Þingvallastjórn?

Viðræður flokkanna héldu áfram á Þingvöllum í dag eins og komið hefur fram í fréttum í kvöld. Þetta átti upphaflega að vera leynilegur fundur enda erfitt að mynda ríkisstjórn undir kastljósi fjölmiðlanna. Einhverjir fréttamenn voru nú engu að síður mættir á Þingvelli seinnipartinn. Fjölmiðlar voru þó furðu lengi að finna staðsetningu fundarins í ljósi þess að það eru ekki svo margir staðir sem koma til greina fyrir svona fundarhöld.

Dagurinn var tekinn snemma og við Ingibjörg Sólrún, Össur og Skúli Helgason framkvæmdastjóri flokksins vorum samferða í bíl í morgun. Það var margt skemmtilegt spjallað á Þingvallaveginum og líka á heimleiðinni seint í kvöld þó að vissulega hafi verið meiri ró yfir hópnum á heimleið, enda langur dagur að baki.

Ég finn það hvar sem ég kem að það er mikill meðbyr með nýrri stjórn Sjálfstæðisflokksins og Samfylkingarinnar. Viðeyjarstjórnin fékk nafn sitt eftir viðræður Sjálfstæðisflokks og Alþýðuflokks í Viðey. Mér þætti Þingvallastjórnin ekki vitlaust nafn á þessari ríkisstjórn ef samningar nást.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jón Ingi Cæsarsson

Góður gangur í þessu....þetta er frábært lið að landa þessu fyrir okkur

Jón Ingi Cæsarsson, 19.5.2007 kl. 23:55

2 identicon

þÚ ERT OKKAR MAÐUR

Jónína Benediktsdóttir (IP-tala skráð) 20.5.2007 kl. 00:00

3 Smámynd: Magnús Már Guðmundsson

Sæll félagi.

Gaman að heyra að allt gangi vel.

Keyptu þið ís á leiðinni heim? :)

Baráttukveðjur,

Magnús Már Guðmundsson, 20.5.2007 kl. 00:15

4 Smámynd: Magnús V. Skúlason

Væri ekki hægt að tala um þetta sem 'Uppstigningarstjórnina' þar sem boltinn fór að rúlla á þeim merka degi?

Magnús V. Skúlason, 20.5.2007 kl. 09:22

5 identicon

Þú ert frábær Ágúst Ólafur!!!!! Með þig í hóp er 100% velgengni í öllum kringumstæðum!!! Yfir þér hvílir blessun Guðs, leiðsögn og kraftur til sigurs!!!

Ása (IP-tala skráð) 20.5.2007 kl. 10:18

6 Smámynd: Gísli Hjálmar

Mikið ertu nú þjóðlegur Ágúst ... en það er líka það bezta við pólitíska-hugsjón þína- að mínu viti.

Gott að vita að það gangi vel í stjórnarmyndunar-viðræðunum hjá ykkur.

Gísli Hjálmar , 20.5.2007 kl. 10:56

7 Smámynd: Jóhannes Ragnarsson

Hvaða kjaftæði er þetta. Það er búið að gefa þessari upprennandi stjórnarnefnu nafn: Baugsstjórnin.

Ég trúi vel að það hafi verið glatt á hjalla hjá ykkur bílnum á leið til Þingvalla og enginn kalinn á hjarta. Enda ekki á hverjum degi sem Stóra Íhaldið býður Litla Íhaldinu til skrafs og ráðagerða í Þingvallabænum.    

Jóhannes Ragnarsson, 20.5.2007 kl. 11:15

8 Smámynd: Inga Lára Helgadóttir

...og Þingvallarstjórn skal sú stjórn heita

Inga Lára Helgadóttir, 20.5.2007 kl. 11:28

9 Smámynd: Magnús Paul Korntop

Megi Þingvallastjórnin vera til heilla fyrir landsmenn alla.

Magnús Paul Korntop, 20.5.2007 kl. 14:02

10 Smámynd: Guðrún Magnea Helgadóttir

,,Dag skal að kveldi lofa og mey að morgni". Óskandi að við fáum trausta og réttláta ríkisstjórn á næstu dögum.

Guðrún Magnea Helgadóttir, 20.5.2007 kl. 15:06

11 Smámynd: Oddur Ólafsson

Mér datt nú í hug að kalla hana Latabæjarstjórnina.  Geir Harði, Solla stirða og Þorgerður Þrumulína eru alltaf að koma sér í einhver vandræði.  Grímur glæpur er alltaf að plotta á móti þeim, en Baugsálfurinn svífur yfir öllu og stjórnar í raun atburðarrásinni.  Og svo sér hann líka til þess að allir íbúarnir borði ferskt og gott grænmeti.

Oddur Ólafsson, 20.5.2007 kl. 21:33

12 Smámynd: Inga Lára Helgadóttir

Þetta var reyndar mjög góð samlíking hjá þér Oddur þetta passar alveg nákvæmlega

En ég krosslegg fingurna með ykkur Ágúst Ólafur og þetta MUN fara allt á besta vel trúi því að sem flestir verði ánægðir 

Inga Lára Helgadóttir, 20.5.2007 kl. 22:02

13 Smámynd: Gunnar Skúli Ármannsson

Sæll,

eftir þennan "kósý" bíltúr þætti mér vænt um að vita hver er er stefna Samfylkingarinnar þegar kemur að Flateyri og stjórn fiskveiða Íslendinga. Mun það fólk sem þar býr núna sjá þess merki í nýjum stjórnarsáttmála ykkar að eitthvað verði gert í þeirra málum annað en að vísa þeim á mölina. 

Gunnar Skúli Ármannsson, 21.5.2007 kl. 00:04

14 Smámynd: Oddur Ólafsson

Hún gæti heitið Flateyrarstjórn.

Hvernig væri að leigja rellu, fljúga til Flateyrar og klára dæmið þar?  Á milli funda gætuð þið gengið um plássið og rætt við fólkið í landinu, og gefið af ykkur þann þokka að ykkur standi ekki á sama.

En kannski myndi felast í því ákveðin viðurkenning á því að það sé ekki allt í himnalagi alls staðar.  Sennilega er auðveldara að halda bara áfram á Þingvöllum, svo þægilega nálægt bænum, en samt pínu úti á landi.  Táknmyndin  er klassísk og þrungin íhaldssemi, en alls ekki djörf.  Hitt myndi vera ferskara.  En svo gætuð þið kannski bara hringt frá Þingvöllum í  Ómar R hjá Impregilio og pantað hjá honum eins og eina Flateyringablokk í flóttamannabúðir landsbyggðarinnar á höfuðborgarsvæðinu. 

En gangi þér vel vinur í því sem þú átt eftir að taka þér fyrir hendur. 

Oddur Ólafsson, 21.5.2007 kl. 01:25

15 Smámynd: Karl Jónsson

Ný ríkisstjórn VERÐUR að leggja í raunhæfar byggðaaðgerðir og leggja sitt af mörkum við að snúa þróuninni við. Ég treysti á þig Ágúst Ólafur að þú leggir okkur landsbyggðarfólkinu lið í að bæta hér búsetuskilyrði og að við þurfum ekki að neyðast til að búa annars staðar en við viljum.

Karl Jónsson, 21.5.2007 kl. 11:47

16 Smámynd: Gunnar Skúli Ármannsson

Sæll aftur,

afstaða ykkar til vandamála landsbyggðarinnar brennur á fólki, eins og þú verður var við. Þegar rætt er um þessi mál þá virðist vera mjög lítil samúð fyrir hendi. Maður heyrir fólk segja "nú þetta fólk......" eða þá "er þetta ekki allt saman útlendingar hvort sem er..."

Samfélagsleg ábyrgð okkar er mikil. Við getum ekki sætt okkur við að heilt byggðarlag sé afgreitt sem annars flokks vara.  Við verðum að breyta hugarfarinu því augljóst er að það hefur sýkst að einhverju leiti.

Gunnar Skúli Ármannsson, 21.5.2007 kl. 18:41

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Ágúst Ólafur Ágústsson
Ágúst Ólafur Ágústsson

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 16
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 16
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        
Leita í fréttum mbl.is

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband