Frjálslyndi og umbætur í landbúnaðarmálum

Eitt það mikilvægasta sem við náðum í stjórnarsáttmála nýrrar ríkisstjórnar lýtur að landbúnaðarmálum. Þar segir að það skuli endurskoða landbúnaðarkerfið m.a. með það fyrir augum að auka frelsi og lækka verð til neytenda. Þá er mikilvægt að hafa í huga að í stjórnarsáttmálanum stendur einnig eftirfarandi: “Mikilvægt er að heilbrigð samkeppni og eðlileg verðmyndun þrífist á öllum sviðum atvinnulífsins og að neytendur njóti góðs af þeirri samkeppni.“

Þetta eru gríðarleg mikilvæg markmið sem má alls ekki gera lítið úr. Íslendingar eru búnir að rífast um landbúnaðarkerfið á Íslandi í áratugi. Nú er hins vegar komin fram ný ríkisstjórn sem kennir sig bæði við frjálslyndi og umbætur. Það gengur því ekki að standa vörð um núverandi kerfi sem er skattgreiðendum, neytendum og bændum óhagstætt.

Og það er ekki málefninu til framdráttar að mála hugsanlegar umbætur þeim litum að þær muni „rústa landbúnaðinum“ eins og iðulega heyrist í þessari umræðu.

Þessi ríkisstjórn hefur skuldbundið sig til að auka frelsi í landbúnaðarkerfinu og lækka matvælaverðið. Ég ætlast til að hún standi við þau orð.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Var það ekki "aukið frelsi, lægra verð til neytenda og bætt staða bænda". Það getur engin verið ósammmála því, og ef þú vilt stuðla að því öllu samtímis þá er sjálfsagt mál að aðstoða við það....

http://www.siggithor.blog.is/blog/siggithor/entry/219601/

Sigurður Þór Guðmundsson (IP-tala skráð) 14.6.2007 kl. 15:01

2 Smámynd: Jón Gíslason

Sæll Ágúst Ólafur.  Það er þá vonandi að stjórnarliðar líti sérstaklega á "eðlilega verðmyndun" á landbúnaðarafurðum og skoði jafnframt hver hlutur bóndans er af heildarverðinu.  Ætli mörgum myndi ekki ofbjóða þegar þeir komast að því hvað sá hlutur er lítill í samanburði við vinnslukostnað, en þó fyrst og fremst álagningarhlut verslunarinnar.  Það gengur ekki upp að ákveðnir stjórnmálamenn haldi endalaust áfram að atast útí bændur og kenna þeim um hátt vöruverð á Íslandi.  Er ekki kominn tími til að fara að skoða verðmyndunina betur hnippa aðeins í smásalana,  þeir þyldu held ég alveg að endurskoða álagninguna hjá sér.   Verðlag á Íslandi er of hátt, en minnst af því er af völdum bænda og landbúnaðarafurða.  Af heildarútgjöldum  heimila  er ca. 13% til landbúnaðarafurða, þar af er helmingurinn innfluttur.  Ég spyr, er það Íslenskum bændum að kenna að föt, skór, bækur, áfengi, ferðalög, bíómiðar, og í raun flest allar neysluvörur á Íslandi er dýrar?  Svo ekki sé minnst á matvæli, eins og fisk eða brauð úr innfluttu korni.

 Farðu nú að láta til þín taka að skoða verðmyndunina alla leið,  við bændur erum löngu byrjaðir að hagræða,  og afurðaverð til okkar hefur engan veginn haldið í við aðrar verðhækkanir undanfarin ár.

Kv; Jón Gíslason, bóndi

Jón Gíslason, 14.6.2007 kl. 15:30

3 Smámynd: Gísli Hjálmar

Heyr, heyr ... Ágúst

Gísli Hjálmar , 14.6.2007 kl. 17:37

4 Smámynd: Guðrún María Óskarsdóttir.

Sæll Ágúst.

Frjálslyndi felst ekki í því endilega að vikka mörk frelsis á öllum sviðum þannig að frumskógarlögmálið sé niðurstaðan.

Þvert á móti þarf að finna frelsinu mörk hér á landi þannig að innan marka frelsis fái íbúar lands þess notið.

Til þess hins arna eru færar leiðir án þess að auka frelsið í formi óhefts innflutnings si svona sem ekki skilar tilgangi sínum það máttu bóka, fremur en lækkun virðisaukaskatts á matvöru sem hirt var upp af milliliðum fyrirfram.

kv.gmaria.

Guðrún María Óskarsdóttir., 15.6.2007 kl. 02:30

5 Smámynd: Ragnar Geir Brynjólfsson

Það gleymist gjarnan í þessu sambandi að mjólkurkvótinn í landbúnaðinum hlýtur að verða þess valdandi að verð til neytenda hækkar og hagnaður framleiðenda lækkar. Þeir sem hagnast á slíku fyrirkomulagi hljóta til lengri tíma að vera fjármagnseigendur. Í landbúnaðinum er ekki verið að vernda neina auðlind, aðeins verið að stýra framleiðslu.

Ragnar Geir Brynjólfsson, 15.6.2007 kl. 08:07

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Ágúst Ólafur Ágústsson
Ágúst Ólafur Ágústsson

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.3.): 1
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 2
  • Frá upphafi: 144237

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 2
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            
Leita í fréttum mbl.is

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband