Bleyjupakki ríkisstjórnarinnar

peningar a treAuðvitað verður fólk vart við hinn sívaxandi ójöfnuð. Þennan ójöfnuð má að stórum hluta rekja til ákvarðana þessarar ríkisstjórnar. Í valdatíð ríkisstjórnarinnar hefur einungis einn tekjuhópur upplifað minni skattbyrði en áður. Það er sá hópur sem er með allra mestu tekjurnar, fólk með meira en 1,2 milljón kr. á mánuði. Skattbyrði allra hinna, 90% þjóðarinnar, hefur þyngst.

En svar Sjálfstæðismanna vegna sívaxandi skattbyrði hefur ætíð verið á þá lund að tekjur fólks hafi aukist og því aukist skattbyrðin.

Af hverju gerist það sama ekki erlendis?
En hvernig má vera að fólkið í topp 10% tekjuskalanum upplifir minni skattbyrði þrátt fyrir að tekjur þeirra hafi einnig aukist?

Og hvernig má vera að í löndunum í kringum okkur þar sem tekjurnar hafa einnig aukist er fólk ekki að upplifa þyngri skattbyrði?

Við skulum muna hvernig skattlækkanir ríkisstjórnarinnar hafa skipst á milli borgaranna. Þær skattalækkanir sem voru samþykktar 2005 skiptust þannig að 25% tekjuhæstu fengu 2,5 milljarð kr. í sinn snúð en 25% tekjulægstu 300 milljónir kr. eða næstum 10 sinnum lægri upphæð.

Bleyjupakki vs. utanlandsferð
Skattalækkanir þessa sama árs færðu grunnskólakennara með meðallaun um 1.900 kr. í skattalækkun sem nægir rúmlega fyrir einum bleyjupakka á mánuði.

En á meðan fékk maður með milljón á mánuði um 23.000 kr. í skattalækkun mánaðarlega eða ígildi einnar utanlandsferðar í hverjum mánuði.

Þessu til viðbótar hefur ríkisstjórn markvisst haldið skattleysismörkunum niðri.

Ríkisstjórnin hefur flutt æ stærri hlut af byrðinni yfir á venjulega fólkið í landinu og því hefur ójöfnuður aukist. 


mbl.is Fólk telur ójöfnuð meiri nú
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: FÁLKINN

Væri þá ekki tilvalið að fara eftir tilmælum foringja þíns sem er "Að taka af þeim sem mest hafa tekjurna og láta til þeirra sem minnst hafa tekjurnar"  aka Kommúnismi.

FÁLKINN, 27.4.2007 kl. 20:08

2 identicon

Ef maður finnur ólykt úr bleyju þá skiptir maður um, ertu að segja það? 

Varðandi jafnaðarstefnuna er grundvallarmálið það í mínum huga að fólk sem er tekjulágt og ósátt við kjör sín hreinlega nýti sér einhvern af þeim fjölmörgu möguleikum til að bæta stöðu sína. Aldrei fyrr hefur verið meira framboð af góðri menntun eftir að einkavæddir háskólar spruttu fram með gríðarlegum metnaði. 

Það er voðalega þægilegt að sitja heima og væla yfir því að aðrir hafa "meikað það" með því að mennta sig og staðið sig í viðskiptum.

Svavar Friðriksson (IP-tala skráð) 27.4.2007 kl. 23:05

3 Smámynd: Gunnlaugur B Ólafsson

Þessir ránfuglsmenn hér fyrir ofan virðast ekki skilja hvaða forsendur þurfa að ríkja í heilbrigðu samfélagi, þar sem allir geta upplifað sig sem fullgilda og verðuga þátttakendur. Skattkerfið er að þróast í þá veru að létta birgðarnar á þá tekjuhæstu. Fiskverkakona borgar um 40% af tekjum umfram persónuafslátt til ríkisins en sá sem erfði 5 milljóna hlutabréf í Eimskip frá afa sínum borgar ekki nema 10% af fjármagnstekjum af eign sem að hann þurfti ekkert að hafa fyrir. Það eru til margar útgáfur af "fair play" og á hvaða forsendum menn "meika það".

Gunnlaugur B Ólafsson, 28.4.2007 kl. 00:05

4 Smámynd: Laufey Ólafsdóttir

Kæri Ágúst. Ef þú og aðrir viljið lesa nánar um áhrif þessa ójafnaðar, heimsækið mína síðu.

Laufey Ólafsdóttir, 28.4.2007 kl. 04:07

5 Smámynd: Magnús Jónsson

Alltaf kemur það mér jafn mikið á óvart hvað menn segja um skatta, en ekki átti ég von á því að þú Ágúst hefðir ekki meiri skilning á skattamálum en þetta.Það var verið að lækka skatta á þá sem greiða skatta á annað borð, ekki var verið að lækka skata á þá sem engan skatt greiddu fyrir, eiga menn í einhverjum vandræðum með að skilja það á vinstrivængnum?.Þær skattalækkanir sem gerðar hafa verið koma þeim til góða sem eru með meðaltekjur, að er barnafjölskyldur og  fólk sem er að leggja mikið á sig til að koma yfir sig og sína húsnæði, eins er með það eldra fólk sem lagði fyrir til elliárana það fær að eiga sinn aur nokkurn vegin án refsingar.Ég ætla að vona að ef þú og félagar þínir komist ekki að ef ætlunin er eins og hljómar að fjölga einu sinni en með misvitrum aðgerðum breiðu bökunum, það er að auka álögur á alla sem virðist vera það eina sem þið vinstrimenn hafið til málama að leggja yfirleitt.  

Magnús Jónsson, 28.4.2007 kl. 22:24

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Ágúst Ólafur Ágústsson
Ágúst Ólafur Ágústsson

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.3.): 1
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 2
  • Frá upphafi: 144237

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 2
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            
Leita í fréttum mbl.is

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband