Staksteinar

steinarÞað er nú ekki oft sem við í Samfylkingunni getum fagnað skrifum Staksteina Morgunblaðsins. En við getum þó gert það í þetta sinn. Mér finnst það hreint út sagt ágætt að þessi munur sem er á milli Vinstri grænna og Samfylkingarinnar í matvælamálinu komi fram. En auðvitað eru snertifletir á milli flokkana t.d. í mennta-, velferðar- og umhverfismálum. En á öðrum sviðum getur verið talsverður munur. Matvæla- og landbúnaðarmálin eru eitt af þeim.

Þetta eru tveir mismunandi flokkar eftir allt saman. En það er kannski eitthvað sem ekki er hægt að segja um ríkisstjórnarflokkana sem keppast við að benda á að þeir séu í raun sami flokkurinn með sömu skoðunina á öllum málum.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Vandamálið við Samfyllinguna er þetta daður hennar við jafn ólýðræðislegan bannflokk og VG er.  Sæmilega frjálslyndu fólki er illa við að kjósa Samfylkinguna sökum þessa - atkvæði greitt Samfylkingunni  skapar stórhættu á upphafning VG. 

Æ, nei

Kv Sveinn

Sveinn V. Ólafsson (IP-tala skráð) 28.2.2007 kl. 20:37

2 identicon

Ég hef nú alltaf sagt að vandamálið við Samfylkinguna væri þessi markaðshyggja og hægri-kratastefna sem ég hef aldrei kunnað að meta (og hef skammað þig, Ágúst, fyrir í partýum, vona að þú hafir fyrirgefið!), og mér hefur líka þótt það virkilega  niðurlægjandi fyrir vinstriflokkana að vera í bandalagi með Frjálslyndaflokknum.

Hafi ég hins vegar einhvern tíman efast um að ég ætti heima í Samfylkingunni (sem ég geri reyndar að mörgu leyti) þá hefur það aldrei verið eins ljóst í mínum augum eins og undanfarið að ég á alls ekki heima í VG. Fyrir utan það hvað flokkurinn er firrtur og stjórnlyndur þá stendur Steingrímur að mínu mati alls ekki undir nafni sem femínisti og það er eins og flokkurinn sé í sérstöku átaki við að losna við allt þetta nýfengna fylgi til þess að geta og þurfa ekki að fara í ríkisstjórn.

hee (IP-tala skráð) 1.3.2007 kl. 14:25

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Ágúst Ólafur Ágústsson
Ágúst Ólafur Ágústsson

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.4.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 3
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 3
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        
Leita í fréttum mbl.is

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband