Þingmál um sérdeild fyrir unga fanga

Nú hef ég lagt fram fram þingsályktun um að sett verði á fót sérdeild fyrir unga fanga á aldrinum 18-24 ára þar sem samneyti þeirra við eldri fanga verður í algjöru lágmarki og aðeins ef brýna nauðsyn ber til. Með mér á málinu eru tólf aðrir þingmenn Samfylkingarinnar.

Bygging fyrirhugaðs fangelsis á Hólmsheiði við Nesjavallaveg er einstakt tækifæri til að gera ráð fyrir sérstakri deild fyrir unga fanga. Í umræðu um hið nýja fangelsi hefur hins vegar ekki verið gert ráð fyrir slíkri sérdeild fyrir unga fanga. Hérlendis hafa ekki verið rekin sérstök fangelsi fyrir unga fanga en slíkar stofnanir þekkjast þó víða erlendis.

Ungir fangar hafa margs konar sérstöðu og álíta að ekki sé æskilegt að þeir afpláni dóma í samneyti við eldri afbrotamenn. Það getur verið ókleift að ná fram betrun ungra fanga með því að vista unga fanga í samneyti við eldri fanga, sem sumir hverjir eru síbrotamenn. Margoft hefur verið sýnt fram á að samneyti ungra fanga við eldri, og jafnvel forhertari fanga, gerir þeim yngri ekkert gott og getur í sumum tilvikum haft afar hvetjandi áhrif á unga fanga til frekari þátttöku í afbrotum.

Endurhæfing er því líklegri til að skila betri árangri séu ungu fangarnir í eins jákvæðu og uppbyggilegu umhverfi og hugsast getur miðað við aðstæður. Sérdeild fyrir unga afbrotamenn býður einnig upp á margs konar sérstæk úrræði fyrir þennan aldurshóp, t.d. á sviði vímu- og geðmeðferðar.
Þingsályktunina í heild sinni má finna á vef Alþingis.

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Nauðsynlegt er að skrá sig inn til að setja inn athugasemd.

Höfundur

Ágúst Ólafur Ágústsson
Ágúst Ólafur Ágústsson

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 16
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 16
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        
Leita í fréttum mbl.is

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband