Hversu mörg börn hafa ekki farið til tannlæknis? Svarið er hér.

börnHversu mörg börn hafa ekki farið til tannlæknis? Þetta er mjög áhugaverð spurning að mínu mati og á vel við núna þegar heilmikil umræða er í gangi um tannheilsu íslenskra barna. Í fyrra var ég með fyrirspurn á Alþingi um hversu mörg börn höfðu ekki farið til tannlæknis á ákveðnu árabili. Svörin voru mjög áhugaverð.

Þar kom í ljós að 8.500 börn á aldrinum 3-17 ára höfðu ekki farið til tannlæknis í 3 ár.

Einnig kom í ljós að um 2.000 börn á aldrinum 6-17 höfðu ekki farið til tannlæknis í 5 ár.

Þá höfðu um 800 börn á aldrinum 9-17 ekki farið til tannlæknis í 7 ár. Þetta er langur tími án þess að hafa farið til tannlæknis.

Sjálfsagt eru margar ástæður fyrir þessum tölum en ein af þeim hlýtur að vera efnahagur fjölskyldunnar. Ljóst er að hið opinbera greiðir aðeins hluta af þeim kostnaði sem fjölskyldur verða fyrir þegar barn fer til tannlæknis. Við verðum því að gera það ódýrara fyrir fjölskyldur að fara með börn sín til tannlæknis.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Stóri gallinn er sá að sumir tannlæknar eru svo miklir okrarar, að þeir fæla fjölskyldufólk frá og þessir okrarar eru stéttinni til stórskammar.

Stefán

Stefán (IP-tala skráð) 29.3.2007 kl. 16:04

2 Smámynd: Hlynur Þór Magnússon

En hvað með roskið fólk sem gengur um tannlaust vegna þess að það hefur ekki efni á gervitönnum? Ég þekki dæmi um slíkt.

Hlynur Þór Magnússon, 29.3.2007 kl. 16:05

3 Smámynd: Baldvin Jónsson

Hvað um að hafa það bara ókeypis til 18 ára aldurs eins og ég ólst upp við?

Baldvin Jónsson, 29.3.2007 kl. 17:23

4 Smámynd: Guðrún Þóra Hjaltadóttir

Það er ekkert undarlegt að fólk fari ekki til tannlæknis með börnin sín. Það tekur trúlega hálfan mánuð fyrir marga að vinna fyrir tannlæknakostnaði fyrir fjagra manna fjölskyldu.

Fólk fer utan til að láta gera stærra aðgerðir af því að það er mun ódýrara þó svo að flugið leggjist ofan á. Er ekki löngu tímabært að gera eitthvað í þessum málum. Það er alltaf verið að tala um að við séum með bestur heilbrigðis þjónustu sem að völ er á.

Guðrún Þóra Hjaltadóttir, 29.3.2007 kl. 18:12

5 Smámynd: Þorsteinn Siglaugsson

Sko. Þessi spurning er ekki sú sem þú átt að spyrja, því þetta er eins og að hugsa frekar um hversu lengi sjúkrabíllinn er á leiðinni á slysstað en að spyrja hvernig sé hægt að fækka umferðarslysum. Vissulega væri eðlilegt að TR endurgreiddi samkvæmt réttri gjaldskrá, en hins vegar má ekki gleyma því, að börn fara til tannlæknis af því að tennurnar skemmast. Og í flestum tilfellum skemmast tennurnar af því að þær eru ekki burstaðar eða það er étið of mikið nammi og drukkið of mikið gos. Grunnvandinn snýr ekki að ríkinu heldur að foreldrunum. Það er auðvitað leiðinlegt fyrir félagshyggjumenn að þurfa að viðurkenna þannig lagað, en svoleiðis er það nú bara, Ágúst Ólafur.

Þorsteinn Siglaugsson, 29.3.2007 kl. 22:42

6 Smámynd: Hallur Magnússon

Það vantar tannálfa í grunnskólann. Tannheilsu barnanna okkar hefur hrakað verulega á undanförnum árum. Við erum að upplifa það sama og ljósálfarnir í álfheimum í hinu frábæra barnaleikriti Benedikt búálfur. Þegar Tóti tannálfur var numinn á brott af svartálfum, þá fengu ljósálfarnir tannpínu.  Meira hérna: http://hallurmagg.blog.is/blog/hallurmagg/entry/149515/ 

Hallur Magnússon, 29.3.2007 kl. 23:13

7 identicon

Þetta er gífurlega mikilvægt.. Ég er sjálf einstæð tvíbramóðir og þekki því vel hvað tannlæknakostnaðurinn er erfiður fjárhagslega, samt tel ég mig alltaf hafa verið dugleg að láta þær bursta tennurnar og nammi bara á laugardögum.. og helst ekkert gos..  Vildi óska þess að ráðamenn myndu átta sig á þessu.. Vil svona í framhjálhlaupi nefna við þig Ágúst að þú stóðst þig einstaklega vel í Silfrinu síðasta Sunnudag..

Björg F (IP-tala skráð) 30.3.2007 kl. 02:33

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Ágúst Ólafur Ágústsson
Ágúst Ólafur Ágústsson

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (20.4.): 1
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 16
  • Frá upphafi: 144254

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 16
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        
Leita í fréttum mbl.is

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband