raddir heyrast nú í umræðunni að þeir efnameiri eigi að geta keypt sér fram fyrir aðra í heilbrigðiskerfinu. Samfylkingin hafnar slíkri leið. Samfylkingin vill bæði öruggt og aðgengilegt heilbrigðiskerfi

Hér vantar eingöngu pólitískan vilja til að starfrækja hágæsluherbergi á Barnaspítalanum. Við eigum að ná þverpólitískri samstöðu um málið og laga þetta hratt og vel. Kjarni málsins er að það verður að auka öryggi á Barnaspítalanum og það er hægt að gera það með litlum kostnaði. Eitt tilfelli er einu tilfelli of mikið.

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Nauðsynlegt er að skrá sig inn til að setja inn athugasemd.

Höfundur

Ágúst Ólafur Ágústsson
Ágúst Ólafur Ágústsson

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.3.): 1
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 2
  • Frá upphafi: 144237

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 2
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            
Leita í fréttum mbl.is

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband