Lobbýhópar skora

kjosaNú eru einungis rúmir 2 mánuðir eftir af kjörtímabilinu og það hefur ýmislegt drifið á daga mína sem þingmaður. En það var eitt sem vakti eftirtekt mína fljótlega eftir að ég settist á þing. Það voru áhrif hagsmunahópa eða svokallaðra lobbýhópa. Við þekkjum öll lobbýhópana sem við sjáum í bandarísku sjónvarpsþáttum en ég hefði aldrei trúað því að slíkir hópar þrifust raunverulega á Íslandi, hvað þá að þeir gætu hreyft við málum.

Fyrsta sumarið mitt sem þingmaður byrjuðu tölvupóstarnir að flæða til mín með alls kyns erindi. Á þeim tíma kom fljótlega í ljós að einn ákveðinn hópur var meira áberandi en aðrir hópar. Þetta voru ekki útgerðarmenn eða bændur. Ekki heldur verkalýðshreyfingin eða kvenréttindasamtök. Það voru rjúpnaskyttur. Mjög reiðar rjúpnaskyttur. Þær áttu ekki orð yfir fyrirhuguðu veiðibanni á rjúpum og helltust yfir mann formælingarnar fyrir þessa stórhættulegu og ólýðræðislegu og jafnvel óíslenskulegu ákvörðun sem ég kom reyndar ekki nálægt.

Svona hélt þetta áfram allt haustið þar til að nokkrir þingmenn úr nokkrum ónefndum flokkum guggnuðu og birtust með þingmál, rjúpnaskyttum í hag. En allt kom fyrir ekki og rjúpurnar sluppu þessi jól. Nú er auðvitað búið að afnema þetta veiðibann.

Aðrir lobbýhópar eru meira hefðbundnir, og þeir, ykkur að segja, ná sínu fram. Aðrir hópar sem hafa ekki eins sterka málsvara verða því undir í kapphlaupinu um skattfé almennings.

Áhrif lobbýhópa munu án efa aukast í íslenskri pólitík á næstu misserum.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

En hvernig eiga menn að koma sínu að nema á þennan hátt? Líklega hefur þetta eitthvað að gera hver lítið innra starf er í flokkunum, hve lítið er að marka stefnu flokkanna, ef hún er þá einhver, eftir að þeir eru komnir í stjórn. Ef enginn eða lítil er stefnan, þá verða hagsmunaðilar að þrýsta á um sitt og það er þá þingsins að ákveða hvar er látið eftir eða ekki. Svo hugsa ég bara að þingmenn séu busy og vilji gjarnan láta aðra aðila bera í sig þarfir og hugsanir.

Pétur Henry (IP-tala skráð) 5.3.2007 kl. 11:29

2 Smámynd: Gunnar Pétur Garðarsson

Afhverju ætti það að vera eitthvað sjálfgefið að lobbýismi muni ná meir áhrifum í íslenskum stjórnmálum? ég er kannski svona einfaldur en ég hélt einmitt að þingmenn ættu að vinna að málefnum til hagsbóta fyrir alla landsmenn en ekki einstaka aðila, kallast það ekki spilling þegar menn hygla einum umfram öðrum? Þetta er óþolandi að þingmenn hafa ekki breyðara bak en þetta, lúffa vegna þess að þeir eru hræddir við að missa vinnu. Þingmanna starf er ekki auðvelt starf að ég held og ef fólk höndlar það ekki þá á það að hætta og snúa sér að öðru. 

Gunnar Pétur Garðarsson, 6.3.2007 kl. 00:21

3 Smámynd: Birgir Guðjónsson

Sæll Ágúst,

Þetta er nokkuð áhugavert blogg hjá þér. Sýnir að þú ert frjór og hugrakkur einstaklingur. Það kemur svo sem ekki á óvart að reynt sé að hafa áhrif á skoðanir ykkar alþingismanna. Það er hins vegar öllu verra ef reynt er að bera fé á alþingismenn eða kaupa hinn lýðræðiskjörna hagsmunagæslumann. Sumir kalla þetta "Mútur" og er víst til í ýmsu formi. Hvernig er þetta annars á þinginu. Eru til siðareglur fyrir þingmenn varðandi gjafir ( t.d jóla & afmælis) , matarboð  o.s.f !

Birgir Guðjónsson, 6.3.2007 kl. 00:37

4 Smámynd: Guðrún María Óskarsdóttir.

Sæll Ágúst. Þú álítur þá rjúpnaskyttur sem greiða skatta ekki eiga að geta komið sínum málum á framfæri eða hvað ? Eru það ef til vill einungis Læknasamtökin og LÍÚ sem lenda ekki í hópi lobbýista ?

kv.gmaria.

Guðrún María Óskarsdóttir., 6.3.2007 kl. 03:04

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Ágúst Ólafur Ágústsson
Ágúst Ólafur Ágústsson

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 16
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 16
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        
Leita í fréttum mbl.is

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband