Flestir treysta Samfylkingunni

Könnun sem Capacent vann fyrir Samfylkinguna sýnir að kjósendur treysta Samfylkingunni best allra flokka til að hrinda í framkvæmd umbótum í velferðarmálum, verðlagsmálum og jafnréttismálum.

Kjósendur treysta Samfylkingunni best flokka til að afnema kynbundinn launamun, eyða biðlista eftir hjúkrunarrýmum og afnema stimpilgjöld svo nokkur dæmi séu nefnd. 

Jafnmargir treysta Samfylkingunni og Sjálfstæðisflokknum til að lækka matvælaverð.  Þetta voru þau málefni sem höfðu mestan hljómgrunn meðal kjósenda samkvæmt þessari könnun.  Könnun Capacent var gerð í gegnum síma, úrtakið var 1900 manns og var svarhlutfallið 73%.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Herbert Guðmundsson

Það er sjálfsagt notalegt að fá niðurstöðu af þessu tagi úr eigin skoðanakönnun. En ég spyr: Hvaða Samfylkingu er verið að veðja á? Það blasir ekki við.

Herbert Guðmundsson, 23.4.2007 kl. 15:44

2 Smámynd: Tómas Þóroddsson

Frábært að heyra þetta, kemur reyndar ekki á óvart, en alltaf gaman að fá staðfestingu á því sem maður hefur á tilfinningunni.

Tómas Þóroddsson, 23.4.2007 kl. 15:46

3 identicon

Í bloggi núna um helgina lýsti ég því að ég væri orðin gagnvart Mogganum eins og unglingur í mótþróa gagnvart foreldrum sínum. Því meira sem þeir reyndu að fá mig til að kjósa „rétt“ þeim mun staðráðnari yrði ég að kjósa „EKKIrétt“. Líklega er lang EKKIréttast að kjósa Samfylkinguna miðað við það sem Mogginn segir, sem þýðir að ég, sem kýs í Norðausturkjördæmi, yrði þá að treysta Kristjáni Möller og Einari Má. Ég á ekki í neinum vandræðum með að treysta Ingibjörgu Sólrúnu og þér en getið þið þarna í Samfó í Reykjavík ekki gefið þeim K. og E. eitthvað við þessari stóriðjuglýju?????

Anna Ólafsdóttir (anno) (IP-tala skráð) 23.4.2007 kl. 16:16

4 Smámynd: Björn Viðarsson

Kannanir hafa ekki verið Samfylkingu hliðhollar undanfarið. En svo kemur ein sem er gerð fyrir flokkinn og viti menn, niðurstöðurnar afgerandi fyrir Samfylkingu.

Ekki efast ég um heilindi Capacent í sínu starfi. En hins vegar sér maður ekki heildartölfræðina úr þessari könnun, bara það dregið úr henni sem Samfylkingunni sýnist.

Enda er hrópandi mótsögn fólgin í því að 40% landsmanna ætli að kjósa D, í kringum 20% S en fleiri treysti samt S en D.

Maður kaupir þetta ekki alveg. 

Björn Viðarsson, 23.4.2007 kl. 16:41

5 identicon

Þetta eru nú eitthvað skrýtnar niðurstöður.........hvenær ætlar Samfylkingin að horfast í augu við staðreyndir?  Samfylking er að tapa fylgi sem þýðir að fólk treystir ekki þessum flokki.  Það er eins og S-listinn sé í sjúklegri afneitun..!  dísus.

Jóna Jóns (IP-tala skráð) 23.4.2007 kl. 22:16

6 Smámynd: Guðrún María Óskarsdóttir.

Það treysta fáir könnunum sem flokkarnir sjálfir kaupa Águst þannig er það bara.

kv.gmaria.

Guðrún María Óskarsdóttir., 24.4.2007 kl. 02:16

7 Smámynd: Hjörtur J. Guðmundsson

Björn:
Það gæti skýrt málið að þetta er eldgömul skoðanakönnun, nokkurra vikna gömul ef marka má heimasíðu Samfylkingarinnar og frá því í byrjun árins ef marka má Kragann, blað Samfylkingarfélaganna í Kraganum. Ágúst er ekkert að nefna það. Nei nei.

Þar sem Samfylkingin er annars líklegri en hitt til að gera sem minnst úr aldri könnunarinnar er allt eins líklegt að hún sé enn eldri en það.

Hjörtur J. Guðmundsson, 25.4.2007 kl. 16:32

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Ágúst Ólafur Ágústsson
Ágúst Ólafur Ágústsson

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.3.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 2
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 2
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            
Leita í fréttum mbl.is

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband