Raunhæf og marktæk fjárlög

Það ber að taka alvarlega þær fréttir að fjöldi ríkisstofnana fari ekki eftir lögum landsins þegar kemur að útgjöldum þeirra. Þessar fréttir eru ekki síður umhugsunarverðar í ljósi þess að þær hafa verið að heyrast reglulega undanfarin ár. Auðvitað er það á ábyrgð stjórnmálamannanna að ákveða raunhæfar fjárheimildir fyrir viðkomandi stofnanir.

Við höfum oft gagnrýnt að samþykkt séu fjárlög sem geta ekki staðist. Því þarf að breyta. Ég tel hyggilegt að fjárlagavinnan verði endurskoðuð svo að fjárlögin verði marktæk. En það breytir því ekki að forstöðumönnum ríkisstofnana ber að fara eftir fjárlögum enda eiga þeir ekki að hafa val um eitthvað annað.

En hluti af vandanum gæti verið sá að forstöðumenn ríkisstofnana átta sig á því að afleiðingarnar við að fara fram úr fjárheimildum eru litlar sem engar. Ráðherrarnir þurfa sömuleiðis á átta sig á því að kröfur þeirra um þjónustu ríkisstofnana þurfa að vera í samræmi við það fjármagn sem viðkomandi stofnanir fá.

Ég fagna því viðbrögðum Gunnars Svavarssonar, formanns fjárlaganefndar, um að fjárlaganefndin muni fylgja þessu máli af fullum krafti og ég treysti honum fyllilega til að halda þannig á málum að hér verði talsverð bragarbót.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Mig langar að benda á ábyrgð stjórnmálamanna og ráðherra í þessum efnum - þar sem er verið að ráða pólitskt vini og vandamenn í forstjórastöður ríkisstofnana sem hafa jafnvel ekkert vit á starfsemi stofnunarinnar - held það væri skynsamlegra að skoða sjálfan sig áður en farið er að benda á aðra.
Bendi á þennan link með grein sem ég skrifaði í moggann í vor um pólitískar ráðningar.
http://asagreta.blog.is/blog/asagreta/entry/214434/

Ása (IP-tala skráð) 25.8.2007 kl. 16:02

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Ágúst Ólafur Ágústsson
Ágúst Ólafur Ágústsson

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.3.): 1
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 2
  • Frá upphafi: 144237

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 2
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            
Leita í fréttum mbl.is

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband