Karlar geta komið í veg fyrir nauðgun

Nauðgun er einn viðbjóðslegasti glæpur sem hægt er að fremja. En engu að síður er margt sem bendir til þess að samfélagið meti nauðgun ekki alltaf sem mjög alvarlegan glæp. Frásagnir af nauðgunum eftir Verslunarmannahelgina fá iðulega minna pláss í fjölmiðlum heldur en umfjöllun af veðri. Að baki hverri frétt um nauðgun liggur eftir niðurbrotin manneskja, oft til lífstíðar. Með hverri nauðgun sem við fréttum af hefur dóttir einhvers, móðir, eiginkona eða kærasta verið eyðilögð.
Dómstólar og löggjafinn standa sig ekki
En hvernig er næmi opinberra aðila gagnvart nauðgunum? Dómstólar mæta ekki alvarleika brotsins í dómum. Dómstólar taka einnig vægar á nauðgunum sem eru framdar af einhverjum sem fórnarlambið þekkti. Í svokölluðum ,,tilefnislausum” nauðganum eru dæmdir þyngri dómar. Þetta eru hættuleg skilaboð sem erfitt er að skilja enda er aldrei tilefni til nauðgunar til staðar. Reynsla konu sem verður fyrir nauðgun af hálfu kunningja er ekkert bærilegri en þeirrar sem verður fyrir nauðgun af hálfu ókunnungs.

Löggjafinn er ekki heldur í samræmi við þann veruleika sem þolendur nauðgana búa við. Löggjafinn gerir ráð fyrir ofbeldi eða hótun um ofbeldi til að hægt sé að beita hinu eiginlega nauðgunarákvæði í 194. gr. almennra hegningarlaga og er refsingin frá 1-16 ár. Sé ekki ofbeldi til staðar er 195. gr. beitt með refsingu upp að 6 árum og sú nauðgun er aðeins skilgreind sem ,,ólögmæt nauðung” af hálfu löggjafarvaldsins.

Munurinn á refsihæð lagaákvæðanna eru heil 10 ár og sýnir það að löggjafinn lítur á nauðgun ,,án ofbeldis” ekki nærri eins alvarlegum augum og ef um nauðgun skv. 194. gr. er að ræða. Skilyrði um ofbeldi eða hótun um ofbeldi rímar hins vegar oft ekki við þann veruleika sem konur lenda í þegar þær verða fyrir nauðgun.

Er það í samræmi við upplifun fórnarlambsins að ofbeldið sé það versta við nauðgun? Skyldi þeim konum sem verða fyrir nauðgun skv. 195. gr. líða öðruvísi en þeim konum sem eru þolendur nauðgunar skv. 194. gr.? Sú áhersla sem lögð er á ofbeldi dregur úr öðrum þáttum, eins og að nauðgun er fyrst og fremst árás á kynfrelsi, athafnafrelsi og virðingu. Lögin bera því þess merki að þau eru samin út frá sjónarhóli gerandans en ekki þolandans.
Karlmenn segja NEI við nauðgunum
Það er grundvallaratriði að átta sig á að það eru karlar sem nauðga. Þess vegna er mikilvægt að karlar taki þátt í umræðunni um nauðganir og velti fyrir sér leiðum til að koma í veg fyrir nauðganir. Karlahópur Femínistafélags Íslands stendur nú fyrir átakinu Karlmenn segja NEI við nauðgunum og er takmarkið að fá karla til að velta fyrir sér hvað þeir geti gert til að koma í veg fyrir nauðganir. Þar sem það eru karlar sem nauðga þá eru það karlar sem geta komið í veg fyrir nauðganir.

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Nauðsynlegt er að skrá sig inn til að setja inn athugasemd.

Höfundur

Ágúst Ólafur Ágústsson
Ágúst Ólafur Ágústsson

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (24.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 5
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 5
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        
Leita í fréttum mbl.is

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband